SKÝRSLAN: Gleði í Dalnum og takk fyrir tímabilið
Hvað réði úrslitum?
Markið hennar Sierra réði leiknum, lítið sem ekkert að frétta í fyrri hálfleik og svo kemur seinni hálfleikur sem var mun skemmtilegri og léleg hreinsun frá Val sem kostaði mark var það sem réði 1-0 sigri Þróttara
Bestu leikmenn
1. Mollee Swift
Mollee Swift fær þennan titil í dag hún átti tvær frábærar vörslur og einnig mjög örugg í fótunum og hélt hreinu í dag! Henni var líka afhent gull hanskan fyrir að halda mest hreinu í deildinni. Til hamingju Mollee Swift!
2. Sierra Marie Lelii
Sierra Marie Lelii fær 2.sætið þar sem hún kemur inná í seinni hálfleik og var sú eina sem skoraði í dag og var það sigur markið í dag
Atvikið
Hvort Þróttur R. átti að fá víti eða ekki spurning hvort þetta sé þannig brot að það er hægt að dæma á það en svo á sama tíma er hægt að sleppa því að dæma á það
Hvað þýða úrslitin?
Ekkert nema það að Þróttur R. jafnar FH á stigum en sitja ennþá í 3.sæti útaf markatölu en þó bæta fleiri stigum á stigametið sitt í Bestu deild kvenna en úrslitin fyrir Val þýða það að þær detta niður í 6.sæti á markatölu því Víkingur R. jafnaði sinn leik og jafna því Val á stigum en eru með betri markatölu
Vondur dagur
Það átti engin af leikmönnunum lélegan dag í dag en vissulega ekki leikur fyrir augað í fyrri hálfleik en ég verð þá að setja þetta bara á Berglindi Rós fyrir lélega hreinsun sem varð að marki
Dómarinn - 7
Bara allt í lagi og ekkert lélegt en eina svona sem var er hvort Þróttur R. átti að fá víti eða ekki því mér fannst alveg hægt að dæma víti á þetta



