Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Besta deildin
Stjarnan
20:15 0
0
FH
Besta deildin
Fram
LL 3
1
Keflavík
Besta deildin
Breiðablik
LL 1
0
ÍA
Besta deildin
KR
LL 5
2
Þór
Besta deildin
KA
LL 0
2
Víkingur R.
Besta deildin
Valur
LL 2
1
ÍBV
KA
0
2
Víkingur R.
0-1 Gylfi Þór Sigurðsson '76 , víti
0-2 Elías Már Ómarsson '87
17.04.2026  -  17:30
Greifavöllurinn
Besta deildin
Aðstæður: 10° hiti, logn og fáein ský á himni. Þetta eru kjöraðstæður.
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Áhorfendur: Ekki vitað
Maður leiksins: Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
Byrjunarlið:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
2. Birgir Baldvinsson ('27)
4. Rodrigo Gomes Mateo
8. Jeppe Pedersen
14. Danijel Dejan Djuric ('67)
16. Jakob Héðinn Róbertsson ('67)
17. Samuel Karl Kroon ('81)
23. Markús Máni Pétursson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson
44. Valdimar Logi Sævarsson ('81)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
3. Kári Gautason ('27)
15. Oliver Heiðarsson ('67)
19. Breki Hólm Baldursson ('81)
20. Diego Montiel ('67)
21. Mikael Breki Þórðarson ('81)
25. Bjarki Fannar Helgason
27. Árni Veigar Árnason
91. Snorri Kristinsson

Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)
Atli Sveinn Þórarinsson
Halldór Hermann Jónsson
Petar Ivancic
Tryggvi Björnsson
Egill Daði Angantýsson
Nicklas Cleemann Rulle

Gul spjöld:
Steinþór Már Auðunsson ('75)
Markús Máni Pétursson ('86)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Víkingar gera góða ferð norður yfir heiðar og vinna sterkan 0-2 sigur á KA á Greifavellinum. Mikið jafnræði var með liðunum, en eftir mark Gylfa náðu KA menn ekki að ógna marki gestann af neinu ráði og allur vindur var úr heimamönnum þegar að varamennirnir Helgi og Elías bjuggu til seinna mark Víkings.

Takk fyrir mig!
94. mín
Þarna hefðu Víkingar átt að fá víti! Sýndist það vera Ármann Ingi sem var tekinn niður, en Gunnar Oddur nennir ekki að dæma annað víti. Mikið kraðak fylgdi í kjölfarið en endaði með horni.
92. mín
Uppbótartíminn 5 mínútur í uppbót og Víkingar eiga horn eftir hættulegt skot Óskars Borgþórssonar.
87. mín MARK!
Elías Már Ómarsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Helgi Guðjónsson
VÍKINGAR ERU AÐ KLÁRA ÞETTA!! Helgi Guðjónsson setur boltann utarlega inná teig KA og þar mætir Elías Már Ómarsson og stangar boltann í nærhornið. Steinþór virtist illa staðsettur í markinu og á þar af leiðandi ekki séns á að verja skalla Elíasar.

0-2!
87. mín
Og Víkingar fá aukaspyrnu úti vinstra megin núna. Talsvert aftar á vallarhelmingi KA í þetta sinn.
86. mín Gult spjald: Markús Máni Pétursson (KA)
Víkingar fá aukaspyrnu á glimrandi stað úti á hægri kantinum.
82. mín
Oliver nærri! Breki Hólm á fínan bolta inná teig Víkinga og Oliver Heiðarsson er hársbreidd frá því að lauma tá í boltann!
81. mín
Inn:Mikael Breki Þórðarson (KA) Út:Samuel Karl Kroon (KA)
81. mín
Inn:Breki Hólm Baldursson (KA) Út:Valdimar Logi Sævarsson (KA)
80. mín
Valdimar Logi Sævarsson liggur eftir á vellinum og þarfnast aðhlynningar. Sýnist hann hafa lokið leik.
79. mín
Inn:Helgi Guðjónsson (Víkingur R.) Út:Tarik Ibrahimagic (Víkingur R.)
79. mín
Inn:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.) Út:Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
76. mín Mark úr víti!
Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur R.)
VÍKINGAR KOMAST YFIR!! Sendir Steinþór í vitlaust horn. Aldrei spurning!
75. mín Gult spjald: Steinþór Már Auðunsson (KA)
74. mín
VÍKINGAR FÁ VÍTASPYRNU! Veður út á móti Valdimar Þór og blokkar afgreiðsluna hans, en tekur hann niður í leiðinni.
72. mín
Flott varsla! Og meiðsli. Daníel á hörkuskot rétt fyrir utan vítateig og Steinþór Már ver vel með fætinum. Leikurinn stoppar í kjölfarið þar sem að Steinþór virðist hafa meitt sig.
72. mín
Daníel Hafsteinsson reynir skot að marki KA manna eftir mikið klafs í vítateig KA og vinnur hornspyrnu.
67. mín
Inn:Oliver Heiðarsson (KA) Út:Jakob Héðinn Róbertsson (KA)
Fyrstu mínútur Olivers í gulu og bláu
67. mín
Inn:Diego Montiel (KA) Út:Danijel Dejan Djuric (KA)
67. mín
Ágætis séns! KA menn sækja hratt eftir aukaspyrnuna og Kári Gautason geysist með boltann fram. Hann veður að vítateig Víkinga og reynir að skrúfa boltann í fjær, en setur boltann yfir.
66. mín
Víkingar fá aukaspyrnu úti á hægri kantinum. Þetta er nánast hornspyrna.
64. mín
Inn:Ármann Ingi Finnbogason (Víkingur R.) Út:Erlingur Agnarsson (Víkingur R.)
64. mín
Inn:Elías Már Ómarsson (Víkingur R.) Út:Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
60. mín
Færi! Erlingur Agnarsson sleppur aftur fyrir vörn KA, en Steinþór Már er fljótur af línunni og nær að hrekja Erling utarlega í vítateig KA. Sóknin svo hálfpartinn rennur út í sandinn.
55. mín
Steinþór Már kýlir fyrirgjöf í burtu og markmaðurinn stæðilegi og Erlingur Agnarsson skella saman. Aukaspyrna er dæmd á Víking þegar að KA menn hefðu líklega frekar bara viljað freista þess að sækja hratt.
51. mín Gult spjald: Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
Rífur Valdimar niður. Alveg hárrétt.
47. mín
Karl Friðleifur aleinn! Steinþór ver skalla Karls Friðleifs eftir horn Gylfa. Karl var gjörsamlega einn og yfirgefinn á fjærstönginni og var ekki fjarri því að koma gestunum yfir strax í upphafi seinni hálfleiks!
46. mín
Inn:Róbert Orri Þorkelsson (Víkingur R.) Út:Oliver Ekroth (Víkingur R.)
Gylfi kominn með bandið.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn! Víkingar hefja leik með boltann hér í seinni hálfleik!
45. mín
Hálfleikur
-auglýsing

XB

Hálfleikur og þá tilvalið kynna sér framboð Framsóknar á Akureyri og lesa greinina ,,Spörum okkur ekki til óbóta“ eftir Sunnu Hlín og Sverre Jakobsson sem fjallar einmitt um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Akureyri.

Spörum okkur ekki til óbóta
45. mín
Hálfleikur
Baráttumiklum fyrri hálfleik lokið. Bæði lið fengið fína séns til þess að taka forystu í þessum leik, en ákvarðanatakan hefur verið undir pari hjá báðum liðum á síðasta þriðjungi.

Sjáumst eftir korter!
45. mín Gult spjald: Oliver Ekroth (Víkingur R.)
+4 Tekur Danijel Djuric niður til að stoppa skyndisókn.
45. mín
+2 ALGJÖRT DAUÐAFÆRI!! Danijel Djuric hirðir boltann af Gunnari Vatnhamar og veður í átt að markinu, einn gegn Ingvari. Í stað þess að taka 2-3 snertingar í viðbót og skjóta, þá reynir hann að setja boltann þvert fyrir á Jakob Héðinn sem hefði verið í enn betra færi en sendingin er fyrir aftan Húsvíkinginn og færið rennur út í sandinn.

Afar klaufalegt!
45. mín
Uppbótartíminn Þrjár mínútur í uppbót.
44. mín
Dauðafæri! Samuel Kroon á frábæra sendingu á nærstöngina og þar mætir Danijel Djuric. Honum tekst ekki að stýra boltanum á markið og boltinn fer yfir. Langbesta færi heimamanna í fyrri hálfleik!
41. mín
Tarik ýtir við Valdimar Loga þegar Valdimar liggur eftir að hafa farið inn í sendingu Tarik og fallið í grasið. Stórundarlegt allt saman, en fljótlega leyst.
39. mín
Ekkert kemur úr horninu, en KA menn halda boltanum og hafa aðeins verið ofan á í baráttunni síðustu mínútur.
38. mín
Fyrsta horn KA Kári Gautason gerir vel í að vinna fyrsta horn KA, en andartökum áður klikkaði Danijel Djuric á sendingu sem að hefði sett Jakob Héðinn einan í gegn.
36. mín
KA menn hafa haldið ágætis pressu á gestina síðustu mínútur, án þess þó að skapa sér marktækifæri.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Þetta var séns! Gylfi á flotta sendingu á fjær þar sem að bæði Oliver Ekroth og Gunnar Vatnhamar eru aleinir. Þeir vaða báðir í boltann og mér sýndist Ekroth hreinlega negla Gunnar niður í æsingnum. Hann lá eftir, en er nú kominn á fætur.

Klaufalegt að koma þessu ekki á markið!
29. mín
Víkingar fá aukaspyrnu inná miðjum vallarhelmingi KA manna. Og það er Gylfi sem að býr sig undir að taka spyrnuna - öllum að óvörum.
27. mín
Inn:Kári Gautason (KA) Út:Birgir Baldvinsson (KA)
Birgir virtist vera farinn aftan í læri. Ekki góðar fréttir fyrir KA.
25. mín
Gullið tækifæri í súginn! KA menn eru í yfirtölu á blússandi ferð í skyndisókn inni á vallarhelmingi Víkinga, en Valdimar Logi missir boltann of langt frá sér og Tarik Ibrahimagic nær að pota boltanum undan lappa Valdimars.
22. mín
Hans Viktor kveinkar sér lítillega og leikurinn er stoppaður, en hann virðist klár í að halda leik áfram.
19. mín
Oliver Ekroth skallar framhjá markinu og KA menn reyna að hefja sókn.
18. mín
Hans Viktor skallar frá fyrirgjöf og boltinn endar aftur fyrir. Gylfi tekur hornið.
17. mín
Óskar Borgþórsson á bylmingsskot inná teig KA, en það fer í varnarmann og sókn Víkinga rennur út í sandinn.
15. mín
Víkingar hafa tekið völdin hér á Greifavellinum og KA menn liggja aftarlega.
13. mín
Færi! Karl Friðleifur vinnur skallaboltann eftir horn Gylfa og boltinn dettur fyrir Nikolaj Hansen sem að nær skoti að marki KA, sem að er skallað aftur fyrir. Boltinn fór rétt framhjá markinu!
12. mín
Nikolaj Hansen í mikilli baráttu um boltann inná teig KA og það er hreinsað í horn.
11. mín
Hornspyrna Gylfa fer seint í sögubækurnar sem hans besta. Víkingar halda boltanum.
10. mín
Víkingar fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
7. mín
Stöðubarátta Mikil barátta þessar fyrstu mínútur og hvorugt liðið haldið í boltann af einhverju viti.
4. mín
Tarik Ibrahimagic tæklar Guðjón Erni hressilega niður, tekur mann og bolta og innkast er niðurstaðan. Það var alveg hægt að flauta á þetta.
2. mín
Víkingar fá aukaspyrnu inná miðjum vallerhelmingi KA manna. Gylfi Þór stendur yfir boltanum.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er komið af stað! Það eru heimamenn í KA sem að koma leiknum af stað.
Fyrir leik
Glimrandi góð mæting Vel er mætt í stúkuna á Greifavellinum og áhorfendur láta nú þegar vel í sér heyra. Gestirnir eiga þónokkra söngelska fulltrúa í stúkunni og við fögnum því.
Fyrir leik
Hallgrímur Mar aumur í mjöðminni Haddi segir við Sýn að Hallgrímur Mar sé aumur í mjöðminni en ætti að vera orðinn klár í næsta leik.
Fyrir leik
Fyrir leik
Fyrir leik
Þrjár breytingar á liðunum - Grímsi ekki með Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir eina breytingu á sínu liði frá leiknum gegn Stjörnunni. Hallgrímur Mar Steingrímsson er ekki með KA í dag og inn í liðið kemur Valdimar Logi Sævarsson. Sveinn Margeir Hauksson er á láni frá Víkingi og ákvæði er í samningnum sem gerir það ekki aðlaðandi fyrir KA að spila honum í dag og er hann því utan hóps. Oliver Heiðarsson er hins vegar í fyrsta sinn í hóp eftir komuna frá Króatíu.

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir tvær breytingar á sínu liði frá leiknum gegn Breiðabliki. Tarik Ibrahimagic kemur inn fyrir Helga Guðjónsson og Erlingur Agnarsson byrjar í stað Stígs Diljans Þórðarsonar. Helgi tekur sér sæti á bekknum en Stígur er ekki með í dag. Miðað við skýrsluna á vef KSÍ eru einungis sjö á bekknum hjá Víkingi. Aron Elís Þrándarson er áfram utan hóps en Róbert Orri Þorkelsson, Ármann Ingi Finnbogason og Jóhannes Kristinn Bjarnason koma inn á bekkinn. Þeir Sveinn Gísli Þorkelsson og Davíð Örn Atlason detta úr hópnum.
Fyrir leik
Dómarateymið Gunnar Oddur Hafliðason er með flautuna í dag. Honum til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Arnþór Helgi Gíslason. Elías Ingi Árnason er fjórði dómari og Vilhelm Adolfsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Oddur
Fyrir leik
Spáir fimm marka leik Tónlistamaðurinn Ágúst Þór Brynjarsson er spámaður umferðarinnar.

KA 2 - 3 Víkingur R.
Það er bara ekki annað hægt en að spá Víkingnum sigri með þetta lið sitt, þetta verður tæpt því KA menn verða sprækir, fáum líklegast mörk frá Jakobunum tveimur í liði KA og Valdimar hjá Vikes opnar markareikninginn þetta sumarið.
Mynd: Úr einkasafni
Fyrir leik
Djuric býður Víkinga velkomna í heimsókn Það verður að teljast líklegt að Danijel Dejan Djuric hefur merkt sérstaklega við þennan leik á dagatalinu sínu. Sóknarmaðurinn litríki átti frábæran tíma í Víkinni og fór þaðan með aragrúa af fallegum minningum í farteskinu.

En það virðist hreinlega innbyggt í flest íþróttafólk að vera staðráðið í því að gera vel gegn sínum gömlu liðum og telur undirritaður það sérstaklega eiga við í tilfelli Danijel Djuric - ef mið er tekið af þeim skemmtilega persónuleika sem að hann hefur að geyma. Það verður því afar fróðlegt að sjá hann kljást við sína g0mlu liðsfélaga.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Átti góða spretti gegn Stjörnunni og hlakkar líklega mikið til að mæta Víkingum.
Fyrir leik
Smávægilegar breytingar Eins og áður hefur komið fram er óæskilegt fyrir KA menn að spila Sveini Margeiri í dag, en ósennilegt verður að þykja að Jakob Snær Árnason verði heldur með KA liðinu í dag. Hann átti að byrja fyrsta leik tímabilsins gegn Stjörnunni, en þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla og inn í hans stað kom Jakob Héðinn Róbertsson en Húsvíkingurinn ungi skoraði í leiknum sitt fyrsta mark fyrir KA.

Þá kemur Færeyingurinn Jóan Símun Edmundsson að öllum líkindum inn fyrir Svein Margeir. Jóan Símun átti erfitt uppdráttar fyrri hluta móts síðasta sumar, líkt og venja hefur verið hjá flestum í KA liðinu, en spilaði vel seinni hlutann.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Jakob Héðinn vonast til þess að fylgja eftir öflugri byrjun í KA treyjunni.
Fyrir leik
Heimkoma Daníels og Sveinn má ekki spila Uppaldi KA maðurinn Daníel Hafsteinsson mætir aftur á sinn gamla heimavöll í Víkingstreyju, en hann yfirgaf Brekkuna fyrir Fossvoginn eftir að hafa tekið þátt í að vinna fyrsta bikarmeistaratitil KA árið 2024. Sögur herma að freistandi samningstilboð frá KA hafi verið á borðinu, en miðjumaðurinn hæfileikaríki ákvað að söðla um. Hann átti svo stóran þátt í að hjálpa Víkingum að endurheimta Íslandsmeistaratitilinn á síðasta ári.

Á sama tíma og Víkingar tilkynntu komu Daníels, þá tilkynntu þeir einnig komu Dalvíkingsins og fyrrum/núverandi KA-mannsins Sveins Margeirs Haukssonar. Sveinn Margeir hefur átt við erfið hnémeiðsli að stríða og töldu Víkingar þjóðráð að lána leikmanninn til KA svo að hann nái vopnum sínum á ný og fái nægan spiltíma. En þar sem að umrædd lið spila innbyrðis í dag verður spiltíminn ekki fyrir hendi - og þar af leiðandi þarf Sveinn að horfa á leikinn úr Greifavallarstúkunni eða í sjónvarpinu heima.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel, Sveinn Margeir og Hrannar Björn Steingrímsson á góðri stundu.
Fyrir leik
Gult og blátt varð fyrir valinu KA menn styrktu framlínu sína verulega með komu Olivers Heiðarssonar og voru hlutskarpastir í kapphlaupinu um sóknarmanninn kraftmikla. Valur, Breiðablik og Keflavík voru einnig á höttunum á eftir Oliver, en honum leist best á verkefnið fyrir norðan. Oliver kemur frá króatíska liðinu Lokomotiva Zagreb, en þrátt fyrir að hafa fengið að njóta góða veðursins í botn að þá fékk hann aldrei tækifæri til þess að sýna raunverulega hvað í sér býr.

Oliver sagði í viðtali við Sæbjörn Steinke að aðdragandinn hefði verið með þeim hætti að Keflvíkingar hefðu haft samband og tilkynnt Oliver að hann væri laus.

,,Ég fæ þau skilaboð frá Keflavík að ég sé orðinn laus og svo fæ ég eiginlega að velja mitt lið og ég er ánægður að velja KA á endanum,'' sagði Oliver.

Oliver sagði að það hefði verið pæling að fara aftur til Vestmannaeyja og spila með ÍBV, en hann hefði á endanum viljað nýja áskorun. Hann sagðist ekki reiðubúinn í alvöru mínútur, en reiknaði með því að spila einhverjar mínútur. Í öllu falli verður hann valmöguleiki fyrir Hallgrím Jónasson í dag.

Mynd: KA

Gulur og blár.
   15.04.2026 23:30
Oliver: Keflavík tilkynnti mér að ég væri laus
Fyrir leik
Góðan og blessaðan daginn! Hér mun fara fram textalýsing á leik KA og Víkings R. í Bestu-deild karla.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hart tekist á í leik liðanna á síðustu leiktíð.

föstudagur 17. apríl
16:30 Valur-ÍBV (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:30 KR-Þór (Meistaravellir)
17:30 KA-Víkingur R. (Greifavöllurinn)
18:00 Fram-Keflavík (Lambhagavöllurinn)
18:00 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur)
20:00 Stjarnan-FH (Samsungvöllurinn)
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth (f) ('46)
6. Gunnar Vatnhamar
7. Erlingur Agnarsson ('64)
10. Gylfi Þór Sigurðsson
11. Daníel Hafsteinsson ('79)
19. Óskar Borgþórsson
20. Tarik Ibrahimagic ('79)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
23. Nikolaj Hansen ('64)
25. Valdimar Þór Ingimundarson
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
29. Aron Snær Friðriksson (m)
8. Viktor Örlygur Andrason ('79)
9. Helgi Guðjónsson ('79)
14. Jóhannes Kristinn Bjarnason
15. Róbert Orri Þorkelsson ('46)
28. Elías Már Ómarsson ('64)
69. Ármann Ingi Finnbogason ('64)

Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen (Þ)
Kári Sveinsson
Viktor Bjarki Arnarsson
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Rúnar Pálmarsson
Aron Baldvin Þórðarson
Daníel Darri Arnarsson

Gul spjöld:
Oliver Ekroth ('45)
Daníel Hafsteinsson ('51)

Rauð spjöld: