SKÝRSLAN: Markasúpa á Greifavellinum
Hvað réði úrslitum?
Framarar spiluðu á köflum frábæran sóknarleik og taka þátt í enn einni markaveislunni. Þeir sköpuðu fjölmargar hættulegar stöður inná vallarhelmingi heimamanna og skoruðu fjögur mörk og hefðu hæglega getað gert fleiri með aðeins meiri yfirvegun.
Bestu leikmenn
1. Freyr Sigurðsson (Fram)
Sá var öflugur í dag. Lék við hvurn sinn fingur á miðjunni og var út um allan völl, Tapaði varla boltanum og skapaði hvert færið á fætur öðru.
2. Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Skorar eitt og leggur upp tvö. Þar fyrir utan er hann miðpunkturinn í flestu því góða sem að KA menn gerðu sóknarlega í dag - mögnuð vera.
Atvikið
Markið sem er dæmt af Birgi Baldvinssyni. Það er einfaldlega rangur dómur og Elías Ingi gerði sig þar sekan um mistök.
Hvað þýða úrslitin?
Framarar eru með 23 stig í 3. sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir KR. Næsti leikur þeirra er stór, en þá mæta Íslandsmeistarar Víkings í heimsókn. KA menn eiga erfiðan útileik gegn Breiðabliki fyrir höndum og sitja í 9. sæti deildarinnar með 10 stig.
Vondur dagur
Þetta var engin stórfengleg auglýsing fyrir varnarleik í knattspyrnu, en gefið mér 4-3 frekar en 1-0 alla daga vikunnar.
Dómarinn - 5
Það telur stórt inn í þessa einkunnagjöf að hann tekur klárlega löglegt mark af KA mönnum.




