Rauðu djöflarnir ætla að sannfæra Anderson á HM - Arsenal og Man City berjast um Mingueza - Real Madrid vill Schlotterbeck
Besta deildin
Fram
69' 1
3
ÍA
Besta deildin
Valur
LL 1
2
Þór
Besta deildin
KR
LL 3
2
Keflavík
Besta deildin
KA
LL 2
3
Stjarnan
KA
2
3
Stjarnan
0-1 Emil Atlason '4
0-2 Örvar Eggertsson '13
Birgir Baldvinsson '33 1-2
1-3 Emil Atlason '57
Jakob Héðinn Róbertsson '59 2-3
12.04.2026  -  17:00
Greifavöllurinn
Besta deildin
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Byrjunarlið:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
2. Birgir Baldvinsson ('77)
4. Rodrigo Gomes Mateo
8. Jeppe Pedersen
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
14. Danijel Dejan Djuric
17. Samuel Karl Kroon ('77)
23. Markús Máni Pétursson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
29. Jakob Snær Árnason
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
1. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
3. Kári Gautason
9. Sveinn Margeir Hauksson
16. Jakob Héðinn Róbertsson
19. Breki Hólm Baldursson ('77)
20. Diego Montiel ('77) ('78)
21. Mikael Breki Þórðarson
44. Valdimar Logi Sævarsson ('78)
91. Snorri Kristinsson

Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)
Atli Sveinn Þórarinsson
Halldór Hermann Jónsson
Tryggvi Björnsson
Egill Daði Angantýsson
Nicklas Cleemann Rulle

Gul spjöld:
Jeppe Pedersen ('22)

Rauð spjöld:
97. mín
Gott skot Hallgrímur fær boltann rétt utan teigs og snýr honum á fjær en rétt framhjá.
96. mín
Síðasta mínmútan KA þarf að skora en hægja á leiknum. Senda svo boltann út af. Þetta er að fjara út.
93. mín
Aukaspyrna Stjarnan fær aukaspyrnu rétt utan teigs nánast fyrir miðju. Emil tekur spyrnuna og setur hann rétt yfir.
92. mín
Tékk Boltinn berst upp völlinn vinstra megin og Steinþór kemur út en Emil Atla tékkar hann og hirðir af honum boltann. Hann nær þó ekki að nýta sér þetta og KA vinna boltann.
Leik lokið!
Stjarnan sigrar Stjarnan fer með 3 stig suður.
90. mín
Viðbótartími 6 mínútur í viðbótartíma
90. mín
4 á þrjá Stjarnan kemst 4 á móti þremur en Benedikt Waren reynir að koma boltanum á Hauk en Breki les sendinguna
87. mín
Fín sókn Hallgrímur og Sveinn Margeir spila skemmtilega í gegn og Sveinn nær skoti en beint á Árna.
84. mín
Horn KA fær horn vinstra megin. Stutt á Djuric sem á skelfilega sendingu á Guðjón sem kemur boltanum fyrir og aftur fær Djuric boltann en aftur skot beint á Árna.
82. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað KA fær aukaspyrnu rétt utan teigs vinstra megin. Hallgrímur og Djuric stilla sér upp. Hallgrímur bakkar og Djuric hittir beint á Árna sem á ekki í vandræðum með þetta skot.
78. mín
Inn:Valdimar Logi Sævarsson (KA) Út:Diego Montiel (KA)
Stutt gaman Montiel farinn strax útaf eftir að hafa lent í slæmu samstuði. Vonandi ekki alvarlegt.
78. mín
Meiðsli Montiel meiðist strax. Spurning hvort hann haldi áfram.
77. mín
Inn:Breki Hólm Baldursson (KA) Út:Birgir Baldvinsson (KA)
Skipting
77. mín
Inn:Diego Montiel (KA) Út:Samuel Karl Kroon (KA)
KA með tvöfalda skiptingu
75. mín
Dauðafæri báðum megin Samuel fær boltann í dauðafæri í markteig Stjörnunnar en mokar boltanum yfir. Í kjölfarið fær Guðmundur Baldvin færi við markteig KA en Steinþór ver í horn.
74. mín
Inn:Haukur Örn Brink (Stjarnan) Út:Örvar Eggertsson (Stjarnan)
Stjarnan skiptir Örvar orðinn þreyttur
73. mín
Hættulegt færi Örvar fær boltann og skýtur hátt yfir.
70. mín
Inn:Benedikt V. Warén (Stjarnan) Út:Samúel Kári Friðjónsson (Stjarnan)
Stjarnan skiptir Samúel fer út. Benedikt Waren kemur inn.
69. mín
Horn Stjarnan með horn hægra megin. Boltinn kemur fyrir og berst út á Bjarka sem á skot í varnarmann
67. mín
Frábær sókn Sveinn Margeir ber upp boltann hægra megin, leggur hann út á Djuric sem tekur hann á hælinn til Hallgríms sem er fyrir opnu marki en hittir ekki markið.
64. mín
KA skiptir Jakob er meiddur og fer út af. Sveinn Margeir kemur inn og er vel fagnað.
59. mín MARK!
Jakob Héðinn Róbertsson (KA)
2 - 3 Markús tæklar boltann inni í vítateig hjá KA og sendir á Jeppe sem sendir Jakob beint í gegn sem skorar örugglega framhjá Árna í markinu. Jakob gerði virkilega vel að halda varnarmanni Stjörnunnar frá sér í hlaupinu.
58. mín
Skalli yfir Birgir kemur upp vinstra megin og fær fína sendingu sem hann skallar yfir markið
57. mín MARK!
Emil Atlason (Stjarnan)
Mark hjá Emil Bjarni byrjar vel. Kemur með góða sendingu sem kemur Örvari í gegn hægra megin. Örvar leggur hann fyrir markið á Emil sem á ekki í vandræðum með að skora framhjá Steinþóri.
55. mín
Tvöföld skipting Stjarnan skiptir tveimur leikmönnum. Fá ferska fætur inn
55. mín
Inn:Örvar Logi Örvarsson (Stjarnan) Út:Guðmundur Kristjánsson (Stjarnan)
55. mín
Inn:Bjarki Hauksson (Stjarnan) Út:Ibrahim Turay (Stjarnan)
55. mín Gult spjald: Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan)
Brot Stoppar hraða sókn
53. mín
Stungusending Hans kemur sér í vandræði en bjargar sér með því að senda á Steinþór sem mistekst að lyfta boltanum fram en það kemur ekki að sök því boltinn fer í gegnum alla miðjuna og beint fyrir fætur Jakobs sem brunar inn í teig en á skot langt yfir markið. Þarna mátti gera betur.
51. mín
Góð sókn Markús sendir Jakob í gegn hægra megin og kemst hann upp að endalínu og rennir boltanum fyrir markið en Djuric er of seinn þannig að Stjörnumenn bjarga í horn sem ekkert verður úr.
48. mín Gult spjald: Ibrahim Turay (Stjarnan)
Gult á Ibrahim Ibramhim tekur skemmtilegan þríhyrning en missir boltann aðeins of langt frá sér og tæklar Hans sem er á undan í boltann.
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikur Stjarnan byrjar seinni hálfleikinn.
45. mín
Staðan innan Akureyrar Eftir þessa fyrstu hálfleika Akureyrarliðanna er Þór með eitt stig á meðan KA menn eru undir í sínum leik.
45. mín
Hálfleikur
Staðan 1 - 2 Fyrri hálfleikur hefur verið köflóttur þar sem liðin hafa skipst á að pressa hátt og reyna að ná inn mörkum. KA menn frekar ósáttir við dómgæsluna bæði varðandi mark sem var dæmt af vegna óljósrar rangstöðu svo ekki sé meira sagt og vegna brota sem voru lítilvæg.

En von er á líflegum seinni hálfleik.
45. mín
Horn x 4 Guðjón æðir upp hægra megin og reynir svo sendingu á fjær en gestir bjarga í horn, upp úr horninu fá KA annað horn nú hægra megin. Boltinn berst út á Hallgrím sem dansar með hann og fær horn. Danijel Djuic fær boltann leggur hann út í skot og fjórða hornið staðreynd,. Boltinn fer í útspark og um leið flautað til hálfleiks.
40. mín
Aukaspyrna við vítateiginn Stjörnumenn fá aukaspyrnu við vítateiginn hægra megin. Fyrirgjöf sem Steinþór slær í burtu en beint á Birni sem á skot sem er varið af varnarmanni.
39. mín
Horn Hallgrímur brýst upp vinstra megin og uppsker horn sem er tekið stutt og svo fyrirgjöf sem endar með skalla yfir markið.
35. mín
Allt brjálað Dómarinn dæmir brot á Rodri sem virðist vera rangt en hann ræður. KA menn allt annað en hressir
33. mín MARK!
Birgir Baldvinsson (KA)
Horn og pressa Danijel Djuric tekur horn sem er skallað frá en KA heldur pressunni og boltinn berst til Birgis frá Guðjóni sem leggur hann í fjærhornið. Vel spilað og verðskuldað mark eftir pressu.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Skot Enn á ný ógnar Hallgrímur Mar með góðu skoti neðst vinstra megin á markinu en Árni sér við honum og ver út til hliðar. Enginn KA maður mættur í frákastið.
29. mín
Pressa Aftur ná KA menn upp smá pressu á gestina og ná fyrirgjöfum sem eru skallaðar frá. Að lokum losar Stjarnan pressuna og kemst ofar á völlinn
25. mín
Orrahríð KA kemur vel upp völlinn og nær að koma þremur skotum, sem tvö eru varin af varnarmönnum og það þriðja frá Hallgrími endar í höndunum á Árna. Þarna var lag að gera aðeins betur.
22. mín Gult spjald: Jeppe Pedersen (KA)
Brot í skyndisókn KA menn komast upp að teignum en Stjörnumenn vinna boltann og þræða hann í gegnum miðju KA á Örvar sem geysist af stað en Jeppe nær honum og tekur hann niður. Þeir voru að nálgast það að vera 2 á 2.
20. mín
Pressa hjá Stjörnunni STjörnumenn halda þungri pressu þessa stundina á KA og fá allan þann tíma sem þeir vilja með boltann. KA menn frekar langt frá mönnum þannig að þeir ná ekki að "klukka" stjörnumennina.
17. mín
Hornið Ekkert verður úr horninu og KA geysist upp en Stjörnumenn bjarga í innkast.
17. mín
Horn Birnir fær boltann inni í teig vinstra megin og KA menn bjarga í horn.
15. mín
Horn og gott skot KA menn sækja upp vinstra megin og uppskera horn. Boltinn berst út á Hallgrím sem á gott skot en rétt framhjá.
13. mín MARK!
Örvar Eggertsson (Stjarnan)
Stjarnan eykur forskotið Stjörnumenn koma boltanum inn á Emil í teignum sem fær góðan tíma til að athafna sig og kemur boltanum Birni sem sendir á Örvar sem er einn á fjærstönginni og leggur boltann auðveldlega í markið.
10. mín
Mark - rangstaða Samuel Kroon kemur boltanum yfir marklínuna eftir góða fyrirgjöf frá Jakobi Héðni og klafs í teignum í kjölfarið og sendingu frá Guðjóni. KA menn langt frá því að vera sáttir með
7. mín
Heimta víti KA menn með fyrirgjöf frá hægri í hönd Stjörnumanns. Dómarinn metur það ekki sem víti.
5. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað KA menn láta markið ekki á sig fá, bruna upp og fá aukaspyrnu rétt utan vítateigs sem Hallgrímur Mar tekur en Árni Snær grípur boltann örugglega.
4. mín MARK!
Emil Atlason (Stjarnan)
Skyndisókn KA menn glutra boltanum á vallarhelmingi Stjörnunnar og svo verður misskilningur í vörninni og Sindri stingu boltanum inn á Emil sem kemst einn á móti Steinþóri og leggur hann í markið.

Hallgrímur og Rodrigo hefðu betur talað saman þarna í stað þess að láta boltann fara.
2. mín
KA byrjar betur Fyrstu mínúturnar pressar KA ofarlega á vellinum og neyðir Stjörnuna í langa bolta sem varnarmenn KA hirða
Fyrir leik
Fyrir leik
Leikur hafinn
Byrjað KA spilar til vesturs og byrjar með boltann og Stjarnan þá væntanlega til austurs í fyrri hálfleik. KA í sínum gulu og bláu búningum og Stjarnan í sínum Bláu og hvítu búningum.
Fyrir leik
Spáin KA hefur verið spáð um miðja deild og oft 7. sætinu sem þýðir forsetabikarinn enn eitt árið. KA menn stefna örugglega að því að vera í efri hlutanum rétt eins og öll hin liðin. KA hefur þó meiri burði til þess en mörg önnur eftir frekar öfluga styrkingu í vetur.

Stjarnan er oft sett í 3. sætið en eins og KA þá stefna þeir ofar. Vilja sýna að þeir geti gert tilkall til titilsins.

Það er a.m.k. ljóst að bæði lið stefna hærra en spáin og KA verður eflaust ósáttara ef spáin gengur eftir. Stjörnumenn gætu orðið sáttir með 3. sætið ef þeir eru í titilbaráttu til loka.
Fyrir leik
Liðin eru komin út á völl. Jæja.. Loksins, eftir hið eilífa undirbúningstímabil er Besta Deildin loksins að byrja. KA tekur á móti Stjörnunni og bæði lið vilja byrja tímabilið með sigri, þannig að vonandi verður þetta skemmtilegur leikur.
Fyrir leik
Strax breyting Miðað við upphitun liðanna er Jakob Snær Árnason fjarri góðu gamni vegna meiðsla og Jakob Héðinn Róbertsson kemur í hans stað.
Fyrir leik
KA menn að bæta við sig. Sögur ganga um að Oliver Heiðarsson sem var nánast genginn til liðs við Keflavík sé á leiðinni norður í KA. Það er góð viðbót við hópinn hjá KA sem var fyrir það byrjaður að líta ansi vel út.
Fyrir leik
Aðstæður Á Akureyri var frekar kalt í morgun og smá slydda en það telst til tíðinda ef hér er hiti fyrir neðan frostmark. Það hefur heldur hitnað í veðri og golan sem var í morgun er farin suður sem og kuldinn.

Miðað við árstíma þá verður bara að segjast að aðstæður eru fínar.
Fyrir leik
Akureyrarslagurinn Það er mikil pressa á KA að byrja betur en Þór þannig að þeir hafi montréttinn sunnan Glerár. Þórsurum mun líða gríðarlega vel alla þá daga í sumar sem þeir verða ofar en þeir gulu og bláu. Það er alveg ljóst að KA telur sig vera betra liðið á Akureyri og mun ekki una Þórsurum því að vera fyrir ofan sig.
Fyrir leik
Komnir og farnir Stjarnan Það hafa orðið minni mannabreytinar hjá Stjörnunni en KA en Stjarnan hefur fengið 4 en misst 8 leikmenn annað. Sá sem mest kemur til með að mæða á er væntanlega Birnir Snær sem kom frá KA og er því að koma aftur hingað norður eftir stutt en árangurríkt haust í fyrra.

Steven Caulker er farinn sem og Adolf Daði. Gengi Stjörnunnar batnaði verulega með komu Caulker í fyrra og því er stór spurning hvort þeir hafi fundið arftaka fyrir hann sem drífur liðið áfram. Ítarlegur listi yfir komna og farna er hér að neðan.

Stjarnan
Komnir
Birnir Snær Ingason frá KA
Darri Bergmann Gylfason frá Augnabliki
Gustav Kjeldsen frá Vestra
Sveinn Sigurður Jóhannesson frá Val

Farnir
Adolf Daði Birgisson í FH
Steven Caulker hættur og farinn til Tyrklands
Þorlákur Breki Baxter til Keflavíkur (var á láni hjá ÍBV)
Baldur Logi Guðlaugsson til Keflavíkur
Sigurður Gunnar Jónsson í HK (lán)
Andri Adolphsson hættur
Aron Dagur Birnuson í Þrótt R. (á láni)
Tristan Freyr Ingólfsson í Gróttu
Fyrir leik
Komnir og farnir KA Hjá KA haf orðið talsverðar mannabreytingar á hópnum. 15 eru komnir en 10 hafa leitað á önnur mið.

Helstu breytingar eru eflaust að Ívar Örn og Birnir Snær yfirgáfu KA en einnig fóru Viðar Örn og Andri Fannar. Það verður erfitt að fylla í skörð þeirra en KA hefur gert vel í að reyna það með því að fá Danijel Dejan Djuric frá Króatíu og þá Montiel og Jeppe Pedersen frá Vestra. Einnig gæti endurkoma Sveins Margeirs norður yfir heiðar reynst happafengur fyrir KA ef hann nær sér að fullu eftir veikindin sem hafa hrjáð hann.

Hér fyrir neðan er svo ítarlegur listi yfir komna og farna hjá KA.

KA
Komnir
Danijel Dejan Djuric frá Króatíu
Diego Montiel frá Vestra
Jeppe Pedersen frá Vestra
Samuel Kroon frá Svíþjóð
Sveinn Margeir Hauksson frá Víkingi á láni
Jakob Héðinn Róbertsson frá Völsungi
Breki Hólm Baldursson frá ÍR (var á láni)
Ívar Arnbro Þórhallsson frá Völsungi (var á láni)
Kári Gautason frá HK (var á láni)
Ívar Logi Jóhannesson frá Hetti
Þórhallur Ási Aðalsteinsson frá Hetti
Dagbjartur Búi Davíðsson frá Þór (var á láni)
Bjarki Fannar Helgason frá Hetti/Hugin (var á láni)
Árni Veigar Árnason frá Hetti/Hugin (var á láni)

Farnir
Ívar Örn Árnason í Breiðablik
Birnir Snær Ingason í Stjörnuna
Bjarni Aðalsteinsson til Danmerkur
Marcel Römer til Danmerkur
Ingimar Torbjörnsson Stöle til Vals
Jonathan Rasheed til Gautaborgar
Viðar Örn Kjartansson á Selfoss
Andri Fannar Stefánsson í Magna
Fyrir leik
Siggi Hall spáir 1-0 Sigurður Bjartur Hallsson, fyrrum leikmaður FH, spáir í umferðina:
Daníel Djuric mun setja eina mark leiksins úr víti, hann mun fagna í andlit stuðningsmanna Stjörnunnar með ögrandi hætti sem mun vera sögulína leiksins. Skrítin orka yfir Stjörnu liðinu og það mun ekki breytast um helgina.

   09.04.2026 12:00
Siggi Hall spáir í 1. umferð Bestu deildarinnar
Fyrir leik
Upphitun í útvarpsþættinum
Fyrir leik
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skiptastjóri Play er með flautuna. Kristján Már Ólafs og Þórður Arnar með flöggin.
Fyrir leik
KA - Stjarnan í fyrstu umferð Bestu deildarinnar
Mynd: Fótbolti.net


17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
3. Gustav Kjeldsen
5. Guðmundur Kristjánsson (f) ('55)
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson ('74)
8. Jóhann Árni Gunnarsson
10. Samúel Kári Friðjónsson ('70)
11. Birnir Snær Ingason
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
21. Ibrahim Turay ('55)
22. Emil Atlason
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
1. Darri Bergmann Gylfason (m)
14. Bjarki Hauksson ('55)
17. Haukur Örn Brink ('74)
20. Alpha Conteh
23. Benedikt V. Warén ('70)
30. Markús Andri Daníelsson Martin
32. Örvar Logi Örvarsson ('55)
33. Bjarki Hrafn Garðarsson
99. Andri Rúnar Bjarnason

Liðsstjórn:
Jökull I Elísabetarson (Þ)
Alex Þór Hauksson
Rajko Stanisic
Egill Atlason
Hákon Ernir Haraldsson
Garpur I Elísabetarson
Hrannar Bogi Jónsson

Gul spjöld:
Ibrahim Turay ('48)
Guðmundur Baldvin Nökkvason ('55)

Rauð spjöld: