Lengjudeild karla
Fylkir
5'
0
0
0
ÍR
Lengjudeild karla
HK
4'
0
0
0
Njarðvík
Lengjudeild karla
Þróttur R.
4'
0
0
0
Leiknir R.
Lengjudeild karla
Grótta
1'
0
0
0
Afturelding

Grótta
0
0
Afturelding

18.05.2026 - 19:15
Vivaldivöllurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Vivaldivöllurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Byrjunarlið:
12. Guðmundur Rafn Ingason (m)
4. Dagur Bjarkason
7. Björgvin Brimi Andrésson
8. Caden Robert McLagan
9. Andri Freyr Jónasson
10. Grímur Ingi Jakobsson (f)
16. Halldór Hilmir Thorsteinson
20. Kristófer Dan Þórðarson
21. Tristan Freyr Ingólfsson
24. Nökkvi Már Nökkvason
30. Mattías Kjeld
- Meðalaldur 22 ár
Varamenn:
1. Alexander Arnarsson (m)
3. Jónatan Ari Bragason
5. Patrik Orri Pétursson
13. Björgvin Stefánsson
14. Einar Tómas Sveinbjarnarson
25. Elmar Freyr Hauksson
77. Alexander Emil Stefánsson
- Meðalaldur 23 ár
Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Paul Benjamin Westren
Patrekur Ingi Þorsteinsson
Halldór Svavar Sigurðsson
Bjarni Björnsson
Anton Bogdanov
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
1. mín
Strax meiðsli á fyrst mínútu
Andri Freyr liggur í grasinu í smá stund.
En allt í góðu með hann og leikurinn hefst aftur.

Fyrir leik
Textalýsing frá Livey
Mig langar til að vekja athygli á því að lýsingin hér í kvöld er í gegnum Livey. Það er fyrrum markahrókurinn Hjörtur Hjartarson sem er að lýsa þessum leik.
En Lengjudeildin er á Livey eins og flestum áhugamönnum deildarinnar er kunnugt um.
Lengjudeildin verður á Livey út árið 2027 í samstarfi við ÍTF.
Gömul mynd af Hirti að taka viðtal við Kára Árnason
En Lengjudeildin er á Livey eins og flestum áhugamönnum deildarinnar er kunnugt um.
Lengjudeildin verður á Livey út árið 2027 í samstarfi við ÍTF.

Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár
Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Gróttu gerir engar breytingar frá sterkum 4-0 sigri á Vestri í Mjólkurbikarnum. Eins og sagt er ef eitthvað virkar til hvers hrófla við því?
Maggi er alveg sammála þessari kenningu og sömuleiðis óbreytt lið frá 5-2 sigrinum gegn Njarðvík í Mjólkurbikarnum.
Þannig að við erum að fá óbreytt lið sem bæði áttu mjög öfluga sigra í bikar fyrir örfáum dögum síðan. Þetta verður fróðlegt.
Hinn 16 ára Mattías Kjeld kom frá Val fyrir tímabilið
Skemmtilega sögu hef ég að segja frá þeim ágæta leikmanni sem var frábær á 1 á móti 1 móti Fótbolta.net og Adams Páls í júní fyrra. Hin ungi Mattías sem var þá sennilega ekki nema 15 ára var óheppinn að vinna ekki Jón Dag Þorsteinsson landsliðsmann og stóð svo sannarlega fyrir sínu. Það er alveg á hreinu og í þeim unga pilit eru hæfileikar, nú þarf bara að sýna þá á vellinum.

Grótta á tímabilinu
Gróttumenn byrjuðu tímabilinu með tveimur tapleikjum, fengu erfiðan útileik gegn HK í fyrstu umferð og töpuðu 4-1.
Í annarri umferð tapaði liðið 1-2 gegn Leikni í fyrsta heimaleik liðsins í Lengjudeildinni.
Í þriðju umferð mætti Grótta hinum nýliðunum í Ægi og unnu 1-0 í Þorlákshöfn með marki úr vítaspyrnu frá Grími Inga Jakobssyni.
Svo kom stóra stundin eins og hjá Aftureldingu í Mjólkurbikarnum þegar liðið slóg út núverandi bikarmeistara Vestra á Ísafirði 4-0 með tveimur mörkum frá Tristani Frey Ingólfssyni. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik og Grótta slökkti á leiknum.
Tristan Freyr Ingólfsson skoraði tvö mörk í Mjólkurbikarnum
Í annarri umferð tapaði liðið 1-2 gegn Leikni í fyrsta heimaleik liðsins í Lengjudeildinni.
Í þriðju umferð mætti Grótta hinum nýliðunum í Ægi og unnu 1-0 í Þorlákshöfn með marki úr vítaspyrnu frá Grími Inga Jakobssyni.
Svo kom stóra stundin eins og hjá Aftureldingu í Mjólkurbikarnum þegar liðið slóg út núverandi bikarmeistara Vestra á Ísafirði 4-0 með tveimur mörkum frá Tristani Frey Ingólfssyni. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik og Grótta slökkti á leiknum.

Fyrir leik
Er stollt Mosfellinga vaknað til lífsins?
Það er óhætt að fullyrða að byrjunin á tímabilinu var ekki eins og leikmenn og þjálfara áttu von á fyrir tímabilið.
Fyrstu tveir leikirnir voru á heimavelli og ætlaði Afturelding sér ekkert annað en sex stig eftir fyrstu tvær umferðirnar.
Það fór nú heldur betur ekki þannig þegar liðið steinlá gegn ÍR 4-7 í fyrsta leiknum þrátt fyrir að hafa verið tæplega 80% með boltann.
Svo í annarri umferð kom Völsungur í heimsókn og þá átti aldeilis að bæta upp fyrir slaka byrjun en sá leikur endaði 0-0. Undirritaður lýsti þeim leik og get staðfest að það sé einn allra leiðinlegasti leikur sem ég hef séð á ævinni.
Þá kom þriðja umferðin og útleikur gegn Leikni í Breiðholtinu og lengi vel stemmdi í markaleysi en þá hrökk vélin loksins í gang og Afturelding vann 3-0 með mörkum frá Joacim Holtan, Róberti Daðasyni og Bart Kooistra á síðustu 17 mínútum leik.
Svo kom stórsigur 5-2 gegn Njarðvík í Mjólkurbikarnum þegar stjarna liðsins Elmar Kári Enesson Cogic mætti og sýndi hvað í honum býr.
Þá kemur næsta spurning, hvað tekur við í kvöld?
Elmar Cogic er allt í öllu í sóknarleik liðsins

Dómarar kvöldsins
Ívar Orri Kristjánsson er dómarinn hér í kvöld
Arnþór Helgi Gíslason og Breki Sigurðsson eru aðstoðadómarar.
Eftirlitsmaður er Oddur Helgi Guðmundsson.

Sólin skín!
Grótta og Afturelding mætast í fjórðu umferð Lengjudeildarinnar.
Nýliðar Gróttu eru með þrjú stig eftir þrjár umferðir. Þeir töpuðu fyrstu tveimur leikjum sínum en unnu svo Ægi í nýliðaslag. Gróttumenn unnu 4-0 útisigur á Vestra í Mjólkurbikarnum í síðustu viku og ættu að vera með sjálfstraustið í fínu lagi.
Afturelding var líka í miklu stuði í bikarnum og vann Njarðvík 5-2 þar sem Elmar Kári Cogic var besti maður vallarins og svo valinn leikmaður 16-liða úrslitanna. Í deildinni er Afturelding með fjögur stig, liðið vann Leikni í síðustu umferð.
Dómari er Ívar Orri Kristjánsson. Arnþór Helgi Kristjánsson og Breki Sigurðsson eru aðstoðardómarar.
Leikir kvöldsins - mánudagur 18. maí
19:15 Fylkir-ÍR (tekk VÖLLURINN)
19:15 HK-Njarðvík (Kórinn)
19:15 Þróttur R.-Leiknir R. (AVIS völlurinn)
19:15 Grótta-Afturelding (Vivaldivöllurinn)

1. Arnar Daði Jóhannesson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
3. Axel Óskar Andrésson
5. Jón Vignir Pétursson
6. Aron Elí Sævarsson (f)
8. Bart Kooistra
10. Elmar Kári Enesson Cogic
11. Óðinn Bjarkason
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
27. Enes Þór Enesson Cogic
33. Andi Hoti
- Meðalaldur 25 ár
Varamenn:
85. Kristján Hjörvar Sigurkarlsson (m)
4. Gunnar Bergmann Sigmarsson
9. Joacim Holtan
23. Ari Hrafn Haraldsson
24. Trausti Þráinsson
25. Georg Bjarnason
79. Róbert Agnar Daðason
- Meðalaldur 21 ár
Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Baldvin Jón Hallgrímsson
Þorgeir Leó Gunnarsson
Heiðar Númi Hrafnsson
Enes Cogic
Garðar Guðnason
Þórður Ingason
Gul spjöld:
Rauð spjöld: