Í BEINNI
Mjólkurbikar karla
Fram
LL
2
4
4
Víkingur R.

Fram
2
4
Víkingur R.

Kennie Chopart
'10
1-0
1-1
Israel Garcia
'30
, sjálfsmark
1-2
Stígur Diljan Þórðarson
'43
Ingvar Jónsson
'78
, sjálfsmark
2-2
2-3
Elías Már Ómarsson
'80
2-4
Viktor Freyr Sigurðsson
'81
, sjálfsmark
04.04.2026 - 17:00
Lambhagavöllurinn
Mjólkurbikar karla
Aðstæður: Vetrarlegt en aðstæður mjög fínar
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Lambhagavöllurinn
Mjólkurbikar karla
Aðstæður: Vetrarlegt en aðstæður mjög fínar
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson
5. Kyle McLagan
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
9. Róbert Hauksson
12. Simon Tibbling
16. Israel Garcia
('87)
('87)
19. Kennie Chopart (f)
23. Már Ægisson
('77)
('77)
25. Freyr Sigurðsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic
('64)
- Meðalaldur 26 ár
('64)
Varamenn:
1. Sigurjón Daði Harðarson (m)
7. Kristófer Konráðsson
('77)
('77)
11. Magnús Þórðarson
('87)
('87)
14. Bjarni Páll Linnet Runólfsson
15. Jakob Byström
('64)
('64)
20. Egill Otti Vilhjálmsson
31. Þengill Orrason
33. Kajus Pauzuolis
38. Guðmundur Ágúst Héðinsson
- Meðalaldur 23 ár
Liðsstjórn:
Helgi Sigurðsson (Þ)
Rúnar Kristinsson (Þ)
Kristján Finnbogi Finnbogason (Þ)
Magnús Þorsteinsson
Einar Haraldsson
Friðgeir Bergsteinsson
Sævar Halldórsson
Guðmundur Gígjar Sigurbjörnsson
Gul spjöld:
Haraldur Einar Ásgrímsson ('41)
Rauð spjöld:
90. mín
+2
Ljóst að Víkingur verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit. Þau verða svo spiluð 13. og 14. maí samkvæmt plani á ksi.is.
90. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma. Arnar Þór Stefánsson, skiptastjóri Play, lyftir upp skiltinu.
87. mín
Inn:Róbert Orri Þorkelsson (Víkingur R.)
Út:Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
84. mín
Þrjú sjálfsmörk í þessum leik!
Og báðir markverðirnir búnir að setja boltann í eigið net!
81. mín
SJÁLFSMARK!
SJÁLFSMARK!Viktor Freyr Sigurðsson (Fram)
Óskar fer framhjá Kennie og gefur fyrir, þessi bolti endar í markinu! Boltinn fer af Viktori markverði Fram og endar í markinu!
80. mín
MARK!
MARK!Elías Már Ómarsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Elías Már Ómarsson
Stoðsending: Elías Már Ómarsson
VÍKINGAR SVARA STRAX!
Elías skorar með skalla af stuttu færi!
Hornspyrna frá Helga Guðjóns. Vatnhamar skallar boltann fyrir á Elías sem skorar!
Hornspyrna frá Helga Guðjóns. Vatnhamar skallar boltann fyrir á Elías sem skorar!
78. mín
SJÁLFSMARK!
SJÁLFSMARK!Ingvar Jónsson (Víkingur R.)
FRAM JAFNAR!
Skalli frá McLagan eftir aukaspyrnu sem fer í stöngina og í Ingvar og inn!
Það er alls ekki hægt að segja að þetta mark hafi legið í loftinu.
Það er alls ekki hægt að segja að þetta mark hafi legið í loftinu.
77. mín
Inn:Jóhannes Kristinn Bjarnason (Víkingur R.)
Út:Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
75. mín
Gult spjald: Gunnar Vatnhamar (Víkingur R.)
Gult spjald: Gunnar Vatnhamar (Víkingur R.)
Fram fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Vikings. Haraldur Einar með spyrnuna.
75. mín
Erlingur Agnarsson nær skalla á rammann úr þröngu færi en Viktor Freyr ver. Víkingar halda áfram að vera bitmeiri.
74. mín
Víkingar að einoka boltann. Komið talsvert síðan Fram náði að skapa sér teljandi færi.
72. mín
Daníel Hafsteins haltrandi og fær aðhlynningu. Smá pirringur í mönnum inná vellinum núna. Daníel heldur leik áfram.
Dean Martin í síðbuxum! Það eru tíðindi!
Held ég hafi aldrei séð Deano svona mikið klæddan #fotboltinet @Skagamenn pic.twitter.com/7IhHiE5DMO
— Wrexham Icelandic Supporters Club (@IscWrexham) April 4, 2026
69. mín
Þung sókn Víkings endar með skoti frá Daníel Hafsteins framhjá. Miðað við leikinn núna eru Víkingar líklegri til að bæta við en Fram að jafna.
66. mín
Fram ekki langt frá því að skora annað sjálfsmark, boltinn skaust af McLagan og endaði ofan á þaknetinu.
64. mín
Inn:Jakob Byström (Fram)
Út:Vuk Oskar Dimitrijevic (Fram)
Byström verið að glíma við meiðsli en er klár í að spila lokakaflann.
60. mín
Stígur Diljan!
Óskar Borgþórs með fyrirgjöf, Stígur með skallann sem Viktor Freyr slær yfir. Hætta á ferðum.
59. mín
Gunnar Vatnhamar brotlegur rétt við boðvangana. Tók Freysa niður. Rúnar Kristins vildi sjá Helga Mikael lyfta gulu en varð ekki að ósk sinni.
48. mín
Már Ægisson vinnur hornspyrnu fyrir Fram eftir sendingu frá Kennie Chopart. Ná ekki að búa til neinn mat úr horninu.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Daníel Hafsteins sparkar seinni hálfleiknum af stað.
46. mín
Inn:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.)
Út:Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur R.)
Gylfi af velli í hálfleik.
45. mín
Þrjú lið úr Bestu deildinni að fara að falla úr leik í dag
ÍBV og Þór hafa kvatt bikarkeppnina þetta árið, áður en Besta deildin kemst af stað, og ljóst að þriðja úrvalsdeildarliðið verður fallið úr eftir 45 mínútur, kannski meira.
Bendum fólki á sérstakan upphitunarþátt sem var á X977 í dag og hægt er að nálgast á öllum hlaðvarpsveitum
Útvarpsþátturinn #Fotboltinet - Stóri upphitunarþátturinn fyrir Bestu https://t.co/5W94UUTSYk
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) April 4, 2026
45. mín
Framarar þurfa að opna sig og láta vaða á Víkingana, yfir 5 mörk á Epic er á stuðlinum 1.93
Svo sannarlega stutt á milli
Það er svo óendanlega stutt á milli í þessu sporti oft á tíðum. Er það ekki þess vegna sem við elskum það? #fotboltinet pic.twitter.com/D6nUgWtuCT
— Sverrir Ö Einarsson (@SEinarsson) April 4, 2026
45. mín
Njósnarar frá Akranesi
Fram á heimaleik gegn ÍA í fyrstu umferð Bestu deildarinnar, leikurinn verður eftir rúma viku. Lárus Orri og Dean Martin, þjálfarar ÍA, eru mættir með skrifblokkina upp í stúku.

Fram á heimaleik gegn ÍA í fyrstu umferð Bestu deildarinnar, leikurinn verður eftir rúma viku. Lárus Orri og Dean Martin, þjálfarar ÍA, eru mættir með skrifblokkina upp í stúku.
45. mín
Hálfleikur
Líflegur fyrri hálfleikur að baki
Víkingar fara brosandi inn í klefa eftir að hafa lent undir í leiknum.
45. mín
Vuk kemst í hættulega stöðu en nær ekki að nýta sér hana. Þetta hefur verið mjög góð skemmtun hér í fyrri hálfleik.
43. mín
MARK!
MARK!Stígur Diljan Þórðarson (Víkingur R.)
Stoðsending: Oliver Ekroth
Stoðsending: Oliver Ekroth
Markamínútan mikla! Frábærlega klárað!
Oliver Ekroth með sendingu sem splundrar vörn Fram og kemur Stíg í dauðafæri. Hann klárar með stæl og boltinn syngur í netinu.
Íslandsmeistararnir hafa snúið þessu við!
Íslandsmeistararnir hafa snúið þessu við!
43. mín
INGVAR BJARGAR!
Kennie Chopart á svaka skriði, kemur sér inn í teiginn og leikur á varnarmann og kemst í dauðafæri. Tekur skotið en Ingvar gerir vel og lokar. Fram svo nálægt því að ná forystunni aftur.
41. mín
Gult spjald: Haraldur Einar Ásgrímsson (Fram)
Gult spjald: Haraldur Einar Ásgrímsson (Fram)
Svo sannarlega gult!
Tók hressilega tæklingu á Valdimar og fær verðskuldaða áminningu.
38. mín
Israel Garcia reynir að bæta upp fyrir sjálfsmarkið og tekur skot af löngu færi en Ingvar Jóns ver auðveldlega.
35. mín
Þetta jöfnunarmark Víkings hafði legið í loftinu og nú verður spennandi að sjá þróun leiksins.
Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
SJÁLFSMARK!
SJÁLFSMARK!Israel Garcia (Fram)
Víkingar jafna! Heppnisstimpill yfir þessu marki
Gunnar Vatnhamar ætlaði að senda boltann en hann tók flugið af Israel Garcia leikmanni Fram og endaði við samskeytin, óverjandi fyrir Viktor!
Mögulega skráist þetta sem sjálfsmark en sem meðlimur í vinafélagi Færeyja þá skrái ég þetta á Gunnar.
Uppfært:
Eftir að upptaka af þessu hefur verið skoðuð betur get ég ekki gefið Gunnari þetta mark... því miður. En stoðsending á hann!
Mögulega skráist þetta sem sjálfsmark en sem meðlimur í vinafélagi Færeyja þá skrái ég þetta á Gunnar.
Uppfært:
Eftir að upptaka af þessu hefur verið skoðuð betur get ég ekki gefið Gunnari þetta mark... því miður. En stoðsending á hann!
28. mín
Víkingar eru að banka nokkuð fast
Daníel Hafsteins í góðri stöðu í teignum en hittir boltann ekki sérlega vel og hittir ekki á rammann.
27. mín
Gylfi með fína skottilraun
Rétt fyrir utan teig, boltinn meðfram gervigrasinu en fer rétt framhjá. Viktor Freyr var búinn að skutla sér og hefði væntanlega tekið þetta ef skotið hefði verið á rammann.
24. mín
Stöngin! Elías með stangarskot
Eftir þunga sókn Víkings stýrir Elías Már boltanum í stöngina af stuttu færi! Munaði litlu að Víkingur jafnaði.
23. mín
Framarar tilkynntu í gær að Ægir Jarl væri formlega kominn til félagsins. Hann er að glíma við minniháttar meiðsli og fylgist með leiknum í dag úr VIP rýminu.
03.04.2026 18:49
Ægir Jarl tilkynntur hjá Fram (Staðfest)
19. mín
Freyr Sigurðsson með fyrirgjöf en fallhlífarbolti sem er bara léttur æfingabolti fyrir Ingvar Jónsson.
16. mín
Fyrirgjöf inn i teig Fram. Viktor Freyr og Stígur lenda í samstuði í baráttu um boltann. Viktor markvörður Fram þarf aðhlynningu en getur haldið leik áfram.
15. mín
Víkingar féllu út í 32-liða úrslitum í fyrra
Víkingur tapaði fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum á þessu stigi bikarkeppninnar í fyrra. Ekki úr vegi að rifja það upp í ljósi stöðunnar hér í Dal draumanna.
14. mín
Gylfi með skot úr aukaspyrnu af nokkuð löngu færi, beint á Viktor Frey sem ver af miklu öryggi.
13. mín
Framarar leika listir sínar, frábær spilamennska skilar horni en ekkert merkilegt verður úr hornspyrnunni.
10. mín
MARK!
MARK!Kennie Chopart (Fram)
Stoðsending: Kyle McLagan
Stoðsending: Kyle McLagan
Heyrðu mig nú! Þetta var ekki eðlilega einfalt
Kyle með langa sendingu fram og skyndilega var Kennie sloppinn einn í gegn og kláraði faglega milli fóta Ingvars í marki Víkings! Þarna splundraðist vörn Víkings á ótrúlega einfaldan hátt.
Frábært fyrir leikinn að fá mark snemma!
Frábært fyrir leikinn að fá mark snemma!
7. mín
Fín spilamennska milli Gylfa og Óskars en Viktor í marki Fram á ekki vandræðum með að handsama fyrirgjöf Óskars frá hægri.
2. mín
Vuk með skot við vítateigsendann en varnarmenn Víkings ná að komast fyrir. Víkingar koma svo upp hinumegin og Valdimar á fyrstu marktilraun þeirra en skot hans framhjá markinu.
1. mín
Leikur hafinn
Framarar hófu leik
Víkingar sækja í átt að sundlauginni i fyrri hálfleik. Dagur B. Eggertsson vígði einmitt rennibrautina í þeirri laug.
Fyrir leik
Niko Hansen tognaði í fyrradag
Kom fram á RÚV. Er þess vegna ekki með Víkingi í dag. Spurning hvort hann verði klár í opnunarleik Bestu deildarinnar á föstudag, þegar Víkingur tekur á móti Breiðabliki.

Fyrir leik
Þungur kross
Liðin eru að hita upp og þjálfararnir tveir; Rúnar Kristinsson og Sölvi Ottesen, standa á miðlínunni og spjalla saman. Í græjunum er verið að spila lagið Þungur kross með Dimmu. Gott val.
Fyrir leik
Lykilmenn vantar hjá Fram - Sigurjón, Fred og Byström að glíma við meiðsli
Varnarmaðurinn Sigurjón Rúnarsson, brasilíski töframaðurinn Fred hinn sænski Jakob Byström eru allir að glíma við meiðsli. Byström er þó í hóp og gæti spilað einhverjar mínútur en hinir tveir eru ekki í hóp.
Fyrir leik
Spennandi að sjá Elías
Spennandi verður að sjá hvernig Elías Már Ómarsson stendur sig í fremstu línu hjá Víkingum í dag. Hann hefur ekki farið með himinskautum á undirbúningstímabilinu en nú er alvaran að fara af stað og tilvalinn tímapunktur til að stíga upp.

Spennandi verður að sjá hvernig Elías Már Ómarsson stendur sig í fremstu línu hjá Víkingum í dag. Hann hefur ekki farið með himinskautum á undirbúningstímabilinu en nú er alvaran að fara af stað og tilvalinn tímapunktur til að stíga upp.
Fyrir leik
Gylfi og Elías Már byrja - Atli ekki í hóp hjá Fram
Byrjunarliðin eru komin inn.
Gylfi Þór Sigurðsson og Gunnar Vatnhamar voru í landsliðsverkefni þegar Víkingur vann Vestra 4-0 í Meistarakeppni KSÍ á dögunum en koma báðir inn í byrjunarliðið.
Nikolaj Hansen skoraði tvö mörk gegn Vestra en er ekki á skýrslu og Elías Már Ómarsson kemur inn.
Sóknarmaðurinn Atli Þór Jónasson er á láni hjá Fram frá Víkingi og er ekki með í dag. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er ákvæði í lánssamningi Atla og Fram þarf að greiða Víkingi væna summu ef hann kemur við sögu í leik á móti þeim í sumar.

Byrjunarliðin eru komin inn.
Gylfi Þór Sigurðsson og Gunnar Vatnhamar voru í landsliðsverkefni þegar Víkingur vann Vestra 4-0 í Meistarakeppni KSÍ á dögunum en koma báðir inn í byrjunarliðið.
Nikolaj Hansen skoraði tvö mörk gegn Vestra en er ekki á skýrslu og Elías Már Ómarsson kemur inn.
Sóknarmaðurinn Atli Þór Jónasson er á láni hjá Fram frá Víkingi og er ekki með í dag. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er ákvæði í lánssamningi Atla og Fram þarf að greiða Víkingi væna summu ef hann kemur við sögu í leik á móti þeim í sumar.
Fyrir leik
Bjart og fallegt
Það er bjart og fallegt yfir Dalnum, dal draumanna eins og hann kallast. Ég er búinn að koma mér fyrir í fréttamannastúkunni og hér á sömu hæð er gott fólk að ræða málin og spá í spilin yfir kaffibolla. Ormslev feðgar, Valtýr Björn og Daði Guðmunds svo einhverjir góðir menn séu nefndir.
RÚV er að koma sér í startholurnar fyrir útsendingu og byrjunarliðin fara að detta í hús á næstu mínútum!
RÚV er að koma sér í startholurnar fyrir útsendingu og byrjunarliðin fara að detta í hús á næstu mínútum!
Fyrir leik
Fyrir leik
Íslandsmeisturum Víkings er spáð toppsæti Bestu deildarinnar í sumar
03.04.2026 18:00
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 1. sæti
03.04.2026 18:30
„Það er viðurkenning að fá slíka spá"
03.04.2026 20:56
Niðurtalningin - Skjöldurinn verður loksins kyrr
Fyrir leik
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Aðstoðardómarar: Egill Guðvarður Guðlaugsson og Þórður Arnar Árnason.
Fjórði dómari: Arnar Þór Stefánsson.
Eftirlitsmaður: Ingvar Örn Gíslason.

Aðstoðardómarar: Egill Guðvarður Guðlaugsson og Þórður Arnar Árnason.
Fjórði dómari: Arnar Þór Stefánsson.
Eftirlitsmaður: Ingvar Örn Gíslason.
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth (f)
6. Gunnar Vatnhamar
9. Helgi Guðjónsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson
('46)
('46)
11. Daníel Hafsteinsson
('77)
('77)
19. Óskar Borgþórsson
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
25. Valdimar Þór Ingimundarson
('87)
('87)
28. Elías Már Ómarsson
77. Stígur Diljan Þórðarson
('67)
- Meðalaldur 28 ár
('67)
Varamenn:
29. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
7. Erlingur Agnarsson
('67)
('67)
8. Viktor Örlygur Andrason
('46)
('46)
14. Jóhannes Kristinn Bjarnason
('77)
('77)
15. Róbert Orri Þorkelsson
('87)
('87)
24. Davíð Örn Atlason
31. Þorri Ingólfsson
52. Viðar Elí Bjarnason
- Meðalaldur 24 ár
Liðsstjórn:
Viktor Bjarki Arnarsson (Þ)
Hajrudin Cardaklija (Þ)
Aron Baldvin Þórðarson (Þ)
Sölvi Ottesen (Þ)
Kári Sveinsson
Þórir Ingvarsson
Rúnar Pálmarsson
Gul spjöld:
Gunnar Vatnhamar ('75)
Rauð spjöld:






















