Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
Í BEINNI
Undanúrslit Lengjubikarsins
Þór
LL 0
2
Fylkir
Þór
0
2
Fylkir
0-1 Guðmundur Tyrfingsson '13
0-2 Benedikt Daríus Garðarsson '75
Eiður Benedikt Eiríksson '83
17.03.2026  -  18:00
Greifavöllurinn
Undanúrslit Lengjubikarsins
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: Fjölmennt og góðmennt
Maður leiksins: Guðmundur Tyrfingsson
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson ('81)
5. Yann Emmanuel Affi
8. Einar Freyr Halldórsson
15. Kristófer Kristjánsson ('89)
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason ('46)
19. Ragnar Óli Ragnarsson
22. Ágúst Eðvald Hlynsson ('81)
23. Ingimar Arnar Kristjánsson
25. Christian Greko Jakobsen ('73)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
28. Franko Lalic (m)
3. Birgir Ómar Hlynsson ('81)
4. Hermann Helgi Rúnarsson ('73)
18. Sverrir Páll Ingason ('89)
20. Vilhelm Ottó Biering Ottósson ('81)
21. Elvar Baldvinsson
37. Sigfús Fannar Gunnarsson ('46)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Eiður Benedikt Eiríksson (Þ)
Arnar Geir Halldórsson
Halldór Mar Einarsson
Stefán Ingi Jóhannsson

Gul spjöld:
Christian Greko Jakobsen ('60)
Kristófer Kristjánsson ('64)
Ingimar Arnar Kristjánsson ('88)

Rauð spjöld:
Eiður Benedikt Eiríksson ('83)
@saebjornth Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skýrslan: Kortlögð klókindi í kuldanum á KA-velli
Hvað réði úrslitum?
Fylkir mætti Þór í frostinu á Greifavellinum og það voru klókindi og vilji sem urðu til þess að Árbæingar keyra nú suður yfir heiðar með farmiðann í úrslitaleikinn í farteskinu. Þórsarar voru meira með boltann en gestunum leið ekki illa með það. Fylkismenn sluppu mjög oft í gegnum vörn heimamanna með einfaldri sendingu upp völlinn. Það var vel kortlagt hjá gestunum, sáu veikleika hjá heimamönnum, en Þórsarar hljóta að hafa áhyggjur af því að svona einfalt hafi verið að komast í góðar stöður gegn þeim.
Bestu leikmenn
1. Guðmundur Tyrfingsson
Mark og stoðsending hjá Guðmundi í kvöld. Átti góðan dag í framlínunni, fær mikið frjálsræði í kringum Eyþór Wöhler og hefði getað skorað fleiri mörk í leiknum. Leikmaður sem hæglega gæti spilað í efstu deild.
2. Ólafur Kristófer Helgason & Hlynur Sævar Jónsson
Áttu mjög góðan leik aftast á vellinum. Ólafur Kristófer las Greko einu sinni í dauðafæri og Hlynur Sævar virkaði vel með Orra Segatta í öftustu línu. Kristófer Kristjánsson var að mínu mati besti leikmaður Þórs í leiknum.
Atvikið
Annað markið, Guðmundur Tyrfingsson átti langa sendingu inn fyrir á Benedikt Daríus sem nýtti hraðan sinn og hélt bæði Affi og Ásbirni frá því að komast í boltann. Benedikt lagði svo boltann framhjá Aroni Birki í marki Þórs og tryggði Fylki í úrslitaleikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Lengjudeildarlið Fylkis fer annað árið í röð í úrslitaleik Lengjubikarsins. Fylkir tekur á móti KR á laugardag. Næsti skráði leikur hjá Þór er eftir eina og hálfa leik þegar liðið mætir KA í úrslitaleik Kjarnafæðimótsins.
Vondur dagur
Færanýting og stundum ákvarðanataka fremstu manna Þórs fá þetta. Ingimar Arnar, Greko og Ágúst Eðvald fengu sénsa til að skora í þessum leik og búa til fleiri góðar stöður en það tókst ekki. Það er líka langt síðan Yann Affi var jafn óöruggur með sjálfan sig í öftustu línu.
Dómarinn - 6
Ég missti af of mörgum atvikum þar sem ég var að skrifa um leikinn á símann minn til að meta frammistöðu Sigurðar almennilega. Fannst vanta flæði í leikinn á köflum en ekkert alltaf sem Sigurður gat eitthvað gert í því.
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
3. Arnór Breki Ásþórsson
4. Hlynur Sævar Jónsson
5. Orri Sveinn Segatta (f)
9. Eyþór Aron Wöhler ('89)
10. Benedikt Daríus Garðarsson ('84)
17. Birkir Eyþórsson
18. Nikulás Val Gunnarsson
20. Theodór Ingi Óskarsson ('72)
70. Guðmundur Tyrfingsson ('95)
77. Bjarki Steinsen Arnarsson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
99. Sævar Snær Pálsson (m)
7. Máni Austmann Hilmarsson ('89)
11. Magnús Daði Ottesen ('84)
21. Nói Hrafn Ólafsson
25. Jóel Baldursson ('95)
72. Helber Josua Catano Catano
92. Kári Sigfússon ('72)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Björn Metúsalem Aðalsteinsson (Þ)
Kristófer Sigurgeirsson (Þ)
Heimir Guðjónsson (Þ)
Ólafur Engilbert Árnason
Árni Leó Þórðarson
Björn Viðar Ásbjörnsson

Gul spjöld:
Nikulás Val Gunnarsson ('54)
Ólafur Kristófer Helgason ('83)
Kári Sigfússon ('86)

Rauð spjöld: