Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
Besta kvenna
Þróttur R.
LL 2
1
FH
Besta kvenna
Gri/Nja
LL 2
1
Þór/KA
Þróttur R.
2
1
FH
0-1 Berglind Freyja Hlynsdóttir '42
Sigríður Theód. Guðmundsdóttir '58 1-1
Kayla Marie Rollins '84 2-1
30.04.2026  -  19:15
AVIS völlurinn
Besta kvenna
Dómari: Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson
Byrjunarlið:
1. Mollee Swift (m)
3. Mist Funadóttir
5. Jelena Tinna Kujundzic
8. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir (f)
14. Alexia Marin Czerwien
16. María Eva Eyjólfsdóttir ('67)
21. Kayla Marie Rollins
22. Sigríður Theód. Guðmundsdóttir ('67)
23. Sæunn Björnsdóttir
26. Þórdís Elva Ágústsdóttir ('90)
27. Unnur Dóra Bergsdóttir ('67)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
20. Hafdís Hafsteinsdóttir (m)
2. Sóley María Steinarsdóttir ('67)
6. Rósey Björgvinsdóttir
7. Brynja Rán Knudsen ('67)
11. Hekla Dögg Ingvarsdóttir
12. Madison Jeanne Ditta ('90)
17. Kristrún Ýr Holm
18. Kristrún Rut Antonsdóttir
19. Þórdís Nanna Ágústsdóttir ('67)

Liðsstjórn:
Jóhann Kristinn Gunnarsson (Þ)
Guðrún Þóra Elfar
Þórkatla María Halldórsdóttir
Freyja Karín Þorvarðardóttir
Sara Ó. Þrúðmarsdóttir Finnsson
Gísli Þór Einarsson
Orri Sigurjónsson
Björg Gunnlaugsdóttir

Gul spjöld:
Alexia Marin Czerwien ('49)
Mist Funadóttir ('69)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þróttur siglir þessu örugglega heim hér á heimavelli!

Fjörugur leikur hérna í kvöld!

Takk fyrir samfylgdina,
Viðtöl og skýrsla kemur inn síðar í kvöld
92. mín
Sæunn og Alexia ætla að gera slíkt hið sama og tefja í horninu en þetta var alveg hrææææðilegt og Unnur kemst í þetta og keyrir upp kantinn með boltann
91. mín
Mollee með klassíska takta fyrir Þrótt.... Byrjuð að tefjaaaaa...
90. mín
Inn:Madison Jeanne Ditta (Þróttur R.) Út:Þórdís Elva Ágústsdóttir (Þróttur R.)
90. mín
Sóley María með frábæra tæklingu, kemur í veg fyrir að Ída Marín nái skoti á markið
84. mín MARK!
Kayla Marie Rollins (Þróttur R.)
Stoðsending: Mist Funadóttir
boltinn berst á Mist sem er ótrúlega fljót að hugsa og þrumar honum fram þar sem Kayla Rollins er mætt í hlaup, tekur boltann með sér og kemst ein gegn Aldísi. Þarf svo ekki að gera annað en pota boltanum framhjá henni

82. mín
Inn:Hafrún Birna Helgadóttir (FH) Út:Thelma Lóa Hermannsdóttir (FH)
80. mín
Unnur með ágætis tilraun fyrir FH konur e rétt framhjá markinu
78. mín
Andrea Rán með hornspyrnu fyrir FH, fínast bolti inn á teig en Þróttarar seigar og ná að endingu að koma boltnaum frá
77. mín
Jelena missir boltann á hrikalegum stað, Sæunn reynir að covera fyrir hana en meiðist í kjölfarið, FH konur ná þó ekki að nýta þetta
75. mín
Sæunn tekur horn fyrir Þróttara en ekkert kemur úr þessu
73. mín
Inn:Unnur Thorarensen Skúladóttir (FH) Út:Berglind Freyja Hlynsdóttir (FH)
73. mín
Inn:Hrönn Haraldsdóttir (FH) Út:Ingibjörg Magnúsdóttir (FH)
70. mín
Katla María nær skalla á markið en Mollee Swift slær boltann frá
69. mín Gult spjald: Mist Funadóttir (Þróttur R.)
69. mín
Þórdís Elva með lúmskt skot er á leiðinni í fjærhornið en Aldís með frábæra vörslu í marki FH
68. mín
Ingibjörg kemst í góða stöðu og reynir að setja boltann út í teiginn en aðeins of aftarlega fyrir Thelmu og Ídu Marín
67. mín
Þreföld skipting hjá Þrótti!
67. mín
Inn:Þórdís Nanna Ágústsdóttir (Þróttur R.) Út:Sigríður Theód. Guðmundsdóttir (Þróttur R.)
67. mín
Inn:Brynja Rán Knudsen (Þróttur R.) Út:María Eva Eyjólfsdóttir (Þróttur R.)
67. mín
Inn:Sóley María Steinarsdóttir (Þróttur R.) Út:Unnur Dóra Bergsdóttir (Þróttur R.)
66. mín
Mist með rosalegan sprett ætlar að finna Kaylu inn á teignum en FH konur komast í boltann á undan
63. mín
Mollee ísköld í markinu á hrææææðilega snertingu framhjá Thelmu Lóu en það kom svo sem ekki að sök
58. mín MARK!
Sigríður Theód. Guðmundsdóttir (Þróttur R.)
Þróttarar eru að jafna þetta! Mist Funa hleypur með boltann upp í horn finnur Unni Dóru sem á snertingu út í teiginn smá óvissa þarna hvort Kayla Rollins ætlaði að taka þetta en Sigríður Theodóra í betri stöðu og sparkar þessu örugglega framhjá Aldísi!
57. mín
Ingibjörg finnur Thelmu í hlaupið inn fyrir en flaggið fer réttilega á loft
53. mín
Álfa brýtur á Ídu Marín sem haltrar eftir þetta
49. mín Gult spjald: Alexia Marin Czerwien (Þróttur R.)
47. mín
Jónína reynir að senda Thelmu Lóu í gegn en Sæunn kemst á undan henni í boltann
46. mín
Inn:Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (FH) Út:Mackenzie Elyze Smith (FH)
46. mín
Inn:Helena Maree Errington (FH) Út:Nia Raisa Christopher (FH)
46. mín
Thelma Lóa hefur seinni hálfleikinn fyrir FH
45. mín
Þróttur með allt upp á 10! Umgerðin hjá Þrótti er alveg til fyrirmyndar og ég gef stórt shoutout á Dag Breka hann er með allt á hreinu hérna.

Búinn að vera hlaupa hér fram og til baka og þjónusta blaðamenn og aðra

252 áhorfendur mættir og það er stemming í Laugardalnum
45. mín
Hálfleikur
FH leiða hér í hálfleik 0-1 í fjörugum leik!

Þetta hefur verið hin besta skemmtun og ég bið bara um enn meira fjör og fleiri mörk í seinni hálfleik!
42. mín MARK!
Berglind Freyja Hlynsdóttir (FH)
Stoðsending: Ingibjörg Magnúsdóttir
Berglind setur boltann upp í horn á Ingibjörgu sem tekur hann með sér og stýrir svo boltanum aftur út í teiginn þar sem Berglind kemur askvaðandi og leggur hann í fjær hornið! Frábærlega gert hjá unglingunum
41. mín
ÚFFF Nia í kapphlaupi en Mollee er í hörkustuði í kvöld og hirðir boltann á undan
39. mín
Thelma Lóa er enn og aftur sloppin í gegn en flaggið sem fyrr fer á loft!
37. mín
Ída Marín fer full harklega í Maríu Evu eftir að Þorfinnur dæmir brot fyrir FH. Hún þarf aðhlynningu en er komin aftur í gang
34. mín Gult spjald: Ída Marín Hermannsdóttir (FH)
33. mín
Molleeeeeee FH konur komast 2 á móti 3 - Ída Marín keyrir upp völlinn, setur boltan til hliðar á Birnu sem er komin í góða stöðu og tekur fínt skot en Mollee kemujr út á móti og ver þetta frábærlega
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Ingibjörg reynir stungu inn á Thelmu Lóu en boltinn ekki alveg nógu nákvæmur
28. mín
Sæunn Finnur Sigríði Theodóru í löngum bolta hún reynir svo að lauma honum á Kaylu Rollins en Jónína kemst inn í þetta.
26. mín
Þróttur hefur verið meira með boltann og hafa haldið honum ágætlega en FH konur hins vegar hafa verið að sleppa einar í gegn með tilheyrandi dauðafærum. Fyrsta markið gæti dottið hvoru megin sem er
23. mín
Nia Raisa er sloppin ein í gegn er flaggið góða fer á loft, líklega ekki rangstæð samt....
20. mín
Katla María brýtur á Kaylu Rollins, Sæunn tekur þetta stutt á Þórdísi en hún nær ekki að koma boltanum nógu vel fyrir
19. mín Gult spjald: Katla María Þórðardóttir (FH)
17. mín
Hættaaaaa Thelma Lóa er sloppin ein í gegn en missir boltann aðeins of langt frá sér og Mollee Swift gerir vel í að koma út á móti og hirðir hann
16. mín
Annars er það að frétta úr hinum leiknum í dag að nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur voru að landa sínum fyrsta sigri á heimavelli sínum 2-1 með marki fyrirliðans Emmu Fanndal í uppbótatíma leiksins
14. mín
Kayla seiiiiiiiig er í mikilli baráttu inn í teig en fellur svo við, ekkert brot að mínu mati samt
12. mín
Mackenzie brýtur á Maríu Evu, Sæunn setur boltann inn í teiginn þar lúrir Kayla Rollins og reynir skalla en Aldís í marki FH tekur þetta örugglega
11. mín Gult spjald: Mackenzie Elyze Smith (FH)
8. mín
Ída Marín reynir að finna Niu inn á teig Þróttara en Mollee Swift vel vakandi og nær þessum
6. mín
Bara nákvæmlega sama uppskrift nema hinum megin og svo 3 hornið sem Þróttarar fá en nú ná FH konur að hreinsa frá
5. mín
Úffffff Sæunn Björnsdóttir tekur hornið, Álfa nær skallanum sem Kayla reynir svo að skallan á markið en Aldís ver
5. mín
Kayla Rollins reynir að finna Unni Dóru inn í teignum en Jónína er á undan og setur hannút fyrir endalínu
3. mín
Berglind Freyja tekur horn fyrir FH en ekkert kemur upp úr því
3. mín
María Eva reynir að lauma háum bolta inn a teiginn en Aldís hirðir þetta á undan öllum öðrum
1. mín
Leikur hafinn
Þórdís Elva hefur leikinn fyrir heimakonur
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast! Liðin ganga hér inn á völlinn, veislan er að detta í gang!
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár! Þróttur
Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þróttar gerir 1x breytingu á sínu liði.
Sigríður Theódóra kemur inn í byrjunarliðið og Madison Jeanne Ditta tekur sæti á bekknum.

FH
Bræðurnir Guðni og Hlynur gera 3x breytingar á liði FH frá því í síðasta leik.
Berglind Freyja, Jónína Linnet og Ingibjörg Magnúsdóttir koma inn í liðið en Anna Heiða, Andrea Rán og Hafrún Birna setjast á bekkinn.
Fyrir leik
Fyrri viðureignir liðanna Það eru alltaf hörkuleikir þegar þessi 2 lið mætast

Liðin mættust síðast í lengjubikarnum 21. febrúar sl. Þar sem Þróttur fór með 3-2 sigur af hólmi.

Þá mættust liðin þrívegis í Bestu deildinni síðasta sumar þar sem FH fór tvisvar með sigur af hólmi bæði skiptin á heimavelli, annars vegar 4-0 og hins vegar 3-0.

Þróttur hins vegar vann 4-1 í fyrsta leik liðanna á sínu heimavelli.

Þetta vonandi gefur fyrirheit um skemmtilegan leik í kvöld!

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fyrir leik
FH FH konur sitja fyrir leikinn í 6. sæti með eitt stig líkt og Þór/KA í 7. sætinu.

Eftir stórmeistara 1-1 jafntefli fyrir norðan í fyrstu umferðinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH seldi þrjá leikmenn út á síðasta tímabili og hafa fengið inn 4 leikmenn fyrir komandi átök.

Komnar
Mackenzie Smtih frá Fram
Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir frá Haukum
Nia Christopher frá Bandaríkjunum
Helena Errington frá Bandaríkjunum

Farnar
Thelma Karen Pálmadóttir í Häcken
Arna Eiríksdóttir í Vålerenga
Elísa Lana Sigurjónsdóttir til Kristianstad
Maya Hansen
Macy Elizabeth Enneking
Margrét Brynja Kristinsdóttir í Val
Valgerður Ósk Valsdóttir í Hauka
Harpa Helgadóttir í Fram (lán)


Fyrir leik
Þróttur Þróttur sitja eins og staðan er núna í 10. og síðast sæti deildarinnar án stiga. Líkt og Grindavík/Njarðvík og Fram í 9. og 8. sæti.

Þær mættu ríkjandi íslandsmeisturum Breiðabliks í fyrstu umferðinni og töpuðu þar 2-0.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur er líklega liðið sem hefur breyst hvað minnst frá því á síðasta tímabili en þær hafa þó misst stóran póst á miðjunni en Katie Cousins hélt til Portúgals eftir tímabilið.

Komnar
Maddie Ditta frá Bandaríkjunum
Björg Gunnlaugsdóttir frá FHL
Rósey Björgvinsdóttir frá FHL
Lexi Czerwien frá FHL
Kristrún Ýr Holm frá Keflavík

Farnar
Lea Björt Kristjánsdóttir í Grindavík/Njarðvík
Katie Cousins til Portúgals
Sierra Lelii hætt
Klara Mist Karlsdóttir í HK á láni


Fyrir leik
Katrín Ásbjörns spáir í 2. umferð Fyrrum markahrókurinn Katrín Ásbjörnsdóttir spáir í leikina. Hún spáir naumum sigri heimakvenna í Þrótti.

Þróttur R. 2 - 1 FH
Sterkur heimasigur hjá Þrótti a móti mjög svo góðu liði FH. Öll mörkin koma i seinni hálfleik. Kayla kemur Þrótturum í 1-0 með skalla eftir horn eða fyrirgjöf og Þórdís Elva kemur með eina sleggju fyrir utan teig. FH nær að troða einu marki rétt fyrir leikslok frá Ídu.

   29.04.2026 12:00
Katrín Ásbjörns spáir í 2. umferð Bestu kvenna
Fyrir leik
2. umferðin Tveir leikir eru á dagskrá í kvöld, Grindavík/Njarðvík taka á móti Þór/KA klukkan 17:30 og svo stórleikur Þróttar og FH

Í gær:
Breiðablik - Fram 2-0
Stjarnan - Valur 2-0

Í dag:
Grindavík/Njarðvík - Þór/KA 17:30
Þróttur - FH 19:15

Föstudagur (á morgun):
ÍBV - Víkingur R. 13:00

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins Á flautunni í dag verður Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson og honum til halds og trausts verða Tijana Krstic og Nour Natan Ninir aðstoðardómarar.

Eftirlitsmaður er Jóhann Gunnarsson og fjórði dómari í kvöld er Ronnarong Wongmahadthai

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta deildin kallar Heil og sæl kæru lesendur!

Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá AVIS vellinum þar sem Þróttur tekur á móti FH í 2. umferð Bestu deildarinnar

Leikurinn hefst á slaginu 19:15!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
2. Birna Kristín Björnsdóttir
5. Mackenzie Elyze Smith ('46)
6. Katla María Þórðardóttir (f)
7. Nia Raisa Christopher ('46)
9. Berglind Freyja Hlynsdóttir ('73)
10. Ída Marín Hermannsdóttir
11. Thelma Lóa Hermannsdóttir ('82)
13. Deja Jaylyn Sandoval
37. Jónína Linnet
41. Ingibjörg Magnúsdóttir ('73)
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Steinunn Erna Birkisdóttir (m)
3. Anna Heiða Óskarsdóttir
8. Helena Maree Errington ('46)
15. Hrönn Haraldsdóttir ('73)
23. Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir
29. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir ('46)
36. Unnur Thorarensen Skúladóttir ('73)
39. Eva Marín Sæþórsdóttir
42. Hafrún Birna Helgadóttir ('82)

Liðsstjórn:
Guðni Eiríksson (Þ)
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Hjörtur Hinriksson
Dagur Óli Davíðsson
Brynjar Sigþórsson
Harpa Finnsdóttir
Valur Elli Valsson
Arnar Sigþórsson

Gul spjöld:
Mackenzie Elyze Smith ('11)
Katla María Þórðardóttir ('19)
Ída Marín Hermannsdóttir ('34)

Rauð spjöld: