Í BEINNI
Besta karla
ÍBV
LL
2
6
6
KR

Valur
0
0
FH

23.04.2026 - 19:15
N1-völlurinn Hlíðarenda
Besta karla
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
N1-völlurinn Hlíðarenda
Besta karla
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Byrjunarlið:
Varamenn:
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Fyrir leik
Dómarinn
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson verður með flautuna í þessum leik, en honum til aðstoðar verða Gylfi Már Sigurðsson og Ragnar Þór Bender. Gunnar Oddur Hafliðason verður fjórði dómari og Ólafur Ingi Guðmundsson er eftirlitsmaður KSÍ.

Fyrir leik
Spáin
Þriðja umferðin fer af stað strax í kvöld og tók Sigurður Ragnar Eyjólfsson að sér það verkefni að spá í spilin. Siggi Raggi er að gera frábæra hluti sem þjálfari NSÍ Runavíkur þessa stundina og situr á toppnum í færeyska fótboltanum.
Fyrir leik
Hafnfirðingar án sigurs
FH eins og Valur eru búnir að mæta ÍBV en, Hafnfirðingar gerðu jafntefli í Eyjum í fyrstu umferðinni. Í síðustu umferð var ferðalagið þeirra styttra þar sem þeir fóru að heimsækja Stjörnuna úr Garðabæ. FH var undir í baráttunni allan þann leik en voru samt á einhvern hátt með 2-2 stöðu þegar lítið var eftir. Þá skoraði Andri Rúnar Bjarnason fyrir Stjörnuna sigurmarkið og FH því aðeins með eitt stig eftir tvo leiki.

Fyrir leik
Valsarar komu til baka síðast
Tímabilið byrjaði ill hjá Val þar sem þeir töpuðu fyrir nýliðum Þórs í fyrstu umferð 2-1. Það leit út fyrir að ÍBV myndi bara bæta gráu ofan á svart þegar þeir komust svo 1-0 yfir í síðustu umferð. Valsarar komu hins vegar til baka og unnu leikinn 2-1. Því er Valur með þrjú stig eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Byrjunarlið:
Varamenn:
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Rauð spjöld:

