Fotbolti.net
Besta deildin
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Breiðablik
Breiðablik
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Kópavogsvöllur
3 - 2
FH
FH
0 - 112' Maya Lauren HansenSamantha Rose Smith 14'1 - 1Birta Georgsdóttir 70'2 - 12 - 281' Andrea Rán Snæfeld HauksdóttirHeiða Ragney Viðarsdóttir 89'3 - 2
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Breiðablik fagna titli og sigri

Hvað réði úrslitum?

Þetta var mjög kaflaskiptur leikur sem hefði geta endað báðum megin. FH átti mikið betri fyrri hálfleik, en Breiðablik tók meira yfir leiknum í þeim seinni.

Bestu leikmenn

1. Heiða Ragney Viðarsdóttir

Fyrirliðinn mjög flott í miðjunni og skoraði sigur mark leiksins.

2. Thelma Lóa Hermannsdóttir

Átti góðan leik þrátt fyrir tap. Átti stoðsendingar í báðum mörkum FH.

Atvikið

Aðal atvikið kom eftir leikinn þegar Blikar lyftu bikarnum eftir langa bið.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslit leiksins skipti litlu sem engu máli í stöðu deildinni. Blikar enda tímabilið efstir og FH enda í öðru sæti.

Vondur dagur

Thelma Karen var ekki alveg hún sjálf í dag fannst mér, en þessi leikur hafði lítið að segja og Thelma hefur átt frábært tímabil í sumar. Hún mun ekki dvelja við þennan leik neitt.

Dómarinn - 7

Þetta var alls ekki dramatískur leikur þannig það var enginn stórir dómar í dag. Ágætlega vel dæmt hjá Arnari og teymi hans hér í dag. Lítið annað að segja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.