Nágrannar í samkeppni um Anderson - Fernandes á óskalista Bayern og PSG - Liverpool ætlar að endurbyggja hópinn
Mjólkurbikar karla
Höttur
15:00 0
0
KA
Mjólkurbikar karla
Þór
14:00 0
0
FH
Mjólkurbikar karla
ÍBV
90' 2
2
Þróttur R.
Kormákur/Hvöt
0
0
Breiðablik
04.04.2026  -  16:00
Sauðárkróksvöllur
Mjólkurbikar karla
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Kormákur/Hvöt 2. deildar lið Kormáks/Hvatar kom sér í 32. liða úrslitin með 2-3 sigri á Lengjudeildarliði Völsungs í framlengdum leik sl. laugardag.

Kormákur/Hvöt átti fínasta sumar í fyrra en liðið endaði í 4. sæti 2. deildarinnar í fyrra en þeim var spáð 12. og síðasta sætinu af álitsgjöfum Fótbolta.net fyrir tímabilið.

Í Lengjubikarnum í vetur hefur frammistaðan ekki verið upp á marga fiska en þeir eru í sjötta og síðasta sæti án stiga og með -15 í markatölu en þeir gerðu sér lítið fyrir og töpuðu 10-0 fyrir Fjölni í síðasta leik þeirra þar. Þeir eiga þó einn leik eftir, gegn Kára nk. föstud.

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Það er þó rétt að taka fram að Kormákur/Hvöt er hið týpíska landsbyggðarlið þar sem liðið er oft ekki fullmótað fyrr en korter í tímabil og milli leikja hjá þeim hafa miklar breytingar orðið á byrjunarliðinu.

Komnir
Manuel Ferriol Martínez
Federico Ignacio Russo Anzola
Andri Björn Indriðason
Ingvi Rafn Ingvarsson
Arnar Freyr Jónsson
Alfreð Logi Ásgeirsson
Styrmir Georgsson
Snorri Steinn Árnason
Jón Þór Valdimarsson
Nökkvi Þór Eðvarðsson
Hlynur Már Friðriksson

Farnir
Simon Zupancic
Jón Gísli Stefánsson
Abdelhadi Khalok El Bouzarrari
Sigurður Pétur Stefánsson
Haukur Ingi Ólafsson
Helistano Ciro Manga
Matheus Bettio Gotler

Þetta ætti að verða ansi áhugaverður leikur ekki síst þar sem síðast þegar Kormákur/Hvöt spilaði á þessum velli fóru 4 rauð spjöld á loft í ekta nágrannaslag. Það verður því gaman að sjá hvort sá hiti fylgi í dag!

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Fyrir leik
Breiðablik Bestu deildar lið Breiðabliks þarf vart að kynna fyrir lesendum en Breiðablik var í fyrsta skiptið í pottinum núna fyrir 32. úrslitin og er þetta því frumraun þeirra í Mjólkurbikarnum 2026!

Þetta verður líklega fyrsti leikur þeirra flestra á Sauðárkróksvelli tjahh síðan þeir voru litlir pjakkar á Króksmóti (Ef þeir gerðust svo frægir að mæta á það þ.e.a.s.)

Breiðablik endaði í 4. sæti í Bestu deildinni síðasta sumar og rétt misstu af Evrópusæti. Þeim er þó spáð 2. sætinu í sumar af álitsgjöfum Fótbolti.net. Ólafur Ingi Skúlason tók við liðinu seint á síðasta tímabili og stýrði þeim svo með góðum árangri í Sambandsdeildinni í vetur þar sem þeir gátu mátað sig við frábær lið í Evrópu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Það hafa ekki verið alltof miklar breytingar á hópnum hjá Blikum í vetur miðað við önnur lið í deildinni en þó eru nokkur stór nöfn sem hafa komið og farið:

Komnir
Ívar Örn Árnason frá KA
Jónatan Guðni Arnarsson frá Svíþjóð
Dagur Örn Fjeldsted frá FH (var á láni)
Tumi Fannar Gunnarsson frá Fylki (var á láni)
Jón Sölvi Símonarson frá ÍA (var á láni)

Farnir
Damir Muminovic í Grindavík
Guðmundur Magnússon í Njarðvík (var á láni frá Fram)
Tobias Thomsen til Danmerkur
Þorleifur Úlfarsson til Bandaríkjanna
Brynjar Atli Bragason til Svíþjóðar

Í Lengjubikarnum í vetur hafa Blikar ekki riðið feitum hesti en þeir enduðu í 6. sæti í sínum riðli með 3 stig. Það er þó kannski ekki alveg að marka þar sem leik þess við ÍBV var frestað og með sigri þar hefðu þeir hoppað upp í 3-4 sætið, þ.e.a.s. Ef ÍBV hefði ekki unnið hinn frestaða leik sinn.


Í öllu falli þá ætti leikurinn í dag að vera skyldusigur hjá Breiðablik og ætti að vera ágætis upphitun fyrir Bestu deildina sem hefst eftir tæpa viku þegar Breiðablik mætir Víking á heimavelli hamingjunnar í Fossvoginum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leikir dagsins Fimm leikir fara fram í 32 liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag

12:00 ÍBV-Þróttur R. (Hásteinsvöllur)
14:00 Þór-FH (Boginn)
15:00 Höttur-KA (Rafey-völlurinn)
16:00 Kormákur/Hvöt-Breiðablik (Sauðárkróksvöllur)
17:00 Fram-Víkingur R. (Lambhagavöllurinn)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Mjólkurbikarinn kallar! Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Sauðárkróksvelli þar sem Kormákur/Hvöt tekur á móti Bestu deildarliðinu Breiðablik í 32. liða úrslitum Mjólkurbikarsins

Leikurinn hefst á slaginu 16:00!

Mynd: Snæbjört Pálsdóttir

Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: