Leik lokið!
Fín frammistaða hjá íslenska liðinu en tap er niðurstaða. Ekkert mark kom í seinni þrátt fyrir að Ísland hafi fengið ágætt færi til þess að jafna.
Skýrslan væntanleg innan skamms.
96. mín
Gult spjald
Robin Risser
Fyrir leiktöf.95. mín
Daníel Freyr með hornspyrnuna og Lúkas Petersson af öllum í baráttu um að ná skallanum en boltinn dettur ofan á þverslánna og afturfyrir.
94. mín
Það er annar séns!
Boltinn dettur fyrir Gísla inn á teig sem leggur hann á Cosic, skotið hans í varnarmann og afturfyrir. horn.
92. mín
SLÁIN!!
Ísland með aukaspyrnuna sem þeir lyfta inn á teig og úr verður smá skallatennis. Þar til að Logi Hrafn fær boltann í frábærri stöðu en skotið hans í slánna!
Þetta var líkast til síðasti sénsinn.
91. mín
Gult spjald
Jaydee Canvot
Canvot að atast í Hilmi sem er að reyna að taka aukaspyrnu hratt.91. mín
Versini með spyrnuna en Cosic skallar frá.
91. mín
Frakkar fá horn.
90. mín
Rayan Fofana missir boltann í baráttu við Gísla Gotta og dómarinn ætlar að leyfa leiknum að halda áfram. Fofana sendir hins vegar bara inn pöntun á aukaspyrnu og fær hana fyrir alls ekki neitt.
86. mín
Danois með spyrnuna en íslenska vörnin skallar frá.
85. mín
Daníel Freyr brítur af sér og Frakkar fá aukaspyrnu á góðum stað til að koma boltanum fyrir.
84. mín
InnIsmaëlo Ganiou
ÚtChimuanya Ugochukwu
78. mín
InnTómas Johannessen
ÚtViktor Bjarki Daðason
78. mín
InnHilmir Rafn Mikaelsson
ÚtÁgúst Orri Þorsteinsson
76. mín
Afleit hornspyrna hjá Versini sem fer bara beint í hliðarnetið.
76. mín
Voðalega rólegt yfir leiknum núna. Frakkar mjög sáttir með stöðuna og Ísland ekki alveg að ná að nýta sér þessa rólyndis stemningu hjá Frökkunum.
72. mín
InnAmin Cosic
ÚtKjartan Már Kjartansson
72. mín
InnHaukur Andri Haraldsson
ÚtRóbert Frosti Þorkelsson
71. mín
InnRayan Fofana
ÚtMamadou Coulibaly
71. mín
InnKevin Danois
ÚtNoe Lebreton
67. mín
Þvílíkt kast!
Fín spyrna hjá frökkum en Lúkas kemst í boltann og grýtir svo boltanum lengst upp völlinn á Ágúst. Hann er kominn í fína stöðu til að reyna að sleppa í gegn, en er tekinn niður og ekkert dæmt.
67. mín
Frakkar fá aukaspyrnu í góðri fyrirgjafarstöðu. Nú þarf að verjast betur en í marki númer 2 hjá Frökkum.
65. mín
Viktor með skot
Fín sókn hjá íslenska liðinu. Vinnum boltann á miðjum velli og Róbert Frosti geysist fram, hann gefur boltann á Viktor Bjarka sem tekur skotið fyrir utan teig en það var ekki nógu gott og hátt yfir.
63. mín
Leikurinn mjög stopp-start þessar mínúturnar. Íslenska liðið að gera vel í að láta finna fyrir sér og töluvert af brotum á miðjum velli.
58. mín
Spyrnan aftur ekki góð, og Frakkar skalla frá.
57. mín
Gult spjald
Nathan Zeze
Ísland fær aukaspyrnu á mjög svipuðum stað og áðan. Þurfum betri sendingu inn í teig svo menn geta skallað á markið.56. mín
Góð varsla hjá Risser!
Róbert Frosti tekur frábærlega á móti löngum bolta inn í teig og hann reynir að gefa boltann fyrir. Frakkar hreinsa hins vegar en beint á Daníel Frey sem er í fínni stöðu. Hann tekur gott skot á markið en Risser ver.
55. mín
InnGiovani Versini
ÚtDehmaine Assoumani
Assoumani fer niður eitthvað skaðaður. Þetta eru líkast til góðar fréttir fyrir okkur, Assoumani búinn að vera mjög líflegur.
52. mín
Gult spjald
Daníel Tristan Guðjohnsen
Togar Bouaddi niður aftanfrá.51. mín
Assoumani reynir skotið en úr frekar slöku færi fyrir utan teig. Skotið framhjá.
50. mín
Daníel Freyr tekur spyrnuna og lyftir boltanum inn í teig en Frakkarnir skalla frá.
49. mín
Ísland fær aukaspyrnu á góðum stað fyrir fyrirgjöf. Ágúst Orri sem fiskaði hana.
46. mín
InnJúlíus Mar Júlíusson
ÚtHlynur Þórhallsson
Nei breytum ekki um kerfi, Logi fer í bakvörðinn fyrir Hlyn.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
Ein breyting hjá Íslandi í hálfleik. Við virðumst vera að fara í þriggja hafsenta kerfi.
45. mín
Hálfleikstölur 2-1 fyrir Frakklandi. Íslenska liðið búið að sýna fína takta inn á milli og það eru klárlega möguleikar í seinni. Seinna markið sem Frakkar skora er hvað mest pirrandi, algjör óþarfi að fá það á sig og hefði verið auðvelt að koma í veg fyrir það.
45. mín
+1
Venjulegum leiktíma lokið í fyrri hálfleik og það er bætt við einni mínútu.
39. mín
Rétt framhjá!
Steve Ngoura og Logi Hrafn í mikilli baráttu inn í teig. Ngoura nær að slíta sig frá og gefa sér smá pláss og tekur skotið, en þessi sem betur fer rétt framhjá stönginni.
38. mín
Búið að sjá vel um Ágúst og hann trítlar svo aftur inn á og heldur áfram leik.
36. mín
Kósovóinn stöðvar leikinn þar sem Ágúst Orri þarfnast einhverrar aðhlynningar. Virðist ekki vera neitt alvarlegt hins vegar
35. mín
Leikurinn aðeins kominn í ró, Frakkar halda boltanum mjög vel en íslenska liðið að standa aðeins þéttar síðustu mínútur.
29. mín
Varnarleikur óskast!
Nathan Zeze
Frakkarnir með djúpan bolta inn í teig úr aukaspyrnunni. Ugochukwu nær góðum skalla sem fer af stönginni og boltinn þá laus. Enginn íslenskur varnarmaður bregst við og Zeze fær að pota boltanum í markið frá svona þrem metrum.28. mín
Frakkar fá aukaspyrnu við vinstri hliðarlínuna, vonandi að þessi spyrna verður jafn slök og hornin hafa verið.
24. mín
ÖRUGGT OG ÞAÐ ER JAFNT!
Daníel Tristan Guðjohnsen
Daníel setur hann fast niður í vinstra hornið og Risser fer í hitt hornið. Gerist varla öruggara. Ísland búið að sýna betri takta síðustu fimm mínúturnar, þeir verða að halda því áfram.23. mín
Róbert Frosti reynir að fara framhjá Yoro inn í teig en boltinn fer fyrst af hendinni hans. Ekkert dæmt á það, en Daníel kemur svo á fleygiferð að ná lausa boltanum og Yoro tekur hann niður!
23. mín
Gult spjald
Leny Yoro
22. mín
ÍSLAND FÆR VÍTI!!
19. mín
Ágúst Orri með skemmtilega takta inn í teig Frakka en nær síðan ekki að finna samherja.
Alveg greinilega möguleikar fyrir Ísland í dag að gera eitthvað fram á við.
17. mín
Frakkar í góðu færi
Einfaldur fastur bolti upp hægri kantinn sem Daníel Freyr missir af. Assoumani fær þá bara að valsa inn á teiginn og tekur fast skot á nær en rétt framhjá.
15. mín
Missum boltann trekk í trekk
Íslenska liðið er að reyna að ná upp einhverju uppspili en erum mikið búnir að missa boltann á eigin vallarhelmingi. Það verður að lagast ef það á ekki að fara illa.
12. mín
Missum boltann á vondum stað
Frakkar pressa okkur á eigin vallarhelmingi og vinna boltann. Þeir koma svo boltanum á Assoumani sem er kominn inn í teig, en færið frekar þröngt hjá honum og Lúkas ver.
10. mín
Rosaleg móttaka og alvöru slútt!
Noe Lebreton (stoðsending: Dehmaine Assoumani)
Skelfileg byrjun fyrir okkur, en Assoumani fer verulega illa með Daníel Frey á kantinum, sólar hann eiginlega upp úr skónnum. Assoumani kemur svo með fyrirgjöfina aðeins fyrir aftan Lebreton en hann tekur frábærlega á móti boltanum og setur hann svo snyrtilega í netið.6. mín
Aftur fer hornspyrna Frakka í fyrsta varnarmann.
5. mín
Frakkar fá annað horn
Mjög hröð sókn hjá Frökkunum, Canvot með stungusendingu á Lebreton sem er kominn í fína stöðu inn á teig en skotið hans er varið af Lúkasi.
4. mín
Assoumani með hornspyrnuna en hún fer ekki framhjá fyrsta varnarmanni.
2. mín
Fyrsta ógn að marki
Steve Ngoura herjar á Nóel Atla, og kemst í ágæta stöðu, en skotið hans í Nóel. Frakkar fá horn.
1. mín
Þá er þetta farið af stað og það er Gísli sem tekur upphafssparkið.
Fyrir leik
Útsending hafin
Leikurinn er sýndur á Sýn Sport Ísland en nú er verið að fara með þjóðsöngva liðanna.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Það er klukkutími í leik og byrjunarliðin eru komin, þau má sjá í flipunum hér til hliðar eða í greininni hér fyrir neðan.
Fyrir leik
Síðasti leikur fór vel
Ísland mætti Eistlandi síðast og vann þann leik sannfærandi 6-2. Daníel Tristan Guðjohnsen og Viktor Bjarki Daðason skoruðu báðir tvö áður en að Hilmir Rafn Mikaelsson og Helgi Fróði Ingason gengu alveg frá leiknum. Hægt er að lesa um hann hér fyrir neðan.
Fyrir leik
Dómararnir frá Kósovo
Mervan Bejtullahu verður með flautuna í þessum leik en hann dæmir aðallega í Kósovosku deildinni. Lumturije Muhadri og Zgjim Rahimi verða aðstoðardómarar en Eridon Podvorica verður fjórði dómari. Allir eru þeir frá Kósovo.

Fyrir leik
Viðtöl eftir 6-2 sigurinn gegn Eistlandi
Ísland rúllaði yfir Eistland 6-2 á Þróttarvelli á fimmtudag. Hér má sjá viðtöl sem voru tekin eftir þann leik:
26.03.2026 20:40
Viktor Bjarki: Hef trú á að við getum unnið Frakkland
26.03.2026 20:12
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
26.03.2026 21:16
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
26.03.2026 19:27
Slátrun á AVIS vellinum
Fyrir leik
Staðan í riðlinum
Ísland er í 2. sæti riðilsins og hafa spilað sex leiki. Alls eru fjórir leikir eftir, en Ísland hefur aðeins tapað einum leik, en það var gegn Færeyjum. Frakkar eru í efsta sæti með 13 stig en aðeins úr fimm leikjum.
Allar líkur eru á því að Frakkar vinna riðilinn og fara því beint á EM en ef Ísland nær öðru sæti förum við í umspil til að komast á mótið.
Frakkland U21 Mt: 19:3 Stig: 13
Ísland U21 Mt: 13:7 Stig: 11
Sviss U21 Mt: 8:4 Stig: 11
Færeyjar U21 Mt: 6:13 Stig: 9
Luxemborg U21 Mt: 7:14 Stig: 4
Eistland U21 Mt: 7:19 Stig: 2

Fyrir leik
Undankeppni EM
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik U-21 liði Frakklands gegn Íslandi.
Leikurinn er í undankeppni U-21 EM og verður leikinn á Stade de l'Abbé-Deschamps sem er heimavöllur Auxerre.









