SKÝRSLAN: Markaregn á króknum - Átta mörk í seinni hálfleik
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í dag var hreinlega bara getumunurinn og reynslan. Keflavík var með algjöra yfirburði á öllum sviðum og sýndu það svo sannarlega í seinni hálfleik.
Bestu leikmenn
1. Ariela Lewis
Ariela Lewis var flott í dag, kom Keflvíkingum á bragðið með fyrsta markinu og kom svo Keflavík strax yfir á fyrstu mínútu seinni hálfleiks. Frábær leikmaður sem það þarf að vera ON fyrir Keflavík sumar ætla þær að blanda sér í toppbaráttuna
2. Margrét Viktoría Harðardóttir
Hin unga og efnilega Margrét Viktoría átti mjög góðan leik í dag. Hún er aðeins 14 ára en spilaði eins og hún væri með margra ára reynslu. Spennandi leikmaður sem fólk ætti að fylgjast með í sumar!
Atvikið
Ég set þetta á jöfnunarmark Tindastóls. Keflavík höfðu spilað 99% af leiknum á vallarhelmingi Tindastóls og hefðu átt að vera nokkrum mörkum yfir í fyrri hálfleik. Hin unga og efnilega Hrafney Lea hins vegar var fljót að hugsa og öskufljót að hlaupa og klobbaði Önnu markmann Keflavíkur. Skyndisókn sem kom úr gjörsamlega engu! Hélt von í Tindastólsliðinu í hálfleik
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það einfaldlega að Keflavík nælir sér í sinn fyrsta sigur og þrjú stig og smellir sér þannig í fyrsta sæti Lengjudeildarinnar. Tindastóll hins vegar byrja sitt tímabil á stóru tapi og í síðasta sætið.
Vondur dagur
Svo sem enginn sem átti eitthvað sérstaklega slæman dag en Tea í marki Tindastóls hefði mögulega átt að taka aðeins fleiri bolta í seinni hálfleik. Vont að fá á sig 8 mörk líka í fyrsta leik....
Dómarinn - 5
Engar stórkostlegar ákvarðanir sem dómarateymið þurfti að taka, eitt víti sem var réttilega dæmt en Reynir Ingi var full fljótur oft á tímum að stoppa leikinn og kalla sjúkraþjálfara til. Jafnvel áður en leikmenn báðu um aðhlynningu með tilheyrandi einnar mínútu bið fyrir þá.


