Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   fim 26. mars 2026 21:16
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor og Daníel voru öflugir saman frammi
Viktor og Daníel voru öflugir saman frammi
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Rosalega vel. Þetta var frábær frammistaða hjá liðinu, ég held að mér og öllum í liðinu líður rosalega vel" sagði Daníel Tristan Guðjohnsen leikmaður Íslenska u21 landsliðsins eftir 6-2 sigur gegn Eistlandi á heimavelli.


Lestu um leikinn: Ísland U21 6 -  2 Eistland U21

Hvernig fannst þér að spila með Viktori Bjarka, náðu þið að spila vel saman?

„Já, mér fannst það. Þú sást í seinna markinu mínu að hann gaf stoðsendinguna á mig. Geggjað að fá að spila með honum. Við náum vel saman."

Geturðu lýst mörkunum sem þú skoraðir í dag?

„Ég fæ hann í dauðafæri frá Gísla eftir pressu. Það fyrsta sem mér dettur í hug sem framherji er að slútta og ég náði að klára það vel. Í seinna markinu var ég kominn í svolítið þröngt svæði, en sá engan inn í þannig að ég bombaði honum í þaknetið."

Hvernig líður þér með leikinn gegn Frökkum?

„Ógeðslega til í það. Sýndum rosalega góða frammistöðu í dag og sýndum eiginlega að við eigum alveg sjens í þessa Frakka. Við erum allir mjög spenntir og byrjaðir að fókusa á hann."

Er raunhæft að stefna á sigur?

„Já, mér finnst það. Allavega eftir þessa frammistöðu, þá allavega gæti verið möguleiki."


Slapp
banner
banner