Fotbolti.net
Hafþór Örn Laursen
Hafþór Örn Laursen
Mjólkurbikar karla
Egilshöll
ÍR
ÍR
2 - 3
Afturelding
Afturelding
0 - 152' Joacim Emil Godhei Holtan0 - 257' Joacim Emil Godhei Holtan0 - 374' Óðinn BjarkasonStefán Þór Pálsson 76'1 - 3Guðjón Máni Magnússon 83'2 - 3
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Helgi Þór Gunnarsson
Leik lokið!
+8


Afturelding verðskuldaðir sigurvegarar, en ÍR eru búnir að berjast eins og naut.

Þeir fara í heimsókn í Kórinn og mæta Ými í 32-liða úrslitum.

Skýrsla og viðtöl koma á eftir
90. mín
+8
Hornspyrna fyrir ÍR
ÍR
90. mín
+6

Bergvin Fannar Helgason

Fer aðeins of seint í tæklingu
90. mín
+5
ÍR-ingar pressa mikið og eru að leita að þessu marki til að koma þeim í framlengingu
90. mín
Sigurður orðinn eitthvað pirraður og sparkar í Joachim Emil. Þeir fá aðra aukaspyrnu
89. mín
Afturelding fær aukaspyrnu á hættulegum stað
Elmar tekur hana stutt og ÍR hreinsa
Afturelding
88. mín
Gult spjald

Daníel Darri Þorkelsson

Fyrir leiktöf
ÍR
83. mín
Við erum með leik!!!

Guðjón Máni Magnússon

Guðjón fær boltann, tekur snúning og dúndrar knettinum! Hann fer í varnarmann og ruglar markmanninn í rýminu! 2-3!!
82. mín
Góð sókn hjá Aftureldingu. Vilhelm ver vel eftir skot frá Elmari og boltinn fer í horn.

Boltinn fer nánast inn beint úr horninu en þeir fá hornið hinum megin.

Bart skallar honum svo útaf
Afturelding
78. mín
InnBart Kooistra
ÚtBirkir Már Sævarsson
Frábær frumraun hjá Birki Má. Verður gaman að fylgjast með honum í sumar
Afturelding
78. mín
InnDaníel Darri Þorkelsson
ÚtÓðinn Bjarkason
77. mín
Joachim nær sendingu á Enes sem er í príma færi en skýtur honum hreinlega útaf
ÍR
76. mín
Þeir ná marki til baka!

Stefán Þór Pálsson

Stefán Þór með flott skot nálægt markinu hægra megin! Ætli þeir nái að koma til baka?
Afturelding
74. mín
0-3!!

Óðinn Bjarkason

Sýnist Afturelding búnir að klára þetta! Frábært skot frá Óðni úr D-boganum!
71. mín
Sé ekki hver það er en leikmaður Aftureldingar liggur niðri í teignum .eirra, virðist halda um hnéð
70. mín
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Afturelding
69. mín
Gult spjald

Joacim Emil Godhei Holtan

Fyrir að trufla aukaspyrnu
ÍR
65. mín
InnStefán Þór Pálsson
ÚtAndré Musa Solórzano Abed
ÍR
65. mín
InnGuðjón Máni Magnússon
ÚtÓliver Andri Einarsson
ÍR
65. mín
InnHrafn Hallgrímsson
ÚtVíðir Freyr Ívarsson
Afturelding
63. mín
InnTrausti Þráinsson
ÚtJón Vignir Pétursson
62. mín
ÍR fær horn
Ekkert kemur úr því
58. mín
Birkir Már með stoðsendingu í kvöld
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Afturelding
57. mín
Þau eru orðin tvö!

Joacim Emil Godhei Holtan (stoðsending: Óðinn Bjarkason)

Óðinn gerir vel að komast inn í teig, rennur honum fyrir framan Joachim Emil sem sneiðir honum inn í markið!
Afturelding
52. mín
Afturelding eru komnir yfir!

Joacim Emil Godhei Holtan (stoðsending: Birkir Már Sævarsson)

Birkir Már fær boltann hægra megin og ef mér skjátlast ekki þá nær hann sendingunni á Joachim Emil sem hittir hann fullkomnlega!
47. mín
Horn fyrir ÍR
Heimamenn fá hornspyrnu, sem Emil Nói tekur.

Afturelding ná að hreinsa
46. mín
Leikur hafinn
Seinni er hafinn, held það hafi ekki verið neinar breytingar á liðunum
45. mín
Hálfleikur
Tilvalið að næla sér í pizzusneið og gos í sjoppunni!
45. mín
+4
Kristján Atli reynir skot af löngu færi eftir bolta frá Víði Frey en boltinn fer hátt yfir
45. mín
+3
Aron Elí nær frábærri skiptingu yfir á Joachim Emil sem tekur skotið en Vilhelm ver frábærlega!
45. mín
+2
Sýnist það Emil Nói sem nær skot á mark, en virkar laust og Arnar Daði tekur boltann upp
43. mín
Bergvin Fannar liggur niðri og þar á aðhlynningu að halda, en fær svo grænt ljós og heldur áfram
42. mín
Elmar fær boltann og er kominn einn í gegn en Vilhelm gerir frábærlega og ver þetta í hornspyrnu!
42. mín
Birkir reynir fyrirgjöfina á Elmar sem skýtur framhjá
34. mín
Afturelding fær annað horn
Vel gert hjá Vilhelm sem grípur boltann
ÍR
32. mín
Gult spjald

André Musa Solórzano Abed

André fær gula spjaldið fyrir að tækla Óðinn
ÍR
30. mín
Gult spjald

Óliver Andri Einarsson

Óliver fær gult eftir tæklingu á Bjart Bjarma
28. mín
Vááááá hvað heimamenn eru nálægt því að skora! Boltinn sneiðaður til Ólivers Andra sem reynir fyrirgjöfina en boltinn fer í varnarmann Afturledingar og ÍR fá horn!
26. mín
Heimamenn vilja víti en Bergvin Fannar virðist vera felldur en ekkert dæmt
21. mín
Kristján Atli reynir skot af löngu færi en boltinn fer hátt yfir
20. mín
Annað horn fyrir gestina
Elmar tekur spyrnuna, sem ratar á kollinn hans Arons Elís en allt kemur fyrir ekki og ÍR hreinsa
ÍR
15. mín
InnAndré Musa Solórzano Abed
ÚtÁgúst Unnar Kristinsson
Ágúst Unnar fer snemma útaf vegna einhvers hnjasks, sá reyndar ekki hvað gerðist en inná kemur André Musa
11. mín
Aufturelding fær aukaspyrnu
Flottur bolti hjá Elmari inn í teig en skallinn ekki eins góður sem fer hátt upp í loft sem Vilhelm
7. mín
Afturelding búnir að vera duglegir að halda boltanum, en samt frekar jafnt eins og er
1. mín
Afturelding í dauðafæri eftir 20 sekúndur og fá horn, boltinn skallaður útaf og þeir fá annað horn sem þeir ná ekki að nýta
1. mín
Leikur hafinn
Fyrir leik
Liðin eru komin út á völl, og nú fer veislan bráðlega að hefjast
Fyrir leik
Liðin eru mætt inná að æfa, og skemmtilegt að sjá að Birkir Már er
í byrjunarliði Aftureldingar og munu hann og bróðir hans, Aron Elí byrja leikinn saman!
Fyrir leik
Leikurinn í beinni
Fyrir leik
Afturelding á undirbúningstímabilinu
Afturelding lentu í riðli með Gróttu, ÍA, Val, Völsung sem drógu sig seinna úr keppni, og Þór. Þeir lentu síðan í 4. sæti, eftir að hafa sigrað ÍA 1-2 og Gróttu 2-0. Þeir töpuðu svo leikjum sínum gegn Val 4-0 og Þór 5-0.
Fyrir leik
ÍR á undirbúningstímabilinu
ÍR fengu erfiðan riðil í Lengjubikarnum og voru með liðum á borð við Víking, KR og KA í riðli, og lentu í 4. sæti. Þeir sigruðu KA og Grindavík á heimavelli, 4-0 og 3-2. Þeir gerðu gríðarlega sterkt jafntefli við KR og töpuðu gegn Njarðvík og Víking, 3-1 og 2-0.
Fyrir leik
Spá fyrir Lengjudeildina
Í seinustu viku var uppfært Lengjuspánna, en í henni er spáð ÍR 6. sæti og Aftureldingu 5. sæti
Fyrir leik
Sigurvegari þennan leiks fær Ými í heimsókn, en Ýmismenn tóku á móti Eyjamönnum KFS og algjörlega rústuðu þeim, en sá leikur fór 10-0 Ými í vil!
Fyrir leik
Dómarar
Dómari leiksins er enginn annar en Helgi Mikael Jónasson.

Honum til aðstoðar verða Tomasz Piotr Zietal og Kristofer Bergmann.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Afturelding í bikarnum í fyrra
Afturelding komust alla leið í 8-liða úrslit í fyrra og byrjuðu herferðina sína gegn Hetti/Huginn á Malbikstöðinni, þar sem heimamenn báru 5-0 sigur að býtum.

Næsti leikur var heimsókn á Skagann gegn ÍA, en þar sigraði Afturelding nauman 1-0 sigur.

Þeir fengu svo Framara úr Úlfársdal í heimsókn, en þeir sigruðu 0-1
Fyrir leik
ÍR í bikarnum í fyrra
ÍR-ingar spiluðu fyrsta leikinn sinn í Mjólkurbikarnum í fyrra gegn Augnabliki og áttu ekki erfitt með þá, þar sem leikurinn fór 0-5, ÍR-ingum í vil.

Í umferðinni eftir á fóru þeir í heimsókn í Bogann á Akureyri, en þar töpuðu þeir gegn Þórsurum 3-1.
Fyrir leik
Afturelding í félagsskiptaglugganum
Afturelding hafa verið virkari í glugganum, en athygli vakti á því að Birkir Már Sævarsson hefði skrifaði undir samning við Mosfellingana, 41 árs að aldri.

Komnir
Birkir Már Sævarsson frá Svíþjóð
Joacim Holtan frá Noregi
Óðinn Bjarkason frá KR (var á láni hjá ÍR)
Jón Vignir Pétursson frá Selfossi
Daníel Darri Þorkelsson frá KFG
Kristján Hjörvar Sigurkarlsson frá Kára
Bart Kooistra frá HK

Farnir
Hrannar Snær Magnússon til Noregs
Jökull Andrésson í FH
Aron Jóhannsson hættur
Oliver Sigurjónsson hættur
Aron Jónsson í FH
Arnór Gauti Ragnarsson hættur
Þórður Gunnar Hafþórsson í Vestra
Bjarni Páll Linnet Runólfsson í Fram

Samningslausir
Benjamin Stokke
Sigurpáll Melberg Pálsson
Luc Kassi
Mynd: Afturelding

Fyrir leik
ÍR í félagssskiptaglugganum
ÍR-ingar hafa fengið nokkra leikmenn en losað sig við fleiri, þ.á.m Marc McAusland og Renato Punyed.

Komnir
Jón Arnar Sigurðsson frá KR
Halldór Atli Kristjánsson frá Augnabliki
André Solórzano frá Hetti
Orri Bjarkason frá Breiðabliki á láni

Farnir
Marc Mcausland í Víði
Reynir Haraldsson hættur
Breki Hólm Baldursson í KA (var á láni)
Óðinn Bjarkason í Aftureldingu (var á láni frá KR)
Gils Gíslason í FH (var á láni)
Gabríel Aron Sævarsson í Hauka (á láni frá Blikum)
Óliver Elís Hlynsson í Fram (var á láni)
Gúndur Elllingsggaard Petersen
Renato Punyed Dubon

Samningslausir
Alexander Kostic
Stefán Þór Pálsson
Mynd: ÍR

Fyrir leik
Seinasta viðureign þessa liða
Seinast mættu þessi lið í Lengjubikarnum 2025, en þar sigruðu ÍR-ingar 3-1. Því miður, þá get ég ekki séð á hinni margrómuðu vefsíðu KSÍ hvar liðin enduðu í riðlinum sínum!
Fyrir leik
Bikarinn
Heimamenn í ÍR eru að spila sinn fyrsta leik í Mjólkurbikarnum þetta árið, og lentu í 4. sæti í riðli sínum í A-deild Lengjubikarsins, þar sem þeir unnu leiki gegn KA og Grindavík, gerðu jafntefli við KR og töpuðu gegn Njarðvík og Víkingi.

Afturelding eru líka að keppa sinn fyrsta leik í bikarnum í ár, en þeir enduðu í 4. sæti í sínum riðli í Lengjubikarnum. Þar unnu þeir sigra gegn ÍA og Gróttu, og töpuðu gegn Val og Þór.
Fyrir leik
Góðan daginn og verið velkomin í Egilshöllina! Hér í kvöld munum við sjá spennandi viðureign milli ÍR og Aftureldingar!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.