Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
Besta deildin
Fram
LL 3
3
ÍA
Besta deildin
Valur
LL 1
2
Þór
Besta deildin
KR
LL 3
2
Keflavík
Besta deildin
KA
LL 2
3
Stjarnan
Fram
3
3
ÍA
Atli Þór Jónasson '48 1-0
1-1 Viktor Jónsson '52
1-2 Markús Páll Ellertsson '54
1-3 Markús Páll Ellertsson '61
Sigurjón Rúnarsson '76 2-3
Kennie Chopart '91 3-3
Jakob Byström '94
12.04.2026  -  19:30
Lambhagavöllurinn
Besta deildin
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
5. Kyle McLagan
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
12. Simon Tibbling
16. Israel Garcia ('73)
17. Atli Þór Jónasson ('60)
19. Kennie Chopart (f)
25. Freyr Sigurðsson ('89)
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic ('73)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Sigurjón Daði Harðarson (m)
7. Kristófer Konráðsson ('89)
11. Magnús Þórðarson ('73)
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson ('73)
15. Jakob Byström ('60)
23. Már Ægisson
31. Þengill Orrason
33. Kajus Pauzuolis
38. Guðmundur Ágúst Héðinsson

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Helgi Sigurðsson
Magnús Þorsteinsson
Einar Haraldsson
Friðgeir Bergsteinsson
Sævar Halldórsson
Guðmundur Gígjar Sigurbjörnsson
Kristján Finnbogi Finnbogason

Gul spjöld:
Kennie Chopart ('43)
Haraldur Einar Ásgrímsson ('67)
Jakob Byström ('72)
Freyr Sigurðsson ('83)
Jakob Byström ('94)

Rauð spjöld:
Jakob Byström ('94)
Leik lokið!
Rosalegur leikur Skýrsla og viðtöl á leiðinni
94. mín Rautt spjald: Jakob Byström (Fram)
Seinna gula fyrir leikaraskap að mati Sigga dómara
94. mín Gult spjald: Jakob Byström (Fram)
93. mín
Skagamenn nærri búnir að endurheimta forystuna Ómar prjónar sig í gegn en skotið varið
91. mín MARK!
Kennie Chopart (Fram)
Stoðsending: Kristófer Konráðsson
Ótrúleg endurkoma Horspyrna frá Kristófer sem ratar beint á pönnuna á Kennie.

Kennie illa dekkaður og kemur boltanum í netið
91. mín
Fjórar í uppbót
89. mín
Inn:Kristófer Konráðsson (Fram) Út:Freyr Sigurðsson (Fram)
87. mín Gult spjald: Ísak Máni Guðjónsson (ÍA)
86. mín Gult spjald: Viktor Jónsson (ÍA)
Glórulaus tækling Viktor með grófa tæklingu á Kennie, einhvern tímann hefðu menn fengið rautt fyrir þetta
84. mín
Fínt færi Skemmtileg sókn hjá Frömurum, Tibbling með flotta sendingu út á Kennie sem á viðstöðulaust skot yfir markið
84. mín
827 manns á vellinum
83. mín Gult spjald: Freyr Sigurðsson (Fram)
81. mín Gult spjald: Haukur Andri Haraldsson (ÍA)
Kominn hiti í leikinn Þrjú gul spjöld á stuttum tíma
81. mín Gult spjald: Lárus Orri Sigurðsson (ÍA)
80. mín Gult spjald: Johannes Vall (ÍA)
78. mín
Frábær sprettur hjá Ómari Ómar keyrir upp hægri kantinn framhjá Þorra. Viktor gerir vel í markinu þrátt fyrir að færið hafi verið þröngt
76. mín MARK!
Sigurjón Rúnarsson (Fram)
Stoðsending: Freyr Sigurðsson
Við erum komin með leik! Darraðadans eftir hornspyrnu

Boltinn hrekkur á Freysa sem kemur með flotta fyrirgjöf aftur inn í teig.

Boltinn hrekkur á Sigurjón sem klárar sóknina með hnitmiðuðu skoti af stuttu færi
74. mín
Inn:Gabríel Snær Gunnarsson (ÍA) Út:Markús Páll Ellertsson (ÍA)
Markús fær verðskulað frí eftir gott dagsverk
74. mín
Mini myndaveisla
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

73. mín
Inn:Bjarni Páll Linnet Runólfsson (Fram) Út:Israel Garcia (Fram)
73. mín
Inn:Magnús Þórðarson (Fram) Út:Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
72. mín Gult spjald: Jakob Byström (Fram)
Gísli kominn í álítlega sókn, Bystrom reynir fyrst að toga hann niður en þegar það gekk ekki tæklaði hann Gísla.

Mjög verðskuldað spjald
69. mín
Ómar í góðu færi Gísli Eyjólfs með frábæra sendingu í gegn á Ómar sem var heldur einn á hægri kantinum. Skotið framhjá
68. mín
Inn:Ómar Björn Stefánsson (ÍA) Út:Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
67. mín Gult spjald: Haraldur Einar Ásgrímsson (Fram)
66. mín
Langskot hjá Israel Garcia Framar loksins aðeins að bíta frá sér. Fín sókn sem endar með skoti frá Israel
61. mín MARK!
Markús Páll Ellertsson (ÍA)
Stoðsending: Viktor Jónsson
Skaginn leikur á alls oddi Viktor Jóns vinnur skallaboltann gegn Sigurjóni, flikkar honum í gegn en Kyle á að vera með hann. Kyle reynir að skalla í innkast en hittar boltann engan veginn

Markús var allt í einu kominn einn í gegn og skýtur yfir Viktor í markinu

Erfiður dagur hjá Kyle
60. mín
Inn:Jakob Byström (Fram) Út:Atli Þór Jónasson (Fram)
58. mín
Skagamenn að herða tökin Frábær sprettur hjá Jóni Gísla sem rennir honum á Gísla Eyjólfs en Sigurjón nær að bjarga þessu í horn

Boltinn berst í fæturna á Markúsi eftir hornið sem á skot í varnarmann og í stöng

Skagamenn miklu líklegri þessa stundina
54. mín MARK!
Markús Páll Ellertsson (ÍA)
Stoðsending: Johannes Vall
Gestirnir búnir að snúa þessu við á tveimur mínútum Johannes Vall með frábæra stungusendingu á Markús

Viktor í markinu mætir en Markús fer framhjá honum og setur hann í autt markið

Virkilega snyrtilega gert hjá Markúsi en set smá spurningarmeki við Kyle í vörninni sem gleymdi sér
52. mín MARK!
Viktor Jónsson (ÍA)
Stoðsending: Böðvar Böðvarsson
Skagamenn fljótir að svara fyrir sig Darraðadans inn í teig eftir hornspyrnu.

Böðvar nær skoti sem er varið, frákastið berst til Viktors sem skorar af stuttu færi
48. mín MARK!
Atli Þór Jónasson (Fram)
Stoðsending: Kennie Chopart
Framarar refsa eftir slæm mistök Klaufagangur í vörn ÍA

Vuk keyrir upp völlinn

Israel með góða stungusendingu á Kennie sem kemur boltann inn í teig meðfram jörðinni

Þar lúrir Atli sem þarf ekki hafa fyrir því að setja hann í netið af stuttu færi

Verðskulduð forysta
46. mín
Aukaspyrna á stórhættulegum stað Jón Gísli brýtur á Vuk rétt á vinstri kanti nálægt vítateig en ekkert verður úr því
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað Engar breytingar á liðunum
46. mín
Hálfleikur
Ekki skemmtilegasti hálfeikurinn en fín baráttu á vellinum

Tökum okkur 15
46. mín
Einni mínútu bætt við
45. mín
Johannes Vall með skot/fyrirgjöf Hefði geta verið hættulegt en boltinn fer framhjá
43. mín Gult spjald: Kennie Chopart (Fram)
42. mín
Hörkusprettur hjá Freysa Klikkar á mótökunni á miðjunni en vinnur boltann strax aftur og geysist upp hægri kantinn og vinnur hornspyrnu fyrir Fram

Halli með góða spyrnu en Sigurjón og Atla fara báðir í sama boltann og hvorugur hittir hann
37. mín
Tvær horspyrnur í röð hjá Skagamönnum Sú fyrri skapar annað horn og sú seinni rennur í sandinn.
36. mín
Atli með skalla Fín fyrirgjöf frá hægri frá Kennie en Atli hittir hann illa og jafnvel með öxlinni og beint á Árna í markinu
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín Gult spjald: Gísli Eyjólfsson (ÍA)
Bakhrinding á Kennie og í raun algjör óþarfi en verðskuldað gult spjald
28. mín
Klaufalegt hjá Kennie sem gefur ÍA hornspyrnu Fyrirgjöf frá Jóni Gísla yfir alla en Kennie fær hann í hnéið og horn fyrir Skagamenn

Þeir taka hana stutt og ekkert verður úr henni
23. mín
Framarar eru ósáttir með dómgæsluna Var brotið á Simon Tibbling og ekkert dæmt, en svo er dæmt á Freysa fyrir að mér sýndist minni sakir.
21. mín
færi hjá Gísla Eyjólfs Skagamenn fá ódýra aukaspyrnu á vinstri kantinum.

Gummi á fyrirgjöf sem ratar á Gísla Eyjólfs en hann nær ekki almennilega skoti og boltinn endar í fanginu á Viktori
18. mín
Góð sókn hjá Fram Glæsilegur langur bolti hjá Vuk á Freysa sem var einn á hægri kantinum.

Hann á flotta fyrirgjöf sem mér fannst Atli átt að gera betur en hittir hann ekki.

Vuk fær svo boltann vinstra megin, gefur fyrir sem endar með skoti sem fór hátt yfir hjá Kyle

En flott og hröð sókn hjá heimamönnum
16. mín
Meira jafnvægi núna Skaginn er vaknaður og meira jafnræði með liðunum
14. mín
Markús kemur aftur inná Allt í góðu með hann
11. mín
Markús meiddur Liggur á vellinum og búið að stöðva leikinn, vonandi ekkert alvarlegt.

Fékk Viktor Frey í sig og leit ekki út fyrir að vera þægilegt.
7. mín
Hálfæri hjá Þorra Boltinn berst til hans inn í teig eftir hornspyrnu en hann hittir boltann ekki alveg nógu vel og framhjá markinu

En heimamenn eru grimmir
6. mín
Heimamenn eru að byrja vel Framarar eru líklegri þessa stundina og önnur hornspyrna á leiðinni
3. mín
Fram vinnur horn Fín sókn hjá Frömurum, gott samspila á milli Freysa og Atla sem uppsker hornspyrnu

Freysi á fína spyrnu sem ratar á kollinn á Sigurjóni en þægilega yfir markið
1. mín
Leikur hafinn
Það eru gestirnir sem sparka þessum leik af stað
Fyrir leik
Styttist í fjörið Liðin eru að labba inn á völlinn
Fyrir leik
Gísli Eyjólfsson
Fyrir leik
Aðstæður á vellinum Það er flott veður hér í kvöld, skýjað logn og 3 gráður. Ekta íslenskt fótboltaveður.
Fyrir leik
Dómarar í kvöld Sigurður Hjörtur Þrastarson verður með flautuna í kvöld.
Patrekur Freyr Guðmundsson og Eðvarð Þór Eðvarðsson eru aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er Gunnar Oddur Hafliðason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Spámaður vikunnar Spámaður vikunnar er Sigurður Bjartur Hallsson sem hélt út í atvinnumennsku nýlega eftir stórkostlegt tímabil með FH.



Fram 0 - 1 ÍA (19:30 á sunnudag)
ÍA hefur sankað að sér reynslu miklum mönnum í vetur, þeir munu njóta góðs af þeirri reynslu og loka þessum leik. Gísli Eyjólfs mun skora eina mark leiksins og stimpla sig aftur inn í Bestu deildina eftir þriggja ára fjarveru.



Fyrir leik
Ríkjandi meistarar í pílu Fyrr í vetur þá unnu þeir Viktor Jónsson og Jón Gísli Eyland pílumót fótbolta.net.

Margir hafa verið að spá því að Viktor Jónsson verði markahæstur í sumar miðað við þá þjónustu sem búist er við að hann fái fyrir framan markið í sumar.

Hann er einn besti framherji deildarinnar og ég ætla að leyfa mér að fullyrða einn besti pílukastari landsins líka.

Viktor og Jón Gísli þið þurfið að hitta undirritaðan eftir leik og taka á móti smá glaðning frá Fótbolta.net

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Meira um ÍA Skagamenn sátu ekki á höndum sér á leikmannamarkaðnum í vetur og fengu til sín stór nöfn og má þar helst nefna Gísla Eyjólfsson, Guðmund Þórarinsson og Böðvar Böðvarsson sem allir koma til með að spila stórt hlutverk fyrir liðið í sumar.

Skaginn ætlar sér stóra hluti í sumar og setja vonbrigði síðasta tímabils í baksýnisspegilinn.

Komnir
Gísli Eyjólfsson frá Halmstad
Guðmundur Þórarinsson frá Noah
Böðvar Böðvarsson frá FH
Rafael Máni Þrastarson frá Fjölni
Markús Páll Ellertsson frá Ítalíu
Hilmar Elís Hilmarsson frá Fjölni (var á láni)

Farnir
Albert Hafsteinsson orðinn spilandi þjálfari Kára
Marko Vardic til Grikklands
Hlynur Sævar Jónsson í Fylki
Guðfinnur Þór Leósson í Fylki
Jonas Gemmer til Danmerkur
Arnór Valur Ágústsson í Leikni á láni
Birnir Breki Burknason í Leikni á láni
Jón Sölvi Símonarson í Breiðablik (var á láni)
Ármann Ingi Finnbogason seldur til Víkings (var á láni hjá Grindavík)
Arnleifur Hjörleifsson alfarið í Njarðvík (var á láni)
Ingi Þór Sigurðsson seldur til Grindavíkur (var á láni)
Árni Salvar Heimisson (var á láni hjá Grindavík)
Fyrir leik
Meira um Fram Fyrir tímabilið 2025 gerði sennilega ekkert lið eins góð kaup og Fram þegar það tryggði hryggjarstykkið í liðinu eins og það leggur sig.

Fyrir tímabilið kom Viktor Freyr Sigurðsson í markið, Sigurjón Rúnarsson í vörnina, Simon Tibbling á miðjuna og Vuk Oskar Dimitrijevic í sóknarlínuna en allt voru þetta með betri mönnum í Bestu deildinni í fyrra í sínum stöðum.

Það hafa ekki verið eins róttækar breytingar fyrir þetta tímabil og má þá helst nefna að Tryggvi Snær Geirsson og Guðmundur Magnússon yfirgáfu liðið.

Helstu viðbætur eru þeir Atli Þór Jónasson sem kemur til liðsins á láni frá Víkingi og Ægir Jarl Jónasson frá Danmörku.

Framarar eru með góðan hóp og marga góða leikmenn og nú þarf bara að reyna að taka næsta skref.

Liðið gæti komið á óvart ef hinn ungi og efnilega Freyri Sigurðsson eða AKA hinn Hornfirksi Messi tekur það skref í sumar sem margir búast við af honum. Hann var frábær í sínum fyrsta alvöru leik tímabilsins á móti Víkingi sem lofar mjög góðu fyrir framhaldið.



Komnir
Ægir Jarl Jónasson frá Danmörku
Atli Þór Jónasson frá Víkingi á láni
Sigurjón Daði Harðarson frá Fjölni
Bjarni Páll Linnet Runólfsson frá Aftureldingu
Óliver Elís Hlynsson frá ÍR (var á láni)
Sigfús Árni Guðmundsson frá Þrótti (var á láni)
Egill Otti Vilhjálmsson frá Fjölni (var á láni)
Þengill Orrason frá Fjölni (var á láni)

Farnir
Tryggvi Snær Geirsson í Þrótt R
Alex Freyr Elísson í Njarðvík og svo NSÍ Runavík
Bjarki Arnaldarson frá Fram (var á láni)
Guðmundur Magnússon í Njarðvík (var á láni hjá Breiðabliki)

Fyrir leik
Spáin fyrir ÍA Skaginn hefur styrkt hópinn verulega í vetur og ætti að öllu jöfnu að vera mun öflugri en í fyrra.

Liðið var lengst af í fallbáráttu í fyrra og spilaði langt undir væntingum en góður lokakafli tryggði liðinu áframhaldandi veru í Bestu deild

Fyrir leik
Spáin fyrir Fram Frömurum er spáð í 8. sæti í ár en liðið endaði í efri hluta töflunar eftir skiptingu í fyrr og hafa oft verið betri en spár gerðu ráð fyrir eins og í fyrra

Það má aldrei vanmeta Fram það er bara svoleiðis

Fyrir leik
Besta deildin er loksins byrjuð Kæru áhorfendur verið velkomin í beina textalýsingu þegar Fram fær ÍA í heimsókn í Dal Draumanna klukkan 19.30.

Þetta er lokaleikurinn í fyrstu umferðinni í Bestu og munu öll önnur úrslit liggja fyrir áður en flautar verður til leiks hér í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
3. Johannes Vall
5. Baldvin Þór Berndsen
7. Haukur Andri Haraldsson
8. Guðmundur Þórarinsson
9. Viktor Jónsson (f)
11. Gísli Eyjólfsson
17. Gísli Laxdal Unnarsson ('68)
21. Böðvar Böðvarsson
25. Markús Páll Ellertsson ('74)
66. Jón Gísli Eyland Gíslason
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Logi Mar Hjaltested (m)
15. Gabríel Snær Gunnarsson ('74)
18. Rafael Máni Þrastarson
20. Ísak Máni Guðjónsson
22. Ómar Björn Stefánsson ('68)
26. Matthías Daði Gunnarsson
27. Brynjar Óðinn Atlason
32. Jón Breki Guðmundsson
87. Styrmir Jóhann Ellertsson

Liðsstjórn:
Lárus Orri Sigurðsson (Þ)
Aron Ýmir Pétursson
Teitur Pétursson
Dean Martin
Dino Hodzic
Mario Majic
Salvar Georgsson
Andri Freyr Eggertsson

Gul spjöld:
Gísli Eyjólfsson ('30)
Johannes Vall ('80)
Haukur Andri Haraldsson ('81)
Lárus Orri Sigurðsson ('81)
Viktor Jónsson ('86)
Ísak Máni Guðjónsson ('87)

Rauð spjöld: