Leik lokið!
Liðin skipta stigunum á milli sín
1-1 niðurstaðan hér í Dalnum í kvöld.
92. mín
Hröð sókn Þróttara og þeir fá hornspyrnu. Spenna í lofti. Ekkert verður úr horninu, Leiknir fær markspyrnu.
91. mín
Hin fræga kvöldsól
Við erum komin í uppbótartíma í hinni frægu kvöldsól í Laugardalnum.
87. mín
Kári Kristjánsson með skalla framhjá.
86. mín
Vilhjálmur Kaldal að komast í dauðafæri en Marko Veselinovic hendir sér í alvöru tæklingu og fer í boltann. Hann fór 100% í þetta.
82. mín
Vilhjálmur Kaldal rífur sig lausan frá varnarmanni og nær skoti sem Óli Íshólm ver. Villi Alvar dómari gaf hagnað en ákvað að dæma eftir að skotið var varið. Spes.
79. mín
Birnir Breki hefur komið líflegur inn hjá Leiknisliðinu og vinnur hornspyrnu.
76. mín
InnKolbeinn Nói Guðbergsson
ÚtNjörður Þórhallsson
76. mín
Birnir Breki tekur sprettinn og skyndilega var Leiknisliðið komið í kjörstöðu og tveir lausir menn við hliðina á BBB en sendingin frá honum arfadöpur og ekkert verður úr þessu!
73. mín
InnKári Steinn Hlífarsson
ÚtViktor Andri Pétursson
73. mín
InnBirnir Breki Burknason
ÚtDagur Ingi Hammer Gunnarsson
72. mín
Kári Kristjánsson með skalla yfir markið úr erfiðri stöðu.
71. mín
InnAron Jóhannsson
ÚtÖrn Bragi Hinriksson
Aron að spila sinn fyrsta leik fyrir Þrótt.
69. mín
1-1
Þróttur hefur jafnað!
Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson (stoðsending: Kári Kristjánsson)
Vilhjálmur Kaldal með gabbhreyfingu sem skilur Djordje Vladisavljevic eftir niðri á grasinu, smellir boltanum svo glæsilega í hornið!1-1
66. mín
Kári Kristjáns INNANVERÐ stöngin!
Haaaa? Eðlisfræðin er að koma manni í opna skjöldu. Kári með skot sem virtist vera á leið inn en fór í innanverða stöngina og svo útaf hinumegin.
Þetta var rosalegt.
Þetta var rosalegt.
64. mín
Magnús Þórðarson, sem kom frá Fram rétt fyrir lok gluggans, skýtur framhjá.
60. mín
Hlynur Þórhallsson með fast skot en Ólafur Íshólm er með þetta og ver virkilega faglega.
55. mín
InnMagnús Þórðarson
ÚtAron Snær Ingason
55. mín
Skalli rétt framhjá!
Örn Bragi Hinriksson í hörkufæri en skallar rétt framhjá.
52. mín
Boltinn breytti um stefnu af varnarmanni og fór yfir Aron Dag í markinu.
Ég skal segja ykkur það!
Shkelzen Veseli (stoðsending: Rúrik Gunnarsson)
Shkelzen með skot fyrir utan teig sem syngur í netinu! Fyrsta markið í leiknum er komið og það frá gestunum!Boltinn breytti um stefnu af varnarmanni og fór yfir Aron Dag í markinu.
49. mín
Leikmenn úr báðum lið fengið aðhlynningu hér í byrjun seinni hálfleiks. Má eiginlega segja að seinni hálfleikurinn sé ekkert kominn í gang.
47. mín
Brauðstangasending í fréttamannastúkuna
Þróttarar með allt upp á tíu og bjóða uppá þann skemmtilega valkost á leikjum að hægt er að fá sér brauðstangir.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleiksræðan hjá Brynjari Birni talsvert lengri en hjá Venna. Þróttarar langt á undan Leiknismönnum út á völl fyrir seinni hálfleikinn.
45. mín
Áhorfendavaktin: 350
Jæja styttist í seinni hálfleikinn.
45. mín
Held að Leiknismenn séu nokkuð sáttir við að heyra hálfleiksflautið því Þróttarar ógnuðu verulega síðustu mínútur fyrri hálfleiksins.
45. mín
Köttararnir, stuðningsmannahópur Þróttar, fagnar 30 ára afmæli sínu um þessar mundir og ætla menn að hittast á Ölveri eftir þennan leik og skála fyrir því. Þar var stofnfundurinn einmitt á sínum tíma.
Köttarar 30 ára

Þróttarar banka og banka!
Aron Snær kemst í hörkufæri sem varnarmenn kasta sér fyrir og svo á Vilhjálmur Kaldal skot sem fer af varnarmanni og rétt yfir. Þróttur virðist hafa sett í næsta gír.
42. mín
STÖNGIN! Sigurður Egill!
Þrumuskot í stöngina! Óli Íshólm stóð eins og stytta. Þróttarar óheppnir að taka ekki forystuna.
40. mín
Leiknir fær tvær hornspyrnur með stuttu millibili. Sóknarbrot dæmt í þeirri fyrri en sú seinni fór á fyrsta varnarmann.
36. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins er Þróttara. Baldur Hannes skallar yfir markið eftir hornið.
34. mín
Sótt á báða bóga þessar mínútur og bæði lið að koma sér í hættulegar stöður en vantar upp á síðustu sendingu.
29. mín
Vilhjálmur Kaldal kemst í hættulega stöðu en flaggið á loft. Rangstaða.
25. mín
Þróttur, dauðafæri!
Örn Bragi Hinriksson með stórhættulegan sprett og kemst í dauðafæri, fer illa með varnarmann Leiknis en skotið endar framhjá! Hörkufæri sem fór forgörðum hjá Þrótti þarna.
Örn Bragi er 18 ára og hefur skorað í öllum þremur leikjum Lengjudeildarinnar til þessa sem eru einmitt fyrstu þrír leikir hans á Íslandsmóti með Þrótti.
Örn Bragi er 18 ára og hefur skorað í öllum þremur leikjum Lengjudeildarinnar til þessa sem eru einmitt fyrstu þrír leikir hans á Íslandsmóti með Þrótti.
23. mín
Gult spjald
Djorde Vladisavljevic
Fyrir brot. Villi virtist ætla að sleppa miðverði Leiknismanna með tiltal en ákvað svo á örskotsstundu að lyfta upp gula spjaldinu.20. mín
Eins og Magnús Geir Eyjólfsson vallarþulur minntist á í fréttamannastúkuni fyrir leik þá er oft um hörkuviðureignir að ræða þegar þessi lið mætast, sama hver staðan er í deildinni. Þróttarar hafa oft verið í erfiðleikum gegn Leikni og það er ákveðið jafnræði hér á upphafskaflanum.
16. mín
Leiknir fær hörkufæri!
Shkelzen Veseli sendir á Viktor Andra Pétursson sem er í ljómandi góðu færi, tekur boltann skoppandi en hittir hann alls ekki vel og skýtur langt framhjá. Svekktur út í sjálfan sig að hafa ekki farið betur með þetta tækifæri.
14. mín
Þróttur með skot rétt framhjá
Stórhættuleg hröð sókn Þróttar, Kári og Aron leika boltanum sín á milli og þetta endar svo með skoti frá Kára naumlega framhjá.
12. mín
Þróttarar mun meira með boltann fyrstu mínútur leiksins en Leiknismenn hafa unnið sig inn í þetta og eru að halda boltanum vel innan liðsins á þessum kafla.
8. mín
Shkelzen Veseli fær boltann í teig Þróttar en nær ekki að gera sér mat úr því. Baldur Hannes Stefánsson verst mjög vel og hirðir boltann af honum.
4. mín
Fyrsta skot á mark!
Þróttarar sækja á upphafsmínútum leiksins og Kári Kristjánsson fékk gott færi í teignum en Óli Íshólm náði að loka og verja.
1. mín
Leiknismenn sækja í átt að Húsdýragarðinum
Þróttarar eru mun sigurstranglegri samkvæmt stuðlum Epicbet.
Sigur Þróttar: 1,33
Jafntefli: 5,00
Sigur Leiknis8,50
Sigur Þróttar: 1,33
Jafntefli: 5,00
Sigur Leiknis8,50
Fyrir leik
Liðin ganga hér til vallar. Það er góður andi í Laugardalnum eins og oftast. Áhorfendur hafa slegist um pláss á pallinum við hlið stúkunnar enda skín sólin þar á meðan stúkan er í skugga. Kaldir drykkir, brauðstangir og börgerar.
Þetta er að bresta á!

Aron Jóhannsson lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil með Aftureldingu en hefur tekið þá fram að nýju og er á bekknum hjá Þrótti í kvöld.
„Já varðandi Aron, sjáum hvernig það þróast þegar eða ef hann kemst í gang, hann hefur ekki æft fótbolta í vetur. Það ætti þó ekki að taka langan tíma enda fagmaður þar á ferðinni," sagði Venni þjálfari Þróttar í viðtali fyrr í þessum mánuði. Aron hefur æft að undanförnu og er í hóp.
Aron í hóp hjá Þrótti

Þróttarar hafa farið vel af stað í deildinni og eru með fullt hús, níu stig að þremur umferðum loknum. Þeir kvöddu hinsvegar bikarkeppnina í síðustu viku, þegar þeir töpuðu 1-2 gegn Breiðablik.
Þróttur með fullt hús

Þróttarar hafa farið vel af stað í deildinni og eru með fullt hús, níu stig að þremur umferðum loknum. Þeir kvöddu hinsvegar bikarkeppnina í síðustu viku, þegar þeir töpuðu 1-2 gegn Breiðablik.
Fyrir leik
Þetta er fjórða umferð deildarinnar. Leiknismenn byrjuðu á að gera jafntefli gegn Völsungi, unnu Gróttu og töpuðu svo fyrir Aftureldingu.
Leiknismenn búnir að prófa allt

Þetta er fjórða umferð deildarinnar. Leiknismenn byrjuðu á að gera jafntefli gegn Völsungi, unnu Gróttu og töpuðu svo fyrir Aftureldingu.
Fyrir leik
Amin Cosic spáir 4-1 sigri Þróttar
„Þróttur er með eitt af sterkustu liðunum í þessari deild og með frábæran þjálfara. Þessi leikur fer 4-1, Hlynur skorar eitt svakalegt mark í þessum leik," segir Amin Cosic, leikmaður KR og spámaður umferðarinnar.
17.05.2026 12:00
Amin Cosic spáir í 4. umferð Lengjudeildarinnar
Fyrir leik
Alltaf gaman þegar sólin skín. Veðurguðirnir eru svo sannarlega á okkar bandi þennan fallega mánudag. Við ætlum að fylgjast hér með leik Þróttar og Leiknis sem flautaður verður á klukkan 19:15.
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson er dómari leiksins í kvöld. Jovan Subic og Sveinn Ingi Sigurjónsson eru aðstoðardómarar. Skúli Freyr Brynólfsson eftirlitsmaður er með skrifblokkina í stúkunni.
Villi og veðurguðirnir

Leikir kvöldsins - mánudagur 18. maí
19:15 Fylkir-ÍR (tekk VÖLLURINN)
19:15 HK-Njarðvík (Kórinn)
19:15 Þróttur R.-Leiknir R. (AVIS völlurinn)
19:15 Grótta-Afturelding (Vivaldivöllurinn)
Dalurinn skartar sínu fegursta

Leikir kvöldsins - mánudagur 18. maí
19:15 Fylkir-ÍR (tekk VÖLLURINN)
19:15 HK-Njarðvík (Kórinn)
19:15 Þróttur R.-Leiknir R. (AVIS völlurinn)
19:15 Grótta-Afturelding (Vivaldivöllurinn)