SKÝRSLAN: Sanngjarnt jafntefli í toppslag
Hvað réði úrslitum?
Það var mikið jafnræði með liðunum í báðum hálfleikum. Sáum sitthvorar hliðar af báðum leikjum í hálfleikunum, varkárir í fyrri og ákveðnari í seinni hálfleik.
Bestu leikmenn
1. Bjarni Þór Hafstein
Skoraði bæði mörk Fjölnis og var mjög flottur. Hann var ekki langt frá því að ná þrennunni. Hann var öflugur í dag.
2. Egill Otti Vilhjálmsson
Átti báðar stoðsendingar fyrir Bjarna eftir mjög góðan undirbúning í báðum mörkunum sendingarnar hnitmiðaðar.
Atvikið
Upphafsflaut í seinni. Þá byrjaði leikurinn fyrir alvöru.
Hvað þýða úrslitin?
Deildin jafnast enn meira út. Bæði lið með 13 stig í 3. og 4. sæti, Selfoss kemst yfir liðin eftir sigur en allt er opið.
Vondur dagur
Enginn sem átti áberandi slæman dag. Ætli ég klíni þessu ekki bara á bæði liðin í fyrri hálfleik. Það var himin og haf á milli liðanna í fyrri og seinni hálfleik.
Dómarinn - 8
Flott dæmdur leikur, engin greinileg dómaramistök og tók vel á vafaatriðum.


