Mjólkurbikar karla
Fram
LL
2
4
4
Víkingur R.
Mjólkurbikar karla
Kormákur/Hvöt
LL
1
6
6
Breiðablik

Kormákur/Hvöt
1
6
Breiðablik

0-1
Höskuldur Gunnlaugsson
'8
0-2
Kristófer Ingi Kristinsson
'26
0-3
Ágúst Orri Þorsteinsson
'68
Trausti Þór Þorgilsson
'72
1-3
1-4
Kristófer Ingi Kristinsson
'74
1-5
Óli Valur Ómarsson
'79
1-6
Ágúst Orri Þorsteinsson
'91
04.04.2026 - 16:00
Sauðárkróksvöllur
Mjólkurbikar karla
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Sauðárkróksvöllur
Mjólkurbikar karla
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Byrjunarlið:
1. Uros Djuric (m)
3. Pol Morlans Martin
5. Federico Ignacio Russo Anzola (f)
6. Manuel Ferriol Martínez
('88)
('88)
10. Guzman Díaz Scarone
11. Moussa Ismael Sidibe Brou
('88)
('88)
13. Sigurður Bjarni Aadnegard
('80)
('80)
14. Hlib Horan
22. Snorri Steinn Árnason
('44)
('44)
26. Pere Belmonte
38. Trausti Þór Þorgilsson
- Meðalaldur 25 ár
Varamenn:
2. Sigurjón Bjarni Guðmundsson
4. Eyjólfur Örn Þorgilsson
('88)
('88)
9. Stefán Freyr Jónsson
('88)
('88)
17. Aron Örn Ólafsson
('80)
('80)
20. Finnur Karl Jónsson
33. Jón Þór Valdimarsson
66. Arnór Ágúst Sindrason
('44)
- Meðalaldur 18 ár
('44)
Liðsstjórn:
Dominic Louis Furness (Þ)
Jón Örn Stefánsson (Þ)
Lárus Guðmundur Jónsson
Helena Magnúsdóttir
Gul spjöld:
Sigurður Bjarni Aadnegard ('42)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
1-6 fyrir Breiðablik hér í dag!
Ekki mikið að frétta framan af en vá! Um leið og Ágústi Orra var skipt inn á var eins og Blikar hefðu sett í sjötta gír og allt var inni bara eftir það
Takk annars fyrir damfylgdina í dag, skýrsla og viðtöl koma inn síðar í dag

91. mín
MARK!
MARK!Ágúst Orri Þorsteinsson (Breiðablik)
Fær fyrirgjöf, sá hreinlega ekki frá hverjum en beint í hlaupaleiðina hjá Ágústi og hann neglir honum bara inn
88. mín
Inn:Stefán Freyr Jónsson (Kormákur/Hvöt)
Út:Manuel Ferriol Martínez (Kormákur/Hvöt)
88. mín
Inn:Eyjólfur Örn Þorgilsson (Kormákur/Hvöt)
Út:Moussa Ismael Sidibe Brou (Kormákur/Hvöt)
85. mín
Djuric ískaldur í markinu og leikur hér á Arnar Bjarka áður en hann kemur boltanum fram á við
80. mín
Inn:Aron Örn Ólafsson (Kormákur/Hvöt)
Út:Sigurður Bjarni Aadnegard (Kormákur/Hvöt)
79. mín
MARK!
MARK!Óli Valur Ómarsson (Breiðablik)
Stoðsending: Ágúst Orri Þorsteinsson
Stoðsending: Ágúst Orri Þorsteinsson
Ágúst Orri setur boltann fyrir þar sem Óli Valur er einn og óvaldaður og skallar boltann í nærhornið
78. mín
Inn:Arnar Bjarki Gunnleifsson (Breiðablik)
Út:Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
74. mín
MARK!
MARK!Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
Stoðsending: Ágúst Orri Þorsteinsson
Stoðsending: Ágúst Orri Þorsteinsson
Ágúst Orri er bara hraðasti leikmaðurinn hérna inná, hleypur með boltann allan kanntinn og inn og niður á endalínu, setur hann eiginlega í Djuric svo og þaðan dettur hann fyrir Kristófer Inga sem getur ekki annað en sett hann inn enda svona hálfum metra frá marklínunni!
72. mín
MARK!
MARK!Trausti Þór Þorgilsson (Kormákur/Hvöt)
Hinn ungi og efnilegi Trausti Þór minnkar muninn fyrir Kormák/Hvöt, leit ekki út fyrir að vera nein hætta en hann bara lagði boltann snyrtilega í fjærhornið framhjá Antoni Ara. Kom eiginlega bara uppúr engu!
68. mín
MARK!
MARK!Ágúst Orri Þorsteinsson (Breiðablik)
Stoðsending: Davíð Ingvarsson
Stoðsending: Davíð Ingvarsson
Þetta var ekkert eðlilega vel gert! Davíð stingur boltanum inn fyrir vörn Kormáks/Hvatar Ágúst Orri er ekkert eðlilega hraður og stingur varnamennina af og nær að pikka boltanum framhjá Djuric í hlaupinu og leggur hann svo bara í autt markið
66. mín
Ágúst Orri nær fyrirgjöf sem rúlla í gegnum allan teiginn, þetta hefði verið kjörið tækifæri til að pota boltanum inn
63. mín
Inn:Ágúst Orri Þorsteinsson (Breiðablik)
Út:Jónatan Guðni Arnarsson (Breiðablik)
60. mín
Manuel brýtur á Óla Val, þeir taka þetta hratt og stutt en ekkert kemur svo sem úr þessu
59. mín
Martin brýtur á Höskuldi upp við vítateigsboga, fínasti staður fyrir Blika, Höskuldur tekur sjálfur spyrnuna en setur boltann yfir markið
57. mín
Belmonte sýnir frábæra takta inn í teig hjá Blikum, setur hann svo út á Trausta sem ætlar að þruma honum á markið en Ívar Örn fær hann í sig
54. mín
Óli Valur pressar og kemst inn í sendingu Sigurðar Bjarna til baka, er ógeðslega fljótur, kemur boltanum inn á Höskuld en hann nær ekki að gera neitt úr þessu
49. mín
Kristófer Ingi með laglega hælsendingu inn á Óla Val sem reynir skot en Djuric ver
46. mín
Davíð reynir skot fyrir utan teig en það er laust og Djuric á ekki í neinum vandræðum með þetta
45. mín
Hálfleikur
0-2 fyrir Blikum í hálfleik
Blikar eru með svo mikil gæði! Byrjuðu af þvílíkum krafti og léttu ekki á pressunni fyrr en fyrsta markið leit dagsins ljós.
Þá komust "heimamenn" í Kormáki/Hvöt betur inn í leikinn og gerðu þeim erfiðara fyrir. Náðu að hægja vel á tempóinu en Blikar eru hættulegir í öllum stöðum.
Kormákur/Hvöt hafa legið aftarlega og pakkað vel varnarlega skiljanlega og þeirra helsta ógn hefur aðalega verið skyndisóknir og ein ágætis aukaspyrna
Verður gaman að sjá hvort liðin hrista eitthvað upp í þessu í seinni hálfleik, Blikar eiga risa leikmenn inni á bekknum m.a. Ágúst Orra sem margir spá út í atvinnumennsku eftir þetta tímabil en mikill áhugi hefur verið á honum eftir frábæra frammistöðu í Sambandsdeildinni í vetur

Kristinn Steindór keyrir með boltann upp í horn finnur svo Davíð inn í teignum sem reynir skotið en Djuric ver út fyrir endalínu
45. mín
Óli Valur tekur horn fyrir Blika, Moussa kemur þessu frá, boltinn berst svo að endingu aftur á Óla Val ssem reynir skot en fer í varnarmann og aftur fyrir endalínu
45. mín
Jónatan keyrir inn á teiginn en mætir þar fyrirliðanum Anzola sem nær af honum boltanum
44. mín
Inn:Arnór Ágúst Sindrason (Kormákur/Hvöt)
Út:Snorri Steinn Árnason (Kormákur/Hvöt)
Meiðsli að hrjá Snorra Stein og Arnór Ágúst kemur inn
42. mín
Sigurður Bjanri með frábæra tæklingu en það þurfti svo sem ekki þar sem flaggið fór á loft!
38. mín
Brotið á Moussa, Guzman setur boltann inn á teig, þar stekkur Manuel hæst en boltinn útaf
32. mín
Ívar Örn liggur hér og fær aðhlynningu, stuðningsmenn Kormáks/Hvatar eru ekki glaðir með þessa töf á leiknum
Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Höskuldur tekur aukaspyrnu á miðjum vallahelmingi Kormáks/Hvatar en spyrnan er laus og Djuric á ekki í neinum vandræðum að pikka þetta upp
26. mín
MARK!
MARK!Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
Fær laglegan bolta inn í teiginn og leggur hann snyrtilega framhjá Djuric í markinu
25. mín
Trausti á í baráttu við Jónatan og hirðir af honum boltann, ungur og efnilega hjá Kormáki/Hvöt, góð reynsla sem hann fær í dag
23. mín
Kormákur/Hvöt hafa aðeins náð að vinna sig inn í leikinn og tempóið sem byrjaði mjög hátt hefur að sama skapi droppað aðeins
18. mín
Valgeir með fínustu fyrirgjöf og finnur kollinn á Höskuldi en hann stýrir honum framhjá markinu
11. mín
Ágætis tilraun hjá Kormáki/Hvöt, Scarone setur boltann yfir varnalínu Blika sem sitja hátt upp á vellinum og Horan er fyrstur á boltann en nær ekki að nýta sér forskotið og sóknin fer forgörðum
10. mín
Óli Valur reynir skot en Trausti Þór fleygir sér fyrir, horn sem Blikar taka stutt
8. mín
MARK!
MARK!Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik)
Þetta var alltof auðvelt, Kormákur/Hvöt freistast til að stíga upp, Höskuldur fær síðan bolta inn fyrir sem hann tæklar inn
7. mín
Úffffff
Óli Valur fær stungu upp í hornið tekur boltann með sér og á svo tjahh skot eða fyrirgjöf en nálægt markinu er það
6. mín
Breiðablik yfirspilar hér Kormák/Hvöt trekk í trekk, þeir hafa ekki komist fram yfir miðju enn
3. mín
Óli Valur tekur aukaspyrnu af hægri kannti en Snorri Steinn nær að skalla þetta frá
Fyrir leik
Liðin ganga hér inn á völlinn, þetta fer að hefjast!
Fyrir leik
Kormákur/Hvöt
2. deildar lið Kormáks/Hvatar kom sér í 32. liða úrslitin með 2-3 sigri á Lengjudeildarliði Völsungs í framlengdum leik sl. laugardag.
Kormákur/Hvöt átti fínasta sumar í fyrra en liðið endaði í 4. sæti 2. deildarinnar í fyrra en þeim var spáð 12. og síðasta sætinu af álitsgjöfum Fótbolta.net fyrir tímabilið.
Í Lengjubikarnum í vetur hefur frammistaðan ekki verið upp á marga fiska en þeir eru í sjötta og síðasta sæti án stiga og með -15 í markatölu en þeir gerðu sér lítið fyrir og töpuðu 10-0 fyrir Fjölni í síðasta leik þeirra þar. Þeir eiga þó einn leik eftir, gegn Kára nk. föstud.
Það er þó rétt að taka fram að Kormákur/Hvöt er hið týpíska landsbyggðarlið þar sem liðið er oft ekki fullmótað fyrr en korter í tímabil og milli leikja hjá þeim hafa miklar breytingar orðið á byrjunarliðinu.
Komnir
Manuel Ferriol Martínez
Federico Ignacio Russo Anzola
Andri Björn Indriðason
Ingvi Rafn Ingvarsson
Arnar Freyr Jónsson
Alfreð Logi Ásgeirsson
Styrmir Georgsson
Snorri Steinn Árnason
Jón Þór Valdimarsson
Nökkvi Þór Eðvarðsson
Hlynur Már Friðriksson
Farnir
Simon Zupancic
Jón Gísli Stefánsson
Abdelhadi Khalok El Bouzarrari
Sigurður Pétur Stefánsson
Haukur Ingi Ólafsson
Helistano Ciro Manga
Matheus Bettio Gotler
Þetta ætti að verða ansi áhugaverður leikur ekki síst þar sem síðast þegar Kormákur/Hvöt spilaði á þessum velli fóru 4 rauð spjöld á loft í ekta nágrannaslag. Það verður því gaman að sjá hvort sá hiti fylgi í dag!

Bestu deildar lið Breiðabliks þarf vart að kynna fyrir lesendum en Breiðablik var í fyrsta skiptið í pottinum núna fyrir 32. úrslitin og er þetta því frumraun þeirra í Mjólkurbikarnum 2026!
Þetta verður líklega fyrsti leikur þeirra flestra á Sauðárkróksvelli tjahh síðan þeir voru litlir pjakkar á Króksmóti (Ef þeir gerðust svo frægir að mæta á það þ.e.a.s.)
Breiðablik endaði í 4. sæti í Bestu deildinni síðasta sumar og rétt misstu af Evrópusæti. Þeim er þó spáð 2. sætinu í sumar af álitsgjöfum Fótbolti.net. Ólafur Ingi Skúlason tók við liðinu seint á síðasta tímabili og stýrði þeim svo með góðum árangri í Sambandsdeildinni í vetur þar sem þeir gátu mátað sig við frábær lið í Evrópu.
Það hafa ekki verið alltof miklar breytingar á hópnum hjá Blikum í vetur miðað við önnur lið í deildinni en þó eru nokkur stór nöfn sem hafa komið og farið:
Komnir
Ívar Örn Árnason frá KA
Jónatan Guðni Arnarsson frá Svíþjóð
Dagur Örn Fjeldsted frá FH (var á láni)
Tumi Fannar Gunnarsson frá Fylki (var á láni)
Jón Sölvi Símonarson frá ÍA (var á láni)
Farnir
Damir Muminovic í Grindavík
Guðmundur Magnússon í Njarðvík (var á láni frá Fram)
Tobias Thomsen til Danmerkur
Þorleifur Úlfarsson til Bandaríkjanna
Brynjar Atli Bragason til Svíþjóðar
Í Lengjubikarnum í vetur hafa Blikar ekki riðið feitum hesti en þeir enduðu í 6. sæti í sínum riðli með 3 stig. Það er þó kannski ekki alveg að marka þar sem leik þess við ÍBV var frestað og með sigri þar hefðu þeir hoppað upp í 3-4 sætið, þ.e.a.s. Ef ÍBV hefði ekki unnið hinn frestaða leik sinn.
Í öllu falli þá ætti leikurinn í dag að vera skyldusigur hjá Breiðablik og ætti að vera ágætis upphitun fyrir Bestu deildina sem hefst eftir tæpa viku þegar Breiðablik mætir Víking á heimavelli hamingjunnar í Fossvoginum

Leikir dagsins
Fimm leikir fara fram í 32 liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag
12:00 ÍBV-Þróttur R. (Hásteinsvöllur)
14:00 Þór-FH (Boginn)
15:00 Höttur-KA (Rafey-völlurinn)
16:00 Kormákur/Hvöt-Breiðablik (Sauðárkróksvöllur)
17:00 Fram-Víkingur R. (Lambhagavöllurinn)
12:00 ÍBV-Þróttur R. (Hásteinsvöllur)
14:00 Þór-FH (Boginn)
15:00 Höttur-KA (Rafey-völlurinn)
16:00 Kormákur/Hvöt-Breiðablik (Sauðárkróksvöllur)
17:00 Fram-Víkingur R. (Lambhagavöllurinn)

Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
3. Andri Rafn Yeoman
('75)
('75)
4. Ásgeir Helgi Orrason
5. Ívar Örn Árnason
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
9. Óli Valur Ómarsson
10. Kristinn Steindórsson
('63)
('63)
11. Valgeir Valgeirsson
('75)
('75)
18. Davíð Ingvarsson
22. Jónatan Guðni Arnarsson
('63)
('63)
23. Kristófer Ingi Kristinsson
('78)
- Meðalaldur 27 ár
('78)
Varamenn:
55. Jón Sölvi Símonarson (m)
6. Arnór Gauti Jónsson
('75)
('75)
8. Viktor Karl Einarsson
('63)
('63)
14. Gabríel Snær Hallsson
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
('63)
('63)
20. Arnar Bjarki Gunnleifsson
('78)
('78)
21. Viktor Örn Margeirsson
('75)
- Meðalaldur 22 ár
('75)
Liðsstjórn:
Haraldur Björnsson (Þ)
Ólafur Ingi Skúlason (Þ)
Emil Pálsson (Þ)
Jón Guðni Fjóluson (Þ)
Helgi Jónas Guðfinnsson
Brynjar Dagur Sighvatsson
Dagur Elís Gíslason
Gul spjöld:
Rauð spjöld: