Besta deildin
Stjarnan
20:15
0
0
0
FH
Besta deildin
Fram
LL
3
1
1
Keflavík
Besta deildin
Breiðablik
LL
1
0
0
ÍA
Besta deildin
KR
LL
5
2
2
Þór
Besta deildin
KA
LL
0
2
2
Víkingur R.
Besta deildin
Valur
LL
2
1
1
ÍBV

KR
5
2
Þór

Amin Cosic
'12
1-0
Eiður Gauti Sæbjörnsson
'34
2-0
Luke Rae
'51
3-0
Aron Sigurðarson
'69
, víti
4-0
4-1
Ingimar Arnar Kristjánsson
'75
Ástbjörn Þórðarson
'80
5-1
5-2
Isaac Atanga
'93
17.04.2026 - 17:30
Meistaravellir
Besta deildin
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Áhorfendur: 1717
Meistaravellir
Besta deildin
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Áhorfendur: 1717
Byrjunarlið:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
7. Finnur Tómas Pálmason
8. Stefán Árni Geirsson
('61)
('61)
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
11. Aron Sigurðarson (f)
17. Luke Rae
19. Amin Cosic
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
('84)
('84)
22. Ástbjörn Þórðarson
23. Arnór Ingvi Traustason
('72)
('72)
26. Hrafn Tómasson
- Meðalaldur 26 ár
Varamenn:
1. Sigurpáll Sören Ingólfsson (m)
4. Michael Akoto
10. Guðmundur Andri Tryggvason
14. Alexander Rafn Pálmason
('61)
('61)
15. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
('84)
('84)
18. Jón Ernir Ragnarsson
25. Matthías Björgvin Kjartansson
29. Aron Þórður Albertsson
77. Orri Hrafn Kjartansson
('72)
('72)
Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Jamie Paul Brassington
Guðjón Örn Ingólfsson
Guðmundur Óskar Pálsson
Björn Valdimarsson
Hilmar Árni Halldórsson
Magnus Börheim
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Leik lokið!
ÞÞÞ flautar af!
KR með sigur í stórkostlegum leik!
Viðtöl og skýrsla innan skamms.
Viðtöl og skýrsla innan skamms.
93. mín
MARK!
MARK!Isaac Atanga (Þór )
Stoðsending: Ingimar Arnar Kristjánsson
Stoðsending: Ingimar Arnar Kristjánsson
Annað sárabótarmark!
Ingimar með fyrirgjöf frá hægri og Isaac ræðst á boltann og setur hann í netið.
93. mín
Aron Sig í færi!
Kemst á hægri fótinn við teiginn og lætur vaða en Aron Birkir ver.
92. mín
KR að spila brasilískan bílastæðafótbolta!
Reyna að spila sig inn í markið og Miðjan fagnar öllum sendingum en Þórsarar bjarga fyrir horn.
90. mín
Þórsarar komast í 4v3 stöðu!
En Hrafn Tómasson stöðvar þá með frábærri staðsetningu, étur sendinguna.
Þá er það tilkynnt að uppbótartíminn sé 3 mínútur.
Þá er það tilkynnt að uppbótartíminn sé 3 mínútur.
89. mín
Stúkurnar farnar að takast á með söngvum!
Og KR fær horn.
Þessi leikur að fjara út.
Þessi leikur að fjara út.
80. mín
MARK!
MARK!Ástbjörn Þórðarson (KR)
Stoðsending: Aron Sigurðarson
Stoðsending: Aron Sigurðarson
Þeir leika á alls oddi!
Aron Sig með fasta hornspyrnu inn á teiginn sem Ástbjörn kastar sér á og stangar boltann í hornið.
Stórkostlegur leikur sem er verið að bjóða okkur upp á hérna.
Stórkostlegur leikur sem er verið að bjóða okkur upp á hérna.
80. mín
Frábærir taktar hjá Alexander Rafni sem kemur sér inn á teiginn en Þórsarar bjarga í horn.
77. mín
Eiður í færi!
Fær boltann inn á teiginn, snýr stórkostlega á vinstri fótinn og lætur vaða en boltinn rétt framhjá.
75. mín
MARK!
MARK!Ingimar Arnar Kristjánsson (Þór )
Stoðsending: Isaac Atanga
Stoðsending: Isaac Atanga
Norðanmenn klóra í bakkann!
Isaac fær boltann inn á teignum, chippar huggulega yfir Halldór sem mætti honum en boltinn í stöngina, Ingimar var þó mættur og setti boltann yfir línuna.
73. mín
Þórsarar fá horn en Halldór grípur örugglega.
KR-ingar vaða upp í hraða sókn og Amin sendir fyrir á Eið sem skallar framhjá, alvöru hraði í þessum leik!
KR-ingar vaða upp í hraða sókn og Amin sendir fyrir á Eið sem skallar framhjá, alvöru hraði í þessum leik!
69. mín
Mark úr víti!
Mark úr víti!Aron Sigurðarson (KR)
Aron tekur vítið auðvitað sjálfur og setur boltann þægilega í vinstra hornið og Aron Birkir hvergi nálægt.
Nú er þetta game over!
Nú er þetta game over!
68. mín
Vítaspyrna!
Kristófer með ömurlega sendingu til baka beint á Eið Gauta sem skilur boltann eftir fyrir Aron sem lætur vaða, boltinn aftur á Aron sem dansar í gegnum teiginn og er felldur.
64. mín
Gult spjald: Yann Emmanuel Affi (Þór )
Gult spjald: Yann Emmanuel Affi (Þór )
Affi þrumar niður Aron Sig og fær réttilega gult.
54. mín
KR-Miðjan syngur:
''Eruð þið Valur, í dulargergvi?''
Frábær banter hjá Miðjunni.
Frábær banter hjá Miðjunni.
52. mín
KR-ingar heimta víti!
Aron Sig þræðir boltann inn á teiginn í hlaupalínu Arnórs Ingva, Arnór tekur snertinguna og fer í contact við Affi, Arnór fellur en mér finnst lítið í þessu og ÞÞÞ tekur svaninn.
51. mín
MARK!
MARK! Luke Rae (KR)
Stoðsending: Stefán Árni Geirsson
Stoðsending: Stefán Árni Geirsson
Hrikalega einfalt en gott mark!
KR-ingar spila frá marki, upp vinstri, inn á miðju á Aron sem finnur Stefán, Stefán setur boltann til hægri á Luke sem keyrir inn á völlinn og tekur skotið fyrir utan teig með vinstri í fjærhornið.
Game over?
Game over?
49. mín
Þórsarar leika sér að eldinum!
Reyna að spila stutt frá markspyrnu og KR-ingar vinna boltann við D-bogann, láta vaða og Aron ver í horn.
45. mín
Hálfleikur
-auglýsing
Vissir þú að þegar Einar Þorsteins í Framsókn var borgarstjóri þá var fjárfest í knatthúsi fyrir KR? XB
Framsókn
Vissir þú að þegar Einar Þorsteins í Framsókn var borgarstjóri þá var fjárfest í knatthúsi fyrir KR? XB
Framsókn
45. mín
Hálfleikur
DAUÐAFÆRI!
KR spilar sig fallega inn á vítateig Þórsara, Eiður Gauti skilur boltann eftir fyrir framan markteiginn fyrir Aron Sig sem hamrar boltanum yfir markið úr alvöru dauðafæri.
ÞÞÞ flautar svo til hálfleiks.
ÞÞÞ flautar svo til hálfleiks.
45. mín
Gott skot!
Aron Sig finnur Stefán Árna við teiginn sem fer á vinstri og lætur vaða, gott skot og Aron ver vel.
43. mín
Þórsarar nálægt því að komast í gegnum vörn KR en Hrafn Tómasson ekkert eðlilega nettur á boltanum og snýr sér einn hring með boltann á punktinum og losar sig þannig við þrjá Þórsara, alvöru gæði!
39. mín
Amin keyrir á Kristófer á vinstri kantinum og reynir fyrirfjöf en Kristó kemst fyrir, KR fær horn.
Aron Sig sendir fyrir en ÞÞÞ dæmir brot inná teignum.
Aron Sig sendir fyrir en ÞÞÞ dæmir brot inná teignum.
36. mín
Færi!
Aukaspyrna frá hægri sem Aron Sig neglir fyrir og Stefán nálægt því að koma boltanum á markið.
34. mín
MARK!
MARK!Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
Stoðsending: Luke Rae
Stoðsending: Luke Rae
Eiður að koma KR í 2-0!
Frábær sókn hjá KR, Luke með boltann úti hægra megin og sendir boltann á ennið á Eið Gauta sem stýrir boltanum vel í hornið, þurfti ekki að vera fast þetta en hrikalega vel gert.
Þórsarar komnir í brekku og Miðjan býður Þórsara velkomna í þá Bestu.
Þórsarar komnir í brekku og Miðjan býður Þórsara velkomna í þá Bestu.
Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
33. mín
Halldór til taks framarlega!
Þórsarar nýta sér svæðið fyrir aftan vörn KR og senda boltann í svæði en Halldór mættir og sópaði þetta upp!
26. mín
KR fær horn frá hægri núna, Aron tekur spyrnuna, Ástbjörn nær að flikka boltanum áfram en Þórsarar hreinsa.
24. mín
Sigfús með skot í stöng!
Kraftur í Þórsurum hérna, eru að keyra á KR vörnina og færa boltann til vinstri á Fúsa sem kemur inn á völlinn og lætur vaða en boltinn í stöngina fjær.
22. mín
KR að leika sér að eldinum!
Tapa boltanum við eigin vítateig og Atli finnur Gústa sem tekur boltann framhjá Finn en fellur við og ÞÞÞ dæmir ekkert, þetta var líklega brot á stórhættulegum stað en ekkert dæmt og Þórsarar brjálast.
21. mín
Dauðafæri!
Boltinn frá Atla er góður, aftur sparkað á markið þar sem Greko flikkar á fjær og Fúsi í afbragðs færi en þröngu setur boltann í hliðarnetið.
Þetta var færi til að jafna leikinn!
Þetta var færi til að jafna leikinn!
21. mín
Þór fær gefins horn!
Sóttu upp hægra megin, Gabríel fær boltann í lappirnar en sendir bara afturfyrir, hörmuleg sending sem átti að fara á Halldór í markinu.
19. mín
KR kemst í hraða sókn eftir að hafa unnið boltann við miðjuna af Greko, Stefán Árni finnur Aron sem kemur sér á hægri og lætur vaða en Aron Birkir ver vel.
17. mín
Þórsarar að fá horn!
Sóttu upp hægra megin og Amin kemst fyrir fyrirgjöfina.
Atli Sig spyrnir að markinu og Halldór grípur.
Atli Sig spyrnir að markinu og Halldór grípur.
15. mín
KR að fá aðra hornspyrnu aftur frá vinstri og Aron Sig mætir á stjá.
Finnur tekur fyrsta skallann, Ástbjörn þann næsta og Aron Birkir grípur.
Finnur tekur fyrsta skallann, Ástbjörn þann næsta og Aron Birkir grípur.
12. mín
MARK!
MARK!Amin Cosic (KR)
Stoðsending: Finnur Tómas Pálmason
Stoðsending: Finnur Tómas Pálmason
Spyrnan frá Aroni fer á fjær, Finnur Tómas nær skalla sem Þórsarar koma frá en ekki langt, boltinn sendur út til hægri á Finn sem hamrar boltann fyrir og Amin mætir þar og stýrir boltanum snyrtilega í hornið.
Frábært mark hjá KR og þeir komnir yfir!
Frábært mark hjá KR og þeir komnir yfir!
8. mín
Fúsi fær flubraut vinstra megin, keyrir á Finn Tómas og kemur boltanum fyrir, Hrafn stöðvar hann og Haugland setur pressu, Hrafn fer í grasið og fær aukaspyrnu við litla hrifningu Þórsara, boltinn féll nefnilega fyrir Greko inná teignum í dauðafæri og þetta var alveg smá soft en líklega rétt þó.
7. mín
Hraði í þessu hérna!
Haugland langaði að skjóta frá miðju með Halldór framarlega, ákvað að hægja aðeins og fá hlaupin í kringum sig, finnur Gústa til hægri sem keyrir svo inn á völlinn en með ömurlegt skot með vinstri vel framhjá úr fínu færi.
Frábær byrjun!
Frábær byrjun!
6. mín
KR-ingar að herja að marki Þórsara!
Núna að dansa í kringum teiginn, boltinn dettur út á Ástbjörn sem er með hann á vinstri, lætur vaða og boltinn rétt framhjá.
4. mín
Dauðarfæri!
Gabríel kemst í frábæra stöðu úti vinstra megin, kemur með stórkostlega fyrirgjöf á Eið Gauta sem er fyrir framan mitt markið en stýrir boltanum framhjá markinu.
Eiður var grunsamlega einn í dauðafæri þarna og á bara að skora.
Eiður var grunsamlega einn í dauðafæri þarna og á bara að skora.
3. mín
Þórsarar komast í fyrsta hættulega upphlaup leiksins, Ágúst fær boltann til hægri, keyrir á Gabríel og finnur Sebastian svo á teignum sem leggur boltann á Greko sem reynir fyrirgjöf frekar en skot og það rennur út í sandinn.
1. mín
Leikur hafinn
Arnór Ingvi setur leikinn í gang!
KR-ingar sækja í átt að félagsheimilinu.
Góða skemmtun!
Góða skemmtun!
Fyrir leik
Atli heiðraður!
Atli Sigurjóns er heiðraður hérna fyrir leik af Magnúsi Schram, formanni knattspyrnudeildar KR fyrir sitt framlag til KR síðustu árin. Atli lék með KR frá 2012-2014 og 2016-2025.
Atli er immti leikjahæsti leikmaður í sögu KR.
340 leikir.
60 mörk.
Atli fær innrammaða treyju sína frá því í fyrra,
Vel gert Atli og vel gert KR!
Atli er immti leikjahæsti leikmaður í sögu KR.
340 leikir.
60 mörk.
Atli fær innrammaða treyju sína frá því í fyrra,
Vel gert Atli og vel gert KR!

Kristalkúlan talar!
KR vs Þór
— Kristalkúlan (@kristalkulan) April 17, 2026
Það eru mörk í lofti á þessum fallega föstudegi og KRingar líklegir til að brenna skipin og meira til. Þeir hljóta því að skora fleiri en 3 mörk hér í dag og því skellum við okkur á KR yfir 2.5 mörk á stuðlinum 1.83 hjá Epichttps://t.co/0Em5V0Q7q4
Fyrir leik
Liðin eru að ljúka kraftmikilli upphitun og fara að koma sér inn til búningsherbergja í lokaundirbúning.
Ég finn einhverja lykt af veislu hérna í kvöld, frábært veður, sólin skín og ég ákvað að skella mér á Huppu hérna á Ægissíðunni til að njóta leiksins enn betur, mæli með þrist, piparfylltum lakkrís og tyrkisk peber í rjómaís!
Ég finn einhverja lykt af veislu hérna í kvöld, frábært veður, sólin skín og ég ákvað að skella mér á Huppu hérna á Ægissíðunni til að njóta leiksins enn betur, mæli með þrist, piparfylltum lakkrís og tyrkisk peber í rjómaís!
Fyrir leik
Dóri í rammanum
Halldór Snær Georgsson mun standa vaktina í marki KR eftir meiðsli Arnars Freys Ólafssonar.
16.04.2026 14:53
Halldór Snær verður í markinu - „Svona 3500 markmenn sendir til okkar"
Fyrir leik
Ágúst spáir!
KR 4 - 1 Þór
Eftir góða byrjun hjá mínum fellow norðanmönnum í Þór, að þá held ég að þeir fái gamla góða velkomnir í Bestu skellinn strax í annarri umferð, sem ég held að sé bara gott að fá hann snemma, KR-ingarnir taka þennan leik.
Ágúst þegar hann samdi við Þór undir stjórn Gregg Ryder, sem hefur einmitt þjálfað bæði KR og Þór!
Eftir góða byrjun hjá mínum fellow norðanmönnum í Þór, að þá held ég að þeir fái gamla góða velkomnir í Bestu skellinn strax í annarri umferð, sem ég held að sé bara gott að fá hann snemma, KR-ingarnir taka þennan leik.
Ágúst þegar hann samdi við Þór undir stjórn Gregg Ryder, sem hefur einmitt þjálfað bæði KR og Þór!

16.04.2026 19:30
Ágúst spáir í 2. umferð Bestu deildarinnar
Fyrir leik
ÞÞÞ flautar!
Honum til aðstoðar verða þeir Kristján Már Ólafs, Tomasz Piotr Zietal og svo Hreinn Magnússon á skiltinu ásamt því að siða til Óskar Hrafn og Sigga Höskulds.
Forsti Viðar Gunnarsson verður svo í stúkunni a blysavaktinni og taka út störf hinna fjögurra.
Doddbot sussar!
Forsti Viðar Gunnarsson verður svo í stúkunni a blysavaktinni og taka út störf hinna fjögurra.

Doddbot sussar!
Fyrir leik
Fyrsta umferðin!
KR-ingar fengu Keflavík heim í hádramatískan leik þar sem Keflvíkingar virtust vera að hirða stigin þrjú með sér á Reykjanesbrautina, en allt kom fyrir ekki og KR snéri taflinu við á augabragði undir lok leiks þar sem Alecander Rafn PálmaRafnsson skoraði sigurmarkið.
Þórsarar gerðu þá góða ferð til nágranna KR á Hlíðarenda, þar sem Ingimar Arnar skoraði sigurmark seint í leiknum við gríðarleg fagnaðarlæti Þórsara á staðnum sem innihéldu blys, sektir, stemningu og læti.
Ef að KR-ingar vinna áfram með þá stemningu og spennu sem hefur verið í kringum þeirra lið, og Þórsarar fjölmenna hingað eins og á Hlíðarenda og styðja sína menn, gætum við fengið alvöru slag bæði á vellinum og í stúkunni.
Þórsarar gerðu þá góða ferð til nágranna KR á Hlíðarenda, þar sem Ingimar Arnar skoraði sigurmark seint í leiknum við gríðarleg fagnaðarlæti Þórsara á staðnum sem innihéldu blys, sektir, stemningu og læti.
Ef að KR-ingar vinna áfram með þá stemningu og spennu sem hefur verið í kringum þeirra lið, og Þórsarar fjölmenna hingað eins og á Hlíðarenda og styðja sína menn, gætum við fengið alvöru slag bæði á vellinum og í stúkunni.
Fyrir leik
Góðan dag kæri lesandi!
Og vertu velkominn í þráðbeina textalýsingu frá leik KR og Þórs í Bestu-deild karla.
föstudagur 17. apríl
16:30 Valur-ÍBV (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:30 KR-Þór (Meistaravellir)
17:30 KA-Víkingur R. (Greifavöllurinn)
18:00 Fram-Keflavík (Lambhagavöllurinn)
18:00 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur)
20:00 Stjarnan-FH (Samsungvöllurinn)
föstudagur 17. apríl
16:30 Valur-ÍBV (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:30 KR-Þór (Meistaravellir)
17:30 KA-Víkingur R. (Greifavöllurinn)
18:00 Fram-Keflavík (Lambhagavöllurinn)
18:00 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur)
20:00 Stjarnan-FH (Samsungvöllurinn)
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
5. Yann Emmanuel Affi
7. Atli Sigurjónsson
('58)
('58)
8. Einar Freyr Halldórsson
9. Sebastian Heimvik Haugland
('58)
('58)
15. Kristófer Kristjánsson
19. Ragnar Óli Ragnarsson
('64)
('64)
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
('74)
('74)
25. Christian Greko Jakobsen
('58)
('58)
37. Sigfús Fannar Gunnarsson
- Meðalaldur 26 ár
Varamenn:
28. Franko Lalic (m)
4. Hermann Helgi Rúnarsson
10. Aron Ingi Magnússon
('74)
('74)
11. Isaac Atanga
('58)
('58)
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
('58)
('58)
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason
18. Sverrir Páll Ingason
('64)
('64)
23. Ingimar Arnar Kristjánsson
('58)
('58)
31. Kristófer Kató Friðriksson
Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Arnar Geir Halldórsson
Halldór Mar Einarsson
Stefán Ingi Jóhannsson
Davíð Örn Aðalsteinsson
Konráð Grétar Ómarsson
Eiður Benedikt Eiríksson
Gul spjöld:
Ágúst Eðvald Hlynsson ('37)
Yann Emmanuel Affi ('64)
Bjarni Guðjón Brynjólfsson ('82)
Rauð spjöld:

