Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
KR
0
0
Þór
17.04.2026  -  17:30
Meistaravellir
Besta deildin
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
ÞÞÞ flautar! Honum til aðstoðar verða þeir Kristján Már Ólafs, Tomasz Piotr Zietal og svo Hreinn Magnússon á skiltinu ásamt því að siða til Óskar Hrafn og Sigga Höskulds.

Forsti Viðar Gunnarsson verður svo í stúkunni a blysavaktinni og taka út störf hinna fjögurra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Doddbot sussar!
Fyrir leik
Fyrsta umferðin! KR-ingar fengu Keflavík heim í hádramatískan leik þar sem Keflvíkingar virtust vera að hirða stigin þrjú með sér á Reykjanesbrautina, en allt kom fyrir ekki og KR snéri taflinu við á augabragði undir lok leiks þar sem Alecander Rafn PálmaRafnsson skoraði sigurmarkið.

Þórsarar gerðu þá góða ferð til nágranna KR á Hlíðarenda, þar sem Ingimar Arnar skoraði sigurmark seint í leiknum við gríðarleg fagnaðarlæti Þórsara á staðnum sem innihéldu blys, sektir, stemningu og læti.

Ef að KR-ingar vinna áfram með þá stemningu og spennu sem hefur verið í kringum þeirra lið, og Þórsarar fjölmenna hingað eins og á Hlíðarenda og styðja sína menn, gætum við fengið alvöru slag bæði á vellinum og í stúkunni.
Fyrir leik
Góðan dag kæri lesandi! Og vertu velkominn í þráðbeina textalýsingu frá leik KR og Þórs í Bestu-deild karla.
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: