Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetAlexander Tonini
Alexander Tonini
Valur
Valur
Besta karla
N1-völlurinn Hlíðarenda
8 gráður, léttskýjað en smá rok
1 - 4
KR
KR
0 - 110' Ástbjörn Þórðarson 0 - 245' Stefán Árni Geirsson 0 - 361' Stefán Árni Geirsson Dagur Orri Garðarsson 92'1 - 31 - 495' Amin Cosic
Dómari: Elías Ingi Árnason
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: KR með sína bestu frammistöðu á Hlíðarenda

Hvað réði úrslitum?

Gæðin, hraðinn, leiknin og fótboltinn sem KR er að spila þessa stundina réðu úrslitum í þessum leik. Það virðist ekkert lið ráða við KR sem eru að vinna sína leiki sannfærandi og örugglega. Hefði Valur nýtt sínar skyndisóknir í fyrri hálfleik og fengið víti hefði þetta mögulega geta þróast með öðrum hætti. En eins og einhver sagði "Ef og mundi sautján fætur á einum hundi"

Bestu leikmenn

1. Stefán Árni Geirsson

Það voru margir góðir hjá KR í kvöld en ég verð að gefa Stefáni þetta. Kemur inn í liðið í stað Eiðs Gauta og skorar tvennu. Var virkilega flottur í spilinu líka og náði góðri tengingu við leiftursnöggan sóknarbolta KR án aðlögunar. Menn verða að fá þetta val þegar svoleiðis ber að garði.

2. Amin Cosic

Finnur Tómas gerði líka tilkall en þegar Amin setti mark í blálokin var ekki annað hægt að en að velja hann aftur. Hann hefur eins og Óskar sagði í viðtali eftir leik tekið gríðarlegum framförum á þessu tímabili. Ég öfunda ekki hægri bakverði sem þurfa að eiga við hann þessa stundina.

Atvikið

Atvik leiksins er þegar Lúkas Logi Heimisson er kominn í góða stöðu inni í teig og leikur nokkuð laglega á Ástbjörn sem fellir hann niður. Valur hefði átt að fá víti og voru á þeim tíma undir 0-1. Elías Ingi dæmir hins vegar ekkert.

Hvað þýða úrslitin?

KR er ennþá á toppnum og er nú búið að skora 22 mörk í 5 leikjum. Nú er spurningin hvort að KR séu að fara að blanda sér í tililbaráttu? Fyrir Val þýða úrslitin að liðið er sennilega aðeins á eftir KR og liðunum sem munu blanda sér í toppbaráttuna. Náðu ekki að fylgja eftir góðum leik á móti Stjörnunni og töpuðu þessum leik nokkuð örugglega.

Vondur dagur

Hörður Ingi Gunnarsson fær þetta í dag en ég skal taka það fram að verkefnið hans hét Amin Cosic og það er hægara sagt en gert að leysa það. En hann kórónaði erfiðan dag með því að ofhugsa hvað hann átti að gera í kapphlaupi við Amin í uppbótartíma og hitti ekki boltann og datt. Amin Cosic þakkaði fyrir sig, tók nokkur skæri á Schram greyið sem reyndi að fella hann en var langt frá því og setti boltann í autt markið.

Dómarinn - 4

Ég skil gremju Hemma eftir leik, Lúkas Logi var tekinn niður af Ástbirni inni í teig á 21. mínútu. Staðan var þá 1-0 fyrir KR. Svo hefði hann mátt rífa upp gula spjaldið nokkrum sinnum í þessum leik. Vildi láta leikinn fljóta og ég skil það vel en fyrr má nú vera. Hann var ekki alveg tilbúinn í þennan stórleik að mínu mati.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.