Leik lokið!
Þetta er búið, Stjörnusigur er staðreynd. Takk fyrir mig , skýrsla og viðtöl á leiðinni.
92. mín
Dauðafæri
Vörn Stjörnunnar er sofandi og Ólavsson sleppur í gegn, rennir boltanum fram fyrir markið en það er enginn þarna til þess að pota boltanum inn í markið.
92. mín
Lélegt horn frá Danna Finns sem er skallað burt.
91. mín
Birnir er galopin og reynir fyrirgjöf sem er blokkuð fyrir horn.
90. mín
Í uppbótartíma +4.
90. mín
Gult spjald
Jákup Martin Jarnskor
Ljót tækling á Örvar Loga.87. mín
InnAlex Þór Hauksson
ÚtBenedikt V. Warén
87. mín
InnSindri Þór Ingimarsson
ÚtGuðmundur Kristjánsson
87. mín
InnFilip Djordjevic
Út Aron Benjaminsen
87. mín
Þessi Benjaminsen er player, en hann er að sóla aðeins of mikið og endar svo alltaf að missa boltann.
86. mín
Kaj Leo fær boltann við teiginn en er of lengi að hugsa.
85. mín
Víkings leikmaður rennir boltanum inn í teiginn, en Kjeldsen kemst í boltann og kemur honum burt.
83. mín
Gult spjald
Þorri Mar Þórisson
Brýtur af sér og sparkar svo boltanum burt.83. mín
Inn Kaj Bartalsstovu
Út Jakup Johansen
Íslandsvinurinn er mættur á völlinn.
82. mín
Waren skýtur yfir markið.
82. mín
Dauðafæri
Waren með háan bolta, hinum megin í teiginn þar sem Birnir er alveg einn. Birnir tekur skotið í fyrsta sem er beint á Barð.
81. mín
Jóhann kemst framhjá nokkrum leikmönnum og skýtur beint í varnarmann.
81. mín
InnDaníel Finns Matthíasson
ÚtÖrvar Eggertsson
78. mín
Inn Jákup Martin Jarnskor
Út Arnór Brandsson
77. mín
Þrennnnaaaaaa
Emil Atlason
Það er sama uppskrift eins og síðast, Emil velur neðra vinstra hornið, Barður fer í rétt horn en nær ekki í boltann.76. mín
Víti fyrir Stjörnuna
Örvar Logi keyrir inn í teiginn og er tekinn niður.
75. mín
Birnir með skot rétt famhjá markinu.
74. mín
Færiii
Hár bolti inn í teiginn, varnarmenn Víkings ná að koma honum burt en boltinn dettur á Guðmund Baldvin sem lætur vaða. Barður ver boltann fyrir horn, en þetta var ekki sannfærandi varsla frá honum.
73. mín
Birnir með horn sem flýgur yfir alla.
72. mín
Örvar með fyrirgjöf beint í bak varnarmann Víkings.
70. mín
Stjarnan er búin að taka yfir leikinn.
68. mín
Slááááá
Birnir fær boltann fyrir utan teig, curlar honum beint í slána. Barður stóð eins og stytta.
66. mín
Gult spjald
Aron Benjaminsen
Sparkaði boltanum burt eftir að hann braut af sér, gestir búnir að missa haus?65. mín
Það er svoleiðisssss
Emil Atlason (stoðsending: Benedikt V. Warén)
Stjarnan nær að spila í gegnum Víking. Waren á vinstri kant með perfect bolta á Emil sem skallar framhjá markmanninum.64. mín
Hætta
Örvar með langt innkast, skallað burt á Örvar Loga sem lætur vaða beint í markmanninn og út.
64. mín
Jóhann tekur aukaspyrnu inn í teiginn en boltinn er skallaður burt.
63. mín
Benjaminsen ætlar að láta vaða fyrir utan teig en rennur í skotinu.
62. mín
Vatnhamar tekur horn, Ingi Arngrímsson ætlar að skalla boltann en rennur og tekur tvo Stjörnuleikmenn í leiðinni.
61. mín
Víkingur með fyrirgjöf inn í boxið en Kjeldsen slædar boltanum út.
59. mín
Hætta!
Sendingin inn í boxið, Nielsen flikka boltanum með hælnum en beint á Árna sem ver hann.
57. mín
Hár bolti á Emil í gegnum Víking en varnarmaður Víkings tæklar boltann af honum.
55. mín
Birnir tekur horn, sendingin fer beint á Örvar Loga sem kemur með fyrirgjöf sem er skölluð beint á hann, þangað til að hann er dæmdur brotlegur.
52. mín
Áhorfendatölur
710 áhorfendur og 70 eru Færeyingar.
51. mín
Víkingur vill víti
Aron Benjaminsen rifinn niður í boxinu, Dómarinn segir nei við víti. Þetta var tæpt, ef það væri VAR gæti þetta mögulega verið víti.
49. mín
Víkingur í skyndisókn, Aron Benjaminsen aftur að elda. Fyrirgjöfinn er spörkuð burt en boltinn fer á Ellingsgaard sem tekur afleitt skot sem fer yfir markið.
49. mín
Birnir tekur horið stutt, sendir á Örvar sem sendir beint aftur á Birni sem lætur vaða strax en markvörðurinn grípur boltann.
48. mín
Waren skýtur í varnarmann og beint í annað horn.
46. mín
Dauðafæri!!!
Birnir tekur horn beint á Emil sem flikkar boltanum á Waren sem er við fjærstöngina, tekur skotið í fyrsta og beint í markmanninn.
46. mín
Seinni hálfleikur
Gestirnir byrja á því að sparka boltanum burt í innkast.
45. mín
Það er komið að hálfleik, Víkingur eru búnir að vera betri. Jón Þór á eftir að láta menn heyra það í hálfleik en sjáumst eftir korter.
45. mín
Örvar Eggerts nálægt
Jóhann Árni með háa sendingu inn í teiginn, Örvar nær að pota í boltann framhjá markmanninum en skotið er framhjá og varnarmaður Víkings kemur boltanum burt.
45. mín
+2 mín í uppbótartíma.
44. mín
Gult spjald
Sølvi Vatnhamar
Stígur ofan á Birni.41. mín
Mark úr víti!
Emil Atlason
Emil Atla tekur neðra vinstra hornið, Barður Á Reynatrøð fer í rétt horn en nær ekki í boltann.40. mín
Víti
Emil sendir Waren í gegn en Barður Á Reynatrøð tekur Waren niður í boxinu.
39. mín
Árni hleypur út úr markinu, ekki langt frá því að missa boltann en kemur honum burt.
38. mín
...
Skyndisókn fyrir Stjörnuna. Emil sendir á Birni sem lætur vaða fyrir utan teig og skotið er lélegt og framhjá.
38. mín
Þorri Mar með aukaspyrnu sem er spörkuð burt, aftur.
36. mín
Gult spjald
Jakup Johansen
Johansen með háan fót þegar Kjeldsen skallaði boltann burt í aukaspyrnunni.36. mín
Örvar logi brýtur á Aron Benjaminsen, aukaspyrna fyrir Víking á hættulegum stað. Aukaspyrnarn er svo spörkuð burt.
35. mín
Birnir Snær með skot sem fer beint á markvörðinn, æfing fyrir hann.
34. mín
Stjarnan ætlar að taka aukaspyrnuna fljótt en dómarinn segir nei og þurfa heimamenn að taka hana aftur.
34. mín
Aron Benjaminsen á hægri kantinum að leika listir sínar en Stjarnan nær að blokka fyrirgjöfina.
33. mín
Þetta er alls ekki góð frammistaða hjá Stjörnunni en það má ekki taka neitt af Víking Götu, þeir eru búnir að vera góðir.
31. mín
Vatnhamar með fasta hornspyrnu sem Gummi Kri skallar burt.
31. mín
Annað horn fyrir Víkinga, síðast skoruðu þeir.
30. mín
Guðmundur Baldvin kemur með fyrirgjöf inn í teig sem er skölluð burt. Víkingur kemst í skyndisókn og Jóhann Árni brýtur svo af sér.
29. mín
Jæja núna er sólin mætt eftir þessa leiðinda rigningu.
28. mín
Víkingur kemst í skyndisókn og þurfa ekki að gera mikið til þess að komast framhjá Stjörnunni, Jørgen Nielsen er á boltanum og lætur vaða fyrir utan teig en skotið fer framhjá.
26. mín
Örvar Logi kemur með háan bolta inn í teig en Emil Atla missir boltann bara út í markspyrnu. Dómarinn skammar svo Guðmund Baldvin fyrir að hlaupa inn í teig andstæðings við markspyrnuna.
25. mín
Hár bolti á Örvar sem er að sleppa í gegn en Barður Á Reynatrøð er fljótari í boltann.
24. mín
Ellingsgaard hleypur framhjá þremur Stjörnuleikmönnum þangað til hann kemur með afleita sendingu.
22. mín
InnÞorri Mar Þórisson
ÚtHeiðar Ægisson
Það eru meiðsli fyrir Heiðar sem leggst í grasið, batakveðjur.
21. mín
Gestirnir eru bara að senda á milli sín og stuðningsmenn öskra ,,hey" við hverja sendingu, það er stemming í away stúkunni.
18. mín
Jóhann Árni lætur vaða fyrir utan teig og beint í varnarmann. Mín skoðun er að hann ætti að hætta að skjóta svona oft fyrir utan teigs.
17. mín
Waren fær boltann í teignum, nær að snúa og kemur með fyrirgjöf sem er skölluð burt. Hornið er skallað burt.
15. mín
Gaman að segja frá því að Gunnar Vatnhamar fyrrum leikmaður Víkings Götu er í stúkunni með stuðningsmönnum Víkings Götu.
14. mín
Birnir kemur með fyrirgjöf sem er skölluð burt. Boltinn dettur svo á Jóhann Árna sem tekur volley beint í varnarmann. Boltinn fer svo í hausinn á dómaranum og hann stoppar leikinn.
11. mín
Jahérna...
Aron Benjaminsen (stoðsending: Aron Ellingsgaard)
Misheppnað horn fyrir Víking Götu. boltinn dettur á Ellingsgaard sem sendir á Benjaminsen. Hann sólar Örvar Loga og curlar honum í markið. Kemur svo með svakalegasta fagn sem ég hef séð.9. mín
Dauðafæri!
Jóhann Árni með háa sendingu yfir vörn Víkings á Örvar sem sendir fyrir markið en Emil nær ekki að pota í boltann.
9. mín
Það er komin monsoon rigning.
6. mín
Stjörnumenn nálægt
Heiðar með fyrirgjöf sem Gunnar Vatnhamar skallar en boltinn dettur á Emil sem skallar beint á markið. Markvörðurinn ver beint á Kjeldsen, sem skallar boltann svo í átt að markinu en Víkingur ver af línunni. Dómarinn dæmir svo brot á Emil.
5. mín
Örvar er að detta í skyndisókn en leikmaður Víkings stoppar hann. Örvar fellur niður og vill brot en dómarinn segir nei.
4. mín
Hornið er skallað burt.
3. mín
Fyrirgjöf inn í box Stjörnunnar en Kjeldsen kemur boltanum fyrir horn.
3. mín
!
Stjarnan er að spila í 4-2-3-1. Birnir og Örvar á köntunum, Waren fyrir aftan Emil Atla. Guðmundur Baldvin og Jóhann Árni á miðjunni.
2. mín
Birnir snær með hornið á Örvar sem skýtur beint á markmanninn.
1. mín
Stjarnan með fyrsta skot
Waren fær boltann við teiginn, lætur vaða, skotið fer í varnarmann og rétt framhjá.
1. mín
Stjarnan -1 á Epic er 2,02. Algjörlega fatalt og Íslenskri knattspyrnu til skammar ef þeir vinna ekki.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) July 9, 2026
1. mín
Bæng veislan er hafin, Stjörnumenn byrja.
Fyrir leik
Leikmenn labba inn á völlinn!
Fyrir leik
20 mín í leik
Stuðningsmenn eru að tínast í stúkuna og Óskar Smári er í gæslunnni, það fer enginn að pitch invadea. Spennan er að stigmagnast. Arnar Breki Björnsson, 14 ára er á bekknum, fáum við að sjá hann í kvöld?
Fyrir leik
!
Stuðningsmenn Víkings eru mættir í stúkuna og mættir með trommu, það heyrist hátt í þeim.
Fyrir leik
Samkvæmt UEFA síðunni eru bæði liðin að spila 4-3-3. Veit ekki hversu rétt það er. Mitt gisk er að Stjarnan fari frekar í 4-2-3-1, Örvar og Birnir á köntunum og Waren fyrir aftan strikerinn. UEFA setti 40 ára Gunnar Vatnhamar á kantinn veit ekki hversu rétt það gæti verið en samt áhugavert að sjá.
Fyrir leik
Byrjunarliðin mætt í hús
Jón Þór með eina breytingu. 40 ára bróðir Gunnars Vatnhamar er fyrirliði Víkings Götu.
Fyrir leik
Sölvi Vatnhamar og Kaj Leo ræddu við .net um leikinn
„Þetta er mjög spennandi leikur fyrir okkur þar sem við erum með mjög ungt lið. Við erum ekki með mikla reynslu í liðinu þegar kemur að evrópuleikjum."
Fyrir leik
Blaðamannafundur Stjörnunnar fyrir leikinn
,,Þetta er hörku lið og þeir eru vel þjálfaðir og vinnusamir, orkumiklir, líkamlega sterkir og spila góðan fótbolta. Þannig að við fáum verðugt verkefni í þessum tveimur leikjum."
Fyrir leik
Víkingur Götu hefur áður spilað gegn Íslensku liði
Samkvæmt UEFA hafa liðin tvö aldrei spilað gegn hvor öðrum og þá hefur Stjarnan aldrei spilað gegn Færeysku liði. Víkingur Götu hefur spilað á móti einu Íslensku lið áður. Árið 2017 spiluðu Víkingur Götu og FH á móti hvor öðrum. Heimaleikurinn fór 1-1, Emil Pálsson skoraði fyrir FH og Adeshina Lawal skoraði fyrir Víkingur Götu. Leikurinn í Færeyjum fór 0-2 fyrir FH, Steven Lennon og Þórarinn Valdimarsson skoruðu bæði mörkin. Víkingur Götu fengu tvö rauð spjöld, Olsen og Anghel.
Ég fór í myndabankann og fann mynd af Steven Lennon og Gunnari Vatnhamar, núverandi leikmanni Víkings.

Fyrir leik
Norskur dómarakvartett
Mohammad Usman Aslam verður með flautuna, Alf Olav Rossland og Ole Andreas Haukåsen verða með flöggin. Marius Lien verður með skiltið. Luc Wouters fylgist með dómurunum í kvöld og hann kemur frá Belgíu.

Fyrir leik
Heimamenn
Stjarnan situr í 7. sæti með 15 stig. Eftir að Jón Þór Hauksson tók við liðinu hefur liðið gert tvö jafntefli gegn Breiðablik og FH, eitt tap gegn ÍBV og einn sigur gegn KA á heimavelli.
Á heimavelli hefur Stjarnan unnið tvo leiki í deildinni, þessir tveir leikir voru gegn FH og KA. Emil Atlason er markahæstur í liðinu í Bestu Deildinni en hann hefur skorað 7 mörk.


Fyrir leik
Tjekkum aðeins á gestunum
Samkvæmt Fótbóltssamband Føroya er Víkingur Götu í fjórða sæti í deildinni, 6 sigrar, 8 jafntefli og 2 töp. Á síðasta tímabili lenti Víkingur Götu í fjórða sæti í deildinni. Víkingur Götu hefur þrisvar sinnum verið deildarmeistari, síðasti titill kom árið 2024. Aron Benjaminsen er markahæstur liðsins í deildinni með 6 mörk, hann skoraði í síðasta leik liðsins gegn B36.
Kaj Leo í Bartalsstovu spilar fyrir liðið. Það ættu margir að þekkja Kaj Leo en hann spilaði á Íslandi á árunum 2016-2025. Hann spilaði fyrir Val, ÍBV, ÍA og önnur lið. Hann byrjaði ferilinn hjá Víkingur Götu.
Eldri bróðir Gunnars Vatnhamar spilar líka fyrir Víkingur Götu, hann Sølvi Vatnhamar er 40 ára og spilar á miðjunni. Hann hefur spilað fyrir Víkingur Götu síðan 2008. Gunnar spilaði líka með Víkingur Götu í 10 ár, áður en hann kom til Víkings. Hérna ræðir Sølvi Vatnhamar um leikinn gegn Stjörnunni.


Fyrir leik
Sambandsdeildin heilsar!
Jæja, það er komið að því. Stjarnan tekur á móti frændum okkar frá Færeyjum, liðinu Víkingur Götu. Þetta er fyrsti leikur liðanna og verður hann spilaður á Samsungvellinum, seinni leikurinn verður 16. júli í Færeyjum kl 16:00.










