Diomande er eftirsóttur af stórliðum, Englandsmeistarar Arsenal vilja styrkja sig en frá samkeppni frá Evrópumeisturunum og kantmaður Kölnar hefur ekki áhuga á að fara til Brentford. Hér er slúðurpakkinn.
Liverpool hefur sett sig í samband við RB Leipzig og leggur mikið kapp á að reyna að fá kantmanninn Yan Diomande (19). Þýska félagið er harðákveðið í að halda Fílabeinsstrendingnum. (Athletic)
Paris Saint-Germain hefur einnig áhuga á Diomande sem hefur gefið í skyn að hann vilji frekar fara til franska félagsins en Liverpool. (Athletic)
Arsenal fær samkeppni frá Paris Saint-Germain í tilraunum til að fá franska framherjann Eli Junior Kroupi (19) frá Bournemouth og argentínska sóknarmanninn Julian Alvarez (26) frá Atletico Madrid. (Independent)
Brentford hefur gert 43 milljóna punda tilboð í þýska kantmanninn Said El Mala (19) hjá Köln. (Bild)
El Mala hefur sagt Brentford að hann hafi ekki áhuga á að ganga í raðir félagins. (Sky Sports Þýskalandi)
Marc Cucurella (27), varnarmaður Chelsea, hugsar sér til hreyfings og Atletico Madrid undirbýr tilboð í spænska landsliðsmanninn. (Teamtalk)
Juventus vill að minnsta kosti 26 milljónir punda fyrir ítalska bakvörðinn Andrea Cambiaso (26) sem hefur verið orðaður við Chelsea og Barcelona. (Calciomercato)
Serbneski sóknarmaðurinn Dusan Vlahovic (26) mun yfirgefa Juventus þegar samningur hans rennur úr í lok júní. Hann ákvað að skrifa ekki undir nýjan samning við ítalska félagið. (Football Italia)
Juventus hefur endurvakið áhuga á franska sóknarmanninum Jean-Philippe Mateta (28) hjá Crystal Palace og hefur einnig áhuga á norska framherjanum Alexander Sörloth (30) hjá Atletico Madrid. (Gazzetta dello Sport)
Sænska félagið AIK er í viðræðum um að selja nígeríska kantmanninn Zadok Yohanna (18) sem hefur verið orðaður við Brighton, Chelsea og Newcastle United. (Northern Echo)


