Fotbolti.net
Besta deildin
@gummi_aaGuðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Besta kvenna
JBÓ völlurinn
Grátt yfir og svona átta gráður
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík
1 - 1
Víkingur R.
Víkingur R.
Maci Nicole Teater 58'1 - 01 - 171' Freyja Stefánsdóttir
Dómari: Milan Djurovic
Leik lokið!
Víkingar skalla frá og þá flauta dómari leiksins þetta af. Jafntefli niðurstaðan. Heimakonur væntanlega svekktari með niðurstöðuna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
93. mín
Boltinn fer fram hjá markinu og aðstoðardómarinn flaggaði hornspyrnu. Milan Djurovic, aðaldómari, ætlaði að gefa markspyrnu en hornspyrna er dæmd. Síðasta tækifærið!
93. mín
Hún rennur!
Sophie komin í gott en hún rennur þegar hún tekur skotið.
92. mín
Þetta er að fjara út.
90. mín
Þremur mínútum bætt við
90. mín
Jasmín með skot fyrir utan teig en það er máttlítið og fer fram hjá markinu.
88. mín
Hörkufæri
Birta nýkomin inn á og fær hörkufæri við vítateiginn en setur boltann yfir markið!
Víkingur R.
87. mín
InnBirta Birgisdóttir
ÚtArna Ísold Stefánsdóttir
87. mín
Tilraun!
Emma Nicole Phillips komin upp völlinn, við vítateiginn og lætur vaða en skotið fer fram hjá markinu!
Grindavík/Njarðvík
85. mín
InnJúlía Rán Bjarnadóttir
ÚtTinna Hrönn Einarsdóttir
84. mín
Grindavík/Njarðvík fær tvær hornspyrnur en gestirnir verjast þeim vel.
83. mín
Vel varið Katla!
Hildur Katrín gerir sig líklega og á hér hörkuskot, en það er varið af Kötlu. Góð varsla hjá markverði Víkinga.
81. mín
Natasha í mjög góðu færi en setur boltann út á bílastæði. Sem betur fer fyrir hana fer flaggið á loft.
79. mín
Maci!
Hún fær skotfæri á svipuðum stað og áðan. Lætur vaða en boltinn fer í varnamann og fram hjá.
78. mín
Freyja!!
Í mjög góðu færi. Boltinn dettur fyrir hana á teignum og hún nær skotinu en það er varið þægilega af Genevieve.
77. mín
Víkingur jafnaði 1-1
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
75. mín
Þetta mark hefur gefið Víkingum aukinn kraft.
Víkingur R.
71. mín
MARK!!!

Freyja Stefánsdóttir

Víkingar jafna metin. Ég lít upp og allt í einu er Freyja sloppin í gegn. Hún er mjög yfirveguð í færinu, setur boltann í stöngina og inn. Þetta kemur þvert gegn gangi leiksins þar sem Grindavík/Njarðvík hafði verið líklegra til að bæta við marki.
69. mín
Heyrðu!
Sending til baka og Hildur Katrín kemst inn í sendinguna en Katla nær að bjarga þessu. Þarna mátti litlu muna.
67. mín
Víkingar fá hornspyrnu en heimakonur koma boltanum frá.
65. mín
Grindavík/Njarðvík leiðir 1-0
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
64. mín
Ása Björg á harðaspretti upp hægra megin og setur hann fyrir markið en boltinn fer í gegnum allan pakkann.
62. mín
Sophie Romaine komin í ágæta stöðu í teignum og lætur vaða en skotið fer beint í varnamann Víkings.
61. mín
Þórdís Hrönn með ágætis sprett og reynir svo sendingu inn á teiginn en Natasha er mætt eins og svo oft áður.
61. mín
Víkingar þurfa að fara að rífa sig í gang. Hafa varla mætt til leiks hér í seinni.
Víkingur R.
60. mín
InnBergdís Sveinsdóttir
ÚtDagný Rún Pétursdóttir
Víkingur R.
60. mín
InnFreyja Stefánsdóttir
ÚtJóhanna Elín Halldórsdóttir
59. mín
Næstum því 2-0!
Beint eftir markið fékk Tinna Hrönn mjög gott færi en Katla varði frá henni.
Grindavík/Njarðvík
58. mín
MARK!!!

Maci Nicole Teater (stoðsending: Hildur Katrín Snorradóttir)

Hildur Katrín, sem er búin að vera mjög lífleg í byrjun seinni hálfleiks, með boltann fyrir utan vítateig og leggur hann snyrtilega á Maci Nicole Teater. Hún lítur upp, lætur vaða og skorar með hörkuskoti.
55. mín
Heimakonur að stjórna ferðinni í byrjun seinni hálfleiks.
55. mín
Sama uppskrift!
Aftur er Hildur Katrín með geggjaðan undirbúning fyrir Ásu en skot hennar fer fram hjá markinu! Mér leið eins og þessi væri inni en fram hjá fór hann.
53. mín
Vel varið!
Hildur Katrín gerir vel og setur boltann út til hægri á Ásu Björg sem á hörkuskot að marki en Katla gerir vel í að verja. Sophia Romaine var næstum því búin að ná frákastinu en Víkingar bjarga.
52. mín
Heimakonur með aukaspyrnu inn á teiginn sem Áslaug Dóra skallar í burtu.
49. mín
Bergþóra Sól liggur eftir á miðjum vellinum. Hún heldur leik áfram en er svona aðeins haltrandi.
46. mín
Ég væri til í aðeins meira samba hér í seinni.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Vonandi fáum við allavega aðeins meiri skemmtun í síðari hálfleik.
45. mín
Dóttir Natöshu er boltasækir
Fékk að rétta mömmu sinni boltann og brosti allan hringinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
45. mín
Það er hálfleikur. Ekki mikil skemmtun og staðan er enn markalaus. Hafliði Breiðfjörð er að sjálfsögðu mættur á völlinn og tók nokkrar myndir í fyrri hálfleiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
45. mín
Tveimur mínútum bætt við
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
44. mín
Þjálfarar Víkinga ræða málin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
43. mín
42. mín
Heimakonur setja boltann inn á teig en Sophia Faith Romine nær þessu ekki. Markspyrna fyrir Víking.
39. mín
Þórdís Hrönn með vonlítið skot fram hjá markinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
38. mín
Víkingar kalla eftir hendi eftir hornspyrnu en það var ekkert í þessu sýndist mér.
35. mín
Mjög vel spilað hjá Grindavík/Njarðvík en þær ná ekki að finna neinn skotvinkil.
32. mín
Ása Björg með sendingu fyrir markið en Kristín Erla er fyrst að komast inn í boltann.
30. mín
Víkingar í skyndisókn og Bergþóra Sól fær boltann rétt fyrir utan vítateig. Hún reynir að koma sér í skot en Ása Björg er snögg til baka og verst frábærlega!
28. mín
Tinna Hrönn fær boltann í gegn en varnarmenn Víkings eru fljótir að loka. Hún reynir skotið sem fer af varnarmanni en það er auðvelt fyrir Kötlu að grípa.
27. mín
Þórdís Hrönn með ágætis hlaup, á svo sendinguna á bak við á Jóhönnu Elínu, en hún nær ekki að taka nægilega vel á móti boltanum.
26. mín
Hornspyrnan sem er tekin í kjölfarið endar ofan á þaknetinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
25. mín
Stórhætta!
Aukaspyrna hjá heimakonum inn á teiginn en Víkingar ná að bjarga á síðustu stundu. Það skapaðist mikil hætta þarna.
24. mín
Rut, sem er nýkomin inn á, varð fyrir hnjaski og þarf aðhlynningu. Ekki draumbyrjun fyrir hana.
Grindavík/Njarðvík
22. mín
InnRut Sigurðardóttir
ÚtLily Anna Farkas
21. mín
Víkingar koma boltanum inn á teiginn en Natasha er mætt fyrst og skallar frá.
18. mín
Lily Anna Farkas fer niður og þarf aðhlynningu. Virðist sem hennar leikur sé á enda.
14. mín
Hildur Katrín!
Fær boltann svona 20 metrum frá marki, leikur á nokkra varnarmenn Víkinga og nær að komast í skotfæri en skotið er beint á Kötlu í marki gestanna. Þetta var virkilega laglega gert hjá Hildi áður en kom að skotinu.
14. mín
Dagný Rún að sleppa í gegn en er flögguð rangstæð. Einar Guðna allt annað en sáttur við þennan dóm.
13. mín
Víkingar áttu smá kafla áðan en annars hefur þetta verið frekar bragðdauft þessar fyrstu mínútur.
8. mín
Víkingar að hóta!
Núna fær Arna Ísold gott skotfæri eftir innkast en hittir boltann ekki nægilega vel. Fram hjá markinu fór boltinn.
7. mín
Færi!!
Jasmín Erla komin í mjög gott færi en setur boltann fram hjá markinu. Þarna átti hún að koma Víkingi yfir!
6. mín
Genevieve í marki Grindavík/Njarðvík lætur vel í sér heyra. Gott að hafa þannig markvörð.
4. mín
Það er athyglisvert að Sigurborg Katla er mætt í markið hjá Víkingum. Elizabeth Grace McClellan hefur hingað til varið mark Víkings í sumar en hún er á bekknum að þessu sinni.
4. mín
Maci fær boltann fyrir utan teig og mundar skotfótinn. Hún nær ágætlega föstu skoti en það er auðvelt fyrir Kötlu í marki Víkinga.
3. mín
Smá hætta við vítateig heimakvenna en Natasha er mætt á svæðið og hreinsar frá.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1. mín
Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvík, fékk botnlangakast í gær en er samt mættur á völlinn í dag. Armandas Leskys, aðstoðarmaður hans, stendur samt vaktina á hliðarlínunni í byrjun á meðan Gylfi situr.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1. mín
Þetta er farið af stað!
0. mín
Bæði lið hafa lokið upphitun og það styttist í það að við förum af stað.
0. mín
Sama lið hjá Víkingum
Einar Guðnason gerir enga breytingu á sínu liði frá tapleiknum gegn Þrótti í bikarnum. Það er athyglisvert að Freyja Stefánsdóttir er á bekknum en hún hefur verið að glíma við meiðsli. Það er mikið högg fyrir Víkingsliðið enda er hún stórkostlegur leikmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Tvær breytingar hjá heimakonum
Gylfi Tryggvason gerir tvær breytingar á liði sínu frá sigurleiknum gegn Stjörnunni í Mjólkurbikarnum. Lily Anna Farkas og Maci Nicole Teater koma inn í liðið fyrir Ellie Coffield og Rut Sigurðardóttur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Magnús Haukur spáir í spilin
Grindavík/Njarðvík 3 - 1 Víkingur R. Þetta er hamingja gegn óhamingju. Skemmtun gegn leiðindum. Tinna skorar, Gylfi verður glaður og Einar mætir í öllum sínum Víkings fötum í viðtal eftir leik.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
0. mín
Mismunandi niðurstaða í bikarnum
Bæði lið voru að spila í átta-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna á dögunum. Grindavík/Njarðvík fór áfram í framlengdum leik gegn Stjörnunni á meðan Víkingur tapaði fyrir Þrótti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Víkingar vilja meira
Á hinn bóginn eru Víkingar ekki sáttir með tímabilið hjá sér til þessa. Fossvogsfélagið situr í sjöunda sæti með níu stig en frammistaða liðsins hingað til í sumar hefur ekki verið nægilega góð. Víkingar hafa tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum í Bestu deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Nýliðar að gera góða hluti
Grindavík/Njarðvík hefur komið skemmtilega inn í Bestu deildina. Félagið er aðeins á sínu öðru ári eftir að Grindavík og Njarðvík sameinuðust í kvennaboltanum en á fyrsta árinu komst liðið upp úr Lengjudeildinni. Það er búið að leggja mikið í þetta lið og það er að skila sér. Fyrir leik kvöldsins er Grindavík/Njarðvík í sjötta sæti með ellefu stig úr átta leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Níunda umferðin klárast í kvöld
Í kvöld mun níunda umferð Bestu deildarinnar klárast með tveimur leikjum. Í hinum leik kvöldsins mætast FH og Valur á Kaplakrikavelli. Það voru þrír leikir í gær og þar voru úrslitin svona: Þór/KA 2 - 0 Þróttur R. ÍBV 0 - 3 Breiðablik Stjarnan 3 - 0 Fram
0. mín
Góða kvöldið!
Verið velkomnir kæru lesendur í beina textalýsingu frá leik Grindavík/Njarðvík og Víkings í níundu umferð Bestu deildar kvenna. Hér munum við fylgjast með gangi mála, öllu því sem gerist í leiknum. Endilega verið með!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.