Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   fös 17. apríl 2026 08:00
Elvar Geir Magnússon
Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal
Powerade
Anthony Gordon leikmaður Newcastle.
Anthony Gordon leikmaður Newcastle.
Mynd: EPA
Alexis Mac Allister.
Alexis Mac Allister.
Mynd: EPA
Sumarið er handan við hornið og ensku úrvalsdeildarfélögin eru á fullu að búa sig undir sumargluggann. Hér er allt helsta slúðrið en BBC tók saman.

Forráðamenn Barcelona eru ekki vissir um hvort þeir eigi að borga Manchester United 30 milljóna evra ákvæði til að kaupa Marcus Rashford (28) alfarið. (Marca)

Anthony Gordon (25) hjá Newcastle er opinn fyrir því að skoða möguleika sína í sumar en fjallað hefur verið um áhuga Bayern München á honum. (Telegraph)

Gordon vill helst flytja til London og það gefur Arsenal forskot í baráttunni um leikmanninn. (Sun)

Manchester City og Barcelona eru fremst í kapphlaupinu um brasilíska framherjann Eduardo Conceicao (16) hjá Palmeiras. (Mail)

Newcastle býr sig undir annasamt sumar en sjö fastamenn eru orðaðir við brottför. (Sun)

Níu leikmenn Liverpool eru orðaðir við brottför í sumar, þar á meðal argentínski miðjumaðurinn Alexis Mac Allister (27) og enski varnarmaðurinn Joe Gomez (28) sem er á óskalistum Crystal Palace, Brighton og AC Milan. (Telegraph)

Jurgen Klopp og Mauricio Pochettino eru á blaði hjá Real Madrid en Alvaro Arbeloa mun að öllum líkindum ekki vera áfram. (Mail)

Everton og Leeds hafa áhuga á enska varnarmanninum Matt Targett (30) sem er hjá Middlesbrough á láni frá Newcastle. (Teamtalk)

Tottenham er tilbúið að' selja Conor Gallagher (26) sem kom til félagsins í janúar. Önnur félög í ensku úrvalsdeildinni hafa áhuga. (Football Insider)

Enski varnarmaðurinn Levi Colwill (23) er að fara að fylgja í fótspor Moises Caicedo (24) og skrifa undir langtímasamning við Chelsea. (Times)

Liverpool hefur hafnað fyrirspurn varðandi Richard Hughes, yfirmann fótboltamála, frá Al-Hilal í Sádi-Arabíu. (Talksport)

AC Milan hefur áhuga á serbneska sóknarmanninum Dusan Vlahovic (26) en samningur hans við Juventus rennur út í sumar. (Gazzetta dello Sport)

Marseille hefur mikinn áhuga á marokkóska vinstri bakverðinum Adam Aznou (19) sem hefur enn ekki komið við sögu hjá Everton í ensku úrvalsdeildinni. (Teamtalk)
Slapp
banner
banner