Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
Keflavík
0
0
Breiðablik
22.04.2026  -  18:00
HS Orku völlurinn
Besta deildin
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Keflavík þarf að laga varnarleikinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er svekktur með frammistöðuna og úrslitin. Mér fannst við byrja leikinn nokkuð vel en við vorum klaufar, það var barnalegur varnarleikur í fyrsta markinu og við gefum þeim svolítið boltann," sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, eftir 3-1 tap gegn Fram í síðustu umferð.

„Við þurfum klárlega að laga varnarleikinn hjá okkur, við erum búnir að spila tvo leiki í þessari deild og fá á okkur 6 mörk samtals. Það segir sig sjálft að það gengur ekki upp og við þurfum að byrja á því að geta varið markið okkar."

Nýliðar Keflavíkur eru án stiga en þeir töpuðu gegn KR í fyrstu umferð.
Fyrir leik
Stirður sóknarleikur Blika
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppskera Breiðabliks í byrjun móts eru fjögur stig. Liðið vann ÍA í síðustu umferð þar sem Höskuldur Gunnlaugsson skoraði eina markið úr vítaspyrnu.

Það er óhætt að segja að sóknarleikur Blika hafi verið ansi takmarkaður í byrjun móts. Varnarleikurinn hefur verið helsta vopn liðsins í fyrstu umferðunum.

„Ánægður með að hafa unnið. Þetta var mjög erfiður leikur. Mér fannst við vera stýra leiknum ágætlega í fyrri hálfleik þó að við sköpuðum kannski ekki margar stöður sem við búum til færi úr. Í seinni hálfleik fannst mér við passívir og skrefinu á eftir. Kannski pínu heppnir að hafa náð að hanga á þessu. Það er jákvætt að taka þrjú stig og spila ekki eins vel og við getum," sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, eftir sigurinn gegn ÍA.
Fyrir leik
Fyrsti grasleikur Bestu deildarinnar Þessi leikur er fyrsti leikur tímabilsins sem ekki fer fram á gervigrasi.

Það þykir nokkrum tíðindum sæta að HS Orkuvöllurinn sé tilbúinn að heita má svo snemma vors en undanfarin ár hefur hann verið seinn að ná sér eftir veturinn og oft verið í mun verra ástandi er mun lengra hefur verið liðið á vorið.

Sverrir Örn Einarsson fjallaði um vallarmál Keflavíkur:


   20.04.2026 13:46
Spilað á grasi í Keflavík - Búið að mála völlinn
Fyrir leik
Þriðja liðið kemur að norðan
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Hjörtur Þrastarson dæmir leikinn hér í Keflavík. Patrik Feyr Guðmundsson og Eðvarð Þór Eðvarðsson eru aðstoðardómarar. Tríó að norðan. Þá er Elías Ingi Árnason með skiltið góða og Gylfi Þór Orrason er eftirlitsmaður.

Gylfi var eftirlitsmaður á viðureign Arsenal og Sporting frá Lissabon í Meistaradeildinni á dögunum svo hann er að fá nóg af stórum verkefnum um þessar mundir!
Fyrir leik
Síðasti vetrardagur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heil og sæl og velkomin með okkur í beina textalýsingu frá leik Keflavíkur og Breiðabliks í 3. umferð Bestu deildarinnar. Sumardagurinn fyrsti er á morgun en að mínu mati er fyrsti sumardagurinn í raun upphafsdagur Bestu deildarinnar!

miðvikudagur 22. apríl
18:00 ÍA-KA (Akraneshöllin)
18:00 Keflavík-Breiðablik (HS Orku völlurinn)

fimmtudagur 23. apríl
13:00 ÍBV-KR (Hásteinsvöllur)
17:00 Þór-Fram (VÍS völlurinn)
19:15 Valur-FH (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: