PSG veitir Liverpool og Arsenal samkeppni - El Mala vill ekki fara til Brentford - Cucurella hugsar sér til hreyfings
2. deild karla
Hvíti riddarinn
LL 0
2
Haukar
Lengjudeild karla
Njarðvík
LL 5
1
ÍR
Lengjudeild karla
HK
LL 2
1
Afturelding
Lengjudeild karla
Ægir
LL 0
3
Leiknir R.
Ægir
0
3
Leiknir R.
0-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson '71
0-2 Daði Bærings Halldórsson '77
0-3 Anton Fannar Kjartansson '78
05.06.2026  -  19:15
GeoSalmo völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 175
Byrjunarlið:
1. Ómar Castaldo Einarsson (m)
8. Atli Rafn Guðbjartsson
9. Jordan Adeyemo
11. Stefan Dabetic (f)
15. Sigurður Óli Guðjónsson ('85)
16. Markús Máni Jónsson ('46)
19. Nikola Kristinn Stojanovic
20. Alfredo Ivan Sanabria
22. Harley Willard ('85)
24. Paul Leonard Skoczylas JR ('71)
45. Dajan Ponjevic
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Gabriel Michael Thull (m)
5. Anton Breki Viktorsson
7. Kristinn Ásgeir Þorbergsson ('46)
14. Benedikt Þór Viðarsson ('85)
21. Einar Breki Sverrisson ('71)
27. Marko Panic ('85)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Nenad Zivanovic (Þ)
Arnar Logi Sveinsson (AÞ)
Dimitrije Cokic (Liðsstj.)
Guðbjartur Örn Einarsson (Forráðam.)
Ivaylo Yanachkov (MÞ)
Bjartmar Þór Unnarsson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:
Marko Panic ('88)

Rauð spjöld:
@fotboltinet Sigurjón Árni Torfason
Skýrslan: Ægir blikkaði og Leiknir refsaði
Hvað réði úrslitum?
Það má segja að hinn leiðinlegi frasi um að annað liðið hafi „viljað þetta meira“ eigi ágætlega við hér. Leiknismenn tóku öll völd á vellinum eftir um sjötíu mínútna tíðindalítinn leik og voru einfaldlega beittari. Einstaklingsmistök og fleiri atriði hjá Ægismönnum hjálpuðu svo til við að opna leikinn og urðu til þess að gestirnir sigldu þægilegum 3–0 sigri í höfn.
Bestu leikmenn
1. Dagur Ingi Hammer
Hammerinn átti rosalega innkomu. Hann skoraði eitt og lagði upp tvö til viðbótar, en það sem stendur helst upp úr er að varnarmenn Ægis eiga líklega eftir að sjá hann í martröðum í nótt. Hann kom inn á fullur af orku og þeir virtust einfaldlega ekki eiga svar við honum.
2. Anton Fannar
Mér fannst Anton Fannar spila virkilega vel í dag. Hann og Dagur Ingi tengdu afar vel saman og á köflum má segja að Ægismenn hafi einfaldlega ekkert ráðið við þá.
Atvikið
71.–79. mínúta – þegar allt hrundi hjá Ægi.
Hvað þýða úrslitin?
Leiknismenn fara upp í 5. sæti deildarinnar með 12 stig og hafa nú unnið tvo leiki í röð. Næst taka þeir á móti Vestra í Breiðholtinu. Ægismenn sitja hins vegar í 10. sæti með sjö stig eftir að hafa séð tveggja leikja sigurgöngu sína enda í kvöld. Næst taka þeir á móti Blikum í bikarnum í Þorlákshöfn.
Vondur dagur
Ég gæti gefið varnarleik Ægis í heild sinni sem var heilt yfir flottur en þeir sofnuðu þarna í níu mínútur, en því miður verður Ómar Castaldo fyrir valinu. Ég geri kröfu á að hann verji allavega fyrsta markið og hann átti einnig í talsverðum vandræðum með að grípa auðveldar fyrirgjafir og koma honum frá marki. Þetta var einfaldlega ekki hans dagur og því fær hann þetta í dag því miður.
Dómarinn - 6
Jóhann Ingi átti heilt yfir ágætan leik. Það komu engin stór atvik upp né umdeild dómsatriði sem vöktu athygli, en stundum mátti kannski segja að flautan hafi verið aðeins of fljót á loft
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
4. Marko Veselinovic
5. Daði Bærings Halldórsson (f) ('79)
7. Birnir Breki Burknason ('46)
10. Shkelzen Veseli ('79)
15. Rúrik Gunnarsson
19. Axel Freyr Harðarson
22. Þorsteinn Emil Jónsson ('59)
32. Eiríkur Örn Beck
45. Djorde Vladisavljevic
55. Anton Fannar Kjartansson
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Jakub Górski (m)
8. Gísli Alexander Ágústsson ('79)
9. Jóhann Kanfory Tjörvason
16. Viktor Andri Pétursson ('79)
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('46)
33. Arnór Valur Ágústsson
43. Kári Steinn Hlífarsson ('59)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Nemanja Pjevic (Þ)
Arion Aron Veselaj (Leikgr.)
Garðar Gunnar Ásgeirsson (AÞ)
Gísli Friðrik Hauksson (Liðsstj.)
Patrekur Andrés Axelsson (Sjúkraþj.)
Ari Þór Kristinsson (MÞ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: