SKÝRSLAN: Léleg færanýting í höllinni
Hvað réði úrslitum?
KA menn gerðu þriggja manna breytingu um miðjan seinni hálfleik sem mér fannst breyta leiknum. Á undan því hefðu Skagamenn átt að vera búnir að gera út um leikinn en klikkuðu á nokkrum dauðafærum. Ég held að bæði lið fari grautfúl af vellinum í dag. KA líklega ívið sáttari samt sem áður eins og Haddi sagði í viðtali eftir leik.
Bestu leikmenn
1. Haukur Andri Haraldsson (ÍA)
Var lúsiðinn og frábær á miðjunni í dag frá fyrstu til þeirra síðustu. Gaf sig einhvernveginn allan fram á báðum endum vallarins og var klárlega besti maður vallarins.
2. Steinþór Már Auðunsson (KA)
Hélt gestunum inni í leiknum algjörlega á köflum og varði nokkrum sinnum stórkostlega. Stubburinn á skilið einn, ef ekki tvo, kalda á leiðinni heim.
Atvikið
Þrefalda breyting Hadda um miðjan seinni hálfleik. Þær breytu algjörlega leiknum. Heildarbragur KA manna varð mikið betri bæði varnar- og sóknarlega.
Hvað þýða úrslitin?
Skagamenn sækja í sinn annan púnt á töfluna og KA er komið á blað eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum.
Vondur dagur
Gísli Laxdal fékk dauðafæri og skot í tvígang sem hann lét verja frá sér. Hann hefði átt að skora þar og klára þetta fyrir sína menn.
Dómarinn - 8
Ég geri ráð fyrir því að það er ekkert kósý að dæma inni í Akraneshöllinni en Helgi og félagar leystu vel úr þessu. Einn og einn dómur sem ég er ósammála eins og gengur og gerist en annars spot on.




