Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
Lengjudeild karla
Grótta
19:15 0
0
Leiknir R.
Lengjudeild karla
Þróttur R.
19:15 0
0
ÍR
Lengjudeild karla
HK
19:15 0
0
Ægir
Lengjudeild karla
Afturelding
LL 0
0
Völsungur
Lengjudeild karla
Grindavík
LL 0
0
Njarðvík
Besta kvenna
ÍBV
LL 3
2
Víkingur R.
Grindavík
0
0
Njarðvík
01.05.2026  -  14:00
Stakkavíkurvöllur
Lengjudeild karla
Aðstæður: Norðanátt, sól og kuldi. Íslenskt vor í hnotskurn en völlurinn er grænn....ish
Dómari: Pétur Guðmundsson
Maður leiksins: Tæknimenn sem gerðu það sem þeir gátu.
Byrjunarlið:
31. Hjörvar Daði Arnarsson (m)
4. Damir Muminovic (f)
5. Arnór Gauti Úlfarsson
8. Stefán Jón Friðriksson
9. Rúnar Ingi Eysteinsson
10. Ingi Þór Sigurðsson
11. Valur Þór Hákonarson ('88)
14. Haraldur Björgvin Eysteinsson
18. Christian Bjarmi Alexandersson
19. Rafael Victor
26. Eysteinn Rúnarsson
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
7. Gunnleifur Orri Gunnleifsson ('88)
17. Andri Karl Júlíusson Hammer
20. Mikael Máni Þorfinnsson
22. Lárus Orri Ólafsson
25. Friðrik Franz Guðmundsson
27. Heiðar Snær Ragnarsson

Liðsstjórn:
Ray Anthony Jónsson (Þ)
Marko Valdimar Stefánsson
Helgi Leó Leifsson
Arnar Eyfjörð Jóhannsson
Robert Blakala
Aron Benediktsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Markalaust jafntefli niðurstaðan hér í Grindavík í leik sem ég sá lítið af.

Viðtöl frá Grindvík koma inn síðar í dag.
93. mín
Langt innkast inn á taig Grindavíkur. Símon Logi með skalla en beint í fang Hjörvars í markinu.
91. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma segja þeir.
90. mín
Heimamenn ógna
Koma boltanum inn á teig Grindvíkinga, vindurinn að valda usla og endar sóknin með broti heimamanna.
88. mín
Inn:Gunnleifur Orri Gunnleifsson (Grindavík) Út:Valur Þór Hákonarson (Grindavík)
85. mín
Jæja klárum þetta sterkt og náum siðustu mínútum leiksins.
83. mín
Ég sem var farinn að trúa á hið góða í heiminum! Aftur erum við sambandslaus, En náðum góðum 10 mínútum þó af leiknum í þetta sinn!

Strax komin í samband á ný! Trú mín endurvakin.
82. mín
Aftur Grindavík
Ingi Þór Sigurðsson með sendingu inn á teiginn frá vinstri. Valur Þór og Rafael mættir í teiginn en boltinn aðeins of hár og siglir afturfyrir.
81. mín
Rafael Victor!
Með fínustu tilraun frá vítateigslínu. Setur boltann í jörðina svo hann skoppar óþægilega fyrir Guy í marki Njarðvíkur sem ver þó vel.
79. mín
Atgangur eftir horn Njarðvíkur, pakkinn þéttur og Grindvíkingar hreinsa.
77. mín
Rafael Victor með skalla að marki eftir hornið en setur boltann vel yfir.
76. mín
Dauðafæri Varamaðurinn Heiðar Snær Ragnarsson dettur óvænt einn gegn Guy í marki Njarðvíkinga. Þrengir færið um of hægra megin í teignum og Guy ver í horn.
76. mín
Njarðvíkingar sækja
Finna ekki leiðina að marki og Grindvíkingar verjast vel.
75. mín
Inn:Guðmundur Magnússon (Njarðvík) Út:Leandro Fernandes (Njarðvík)
74. mín
Njarðvík sækir hratt
Símon Logi með boltann úti vinstra megin. Reynir að koma boltanum fyrir en á skelfilega sendingu sem svífur afturfyrir.
73. mín
Annar hættulegur bolti sem Guy slær á ný í horn.

Guy með hendur á bolta en þarf tvær tilraunir til að grípa hann.
72. mín
Grimdavík með hornspyrnu.

Boltinn fellur fyrir Damir í teignum sem nær skoti en Guy ver í annað horn.
70. mín
Staðan enn markalaus Og útsending komin í loftið á ný. Fögnum því

Vert að minnast á að gult spjald fór á loft á 64 mín á heimamenn. Á hvern þarf ég að komast að.
60. mín
Spennan í hámarki
Staðan enn markalaus eftir því sem ég kemst næst.

Uppfærslur fylgja ef eitthvað gerist.
52. mín
Þetta er algjör veisla
Enn á ný hefur samband rofnað.
50. mín
Rafael Victor í dauðafæri eftir frábæra sendingu frá Eysteini Rúnarssyni. Skalli af markteig sem fer beint á Guy í marki Njarðvíkur.

Flaggið fer svo á loft og hefði það því ekki talið.
49. mín
Grindavík fær hornspyrnu.

Leika með vindinn í bakið í síðari hálfleik.

Stefán Jón spyrnir fyrir en Eiður Aron skallar frá.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn Gestirnir sparka okkur af stað. Bið fyrir routernum í Grindavík og vona að hann haldi.
45. mín
Aðrir leikir umferðarinnar: föstudagur 1. maí
16:00 Afturelding-Völsungur (Malbikstöðin að Varmá)
19:15 Þróttur R.-ÍR (AVIS völlurinn)
19:15 HK-Ægir (Kórinn)
19:15 Grótta-Leiknir R. (Vivaldivöllurinn)

laugardagur 2. maí
14:00 Fylkir-Vestri (tekk VÖLLURINN)
45. mín
Hálfleikur
Flautað hefur verið til hálfleiks í Grindavík. Staðan markalaus en gestirnir eflaust svekktir að hafa ekki fengið dæmt mark snemma leiks.
42. mín
Og aftur sitjum við í myrkrinu Útsending dottinn út á ný. Netið að stríða í Grindavík í dag. Þá er kjörinn tími að panta pizzu eins og stendur hér að neðan.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
37. mín
Bingó i sal Við erum komin í samband við Grindavík og útsending komin í gang!

Staðan er markalaus ennþá eins og sjá má og vonandi að vandamálin séu að baki.
21. mín
Skjáskot af atvikinu - Boltinn klárlega inni
Mynd: Aðsend

Hér má sjá mynd af umræddu atviki sem fjallað var um áðan. Dómarateymið að bregðast því boltinn er klárlega kominn allur inn og Njarðvíkingar geta verið svekktir.
20. mín
Enn við sama heygarðshornið
Útsending er enn ekki kominn inn hér. Tíðindamenn okkar á vellinum munu þó flytja okkur fregnir af helstu atburðum svo sem mörkum er þau gerast þar til útsending dettur inn.
15. mín
Ætti Njarðvík að vera með forystu? Af myndbandi sem mér barst virðist vera að Njarðvík ætti að hafa tekið forystu eftir hornspyrnu. Fyrstir á boltann og ná skalla að marki sem mögulega var kominn allur innfyrir. Grindvíkingar hreinsa frá og ekkert mark dæmt.

Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
14. mín
Við höfum þær upplýsingar frá vellinum að staðan sé enn markalaus. Njarðvíkingar þó verið hættulegri aðilinn til þessa.
2. mín
Tæknilegir örðugleikar
Stuðst er við útsendingu Livey í þessari textalýsingu. Þar er tæknin eitthvað að stríða mér en það hlýtur að reddast von bráðar.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað í Grindavík. Það eru heimamenn sem hefja hér leik
Fyrir leik
Styttist í leik
Aðstæður mjög íslenskar í dag. Norðanátt og hitinn ekkert gríðarhár. Að vanda blæs aðeins í Grindavík líka. En völlurinn lítur bara fjarskafagur út, meira að segja farin að grænka.
Fyrir leik
Gervigreindin spáir Gemini gervigreind Google var fengin til að spá í leikinn fyrir okkur og virðist í þetta sinn vera á ágætum slóðum.

Söguleg úrslit (H2H): Liðin hafa mæst oft á síðustu árum og er jafnræði með þeim. Í síðustu 12 leikjum hafa bæði lið unnið 5 sinnum og 2 leikir enduðu með jafntefli.

Nýlegt form: Njarðvík hefur haft yfirhöndina í nýjustu viðureignum deildarinnar; þeir unnu báða leikina árið 2025 (5-1 og 3-0). Hins vegar skildu liðin jöfn, 2-2, í Lengjubikarnum í febrúar síðastliðnum.

Væntingar: Búast má við markaleik, þar sem yfir 70% af viðureignum liðanna hafa endað með fleiri en 2,5 mörkum. Njarðvík mætir til leiks með sjálfstraust eftir góð úrslit í fyrra, en Grindavík á heimavelli ætlar sér eflaust að hefna fyrir síðustu töp.

Spá: Miðað við nýlegt gengi og markaskorun gæti þessi leikur endað með 1-2 sigri Njarðvíkur eða baráttujafntefli.
Fyrir leik
Þriðja liðið
Lögreglumaðurinn Pétur Guðmundsson er með flautuna í Grindavík í dag. Honum til aðstoðar eru Guðni Freyr Ingvason og Jovan Subic.

Þórður Georg Lárusson fær sér svo kaffi í stúkunni og tekur út þeirra störf sem eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Grindavík
Eftir erfitt tímabil í fyrra söfnuðu Grindvíkingar liði í vetur og ætla sér stærri hluti. Stórir prófílar voru fengnir í liðið og gæti liðið alveg gert áhlaup að sæti í umspili haldist menn heilir.

Liðið fór á Ísafjörð í fyrstu umferð mótsins og þurfti að gera sér 1-1 jafntefli að góðu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Njarðvík
Markmiðið í Njarðvík er skýrt. Liðið ætlar sér sæti í Bestu deildinni að ári og var mikið lagt í liðið í vetur til að ná því markmiði.

Lærisveinar Davíðs Smára Lamude fengu þó enga draumabyrjun á mótinu en liðið laut í gras gegn keppinautum sínum í Þrótti í fyrstu umferð.
Hvernig mun Njarðvík bregðast við því tapi?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Suðurnesjaslagur framundan Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Grindavíkur og Njarðvíkur frá Stakkavíkurvellinum í Grindavík

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Guy Smit (m)
3. Sigurjón Már Markússon
5. Arnar Helgi Magnússon
6. Arnleifur Hjörleifsson
7. Bragi Karl Bjarkason
8. Leandro Fernandes ('75)
15. Alexander Helgi Sigurðarson
17. Símon Logi Thasaphong
22. Stefán Gísli Stefánsson
23. Eiður Aron Sigurbjörnsson (f)
27. Jóhann Ægir Arnarsson
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Daði Fannar Reinhardsson (m)
4. Viðar Már Ragnarsson
14. Aron Einarsson
16. Hrafn Guðmundsson
29. Haraldur Smári Ingason
33. Haraldur Ágúst Brynjarsson
77. Guðmundur Magnússon ('75)

Liðsstjórn:
Davíð Smári Lamude (Þ)
Jaizkibel Roa Argote
N/A
Halldór Geir Heiðarsson
Stefán Marteinn Ólafsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: