Leik lokið!
Þór/KA vinnur sinn annan leik í röð! Grindavík/Njarðvík bankaði nokkuð fast en náði ekki inn marki.
95. mín
Færi og svo horn! Augur nær ekki að grípa boltann.
94. mín
Natasha fær mjöööög ódýra aukaspyrnu. Séns fyrir gestina.
93. mín
Gult spjald
Bríet Jóhannsdóttir
93. mín
Gengur illa hjá gestunum að byggja upp sóknir núna í lok leiks.
91. mín
Fjórum mínútum bætt við
88. mín
Gult spjald
Ása Björg Einarsdóttir
Sýndist það vera Ása sem fékk spjaldið.87. mín
InnKatrín Lilja Ármannsdóttir
ÚtSophia Faith Romine
87. mín
InnBrynja Pálmadóttir
ÚtJúlía Rán Bjarnadóttir
86. mín
Dauðafæri
Amalía Árnadóttir í dauðafæri!
Setur boltann yfir í upplögðu marktækifæri.
85. mín
Skot fyrir utan teig frá gestunum sem fer framhjá.
81. mín
Darraðadans inn á vítateig Þórs/KA, Ellie Coffield reynir svo að lyfta boltanum í netið en setur boltann yfir.
81. mín
InnBríet Jóhannsdóttir
ÚtErin Flurey
81. mín
InnEmelía Ósk Kruger
ÚtHulda Ósk Jónsdóttir
77. mín
Sophia á skalla sem fer ofan á markið. Ná gestirnir að jafna?
75. mín
Gult spjald
Hildur Anna Birgisdóttir
Pínu óheppin, renndi sér og missti smá stjórn á tæklingunni, fór samt mikið í boltann sýndist mér.72. mín
Skot frá gestunum sem Augur handsamar. Grindavík/Njarðvík er að spila vel en Þór/KA er að þrauka.
71. mín
Bakvörðurinn Angela Mary er í smá brasi með Ásu Björgu, kantmaðurinn átt mjög góðan seinni hálfleik.
69. mín
Gestirnir taka hornspyrnu stutt og Sophia á svo skot úr D-boganum sem Arna Sif hreinsar í burtu.
67. mín
InnElísa Bríet Björnsdóttir
ÚtKaren María Sigurgeirsdóttir
62. mín
Ása Björg með tilraun sem Arna Sif hreinsar burt með skalla. Hægara sagt en gert að ná skoti framhjá Örnu í þessu færi.
61. mín
Angela með tilraun af löngu færi sem fer rétt yfir mark gestanna.
60. mín
Gult spjald
Sigríður Emma F. Jónsdóttir
59. mín
Ása Björg dettur í teig Þórs/KA eftir að Angela reyndi við boltann. Ása með veikt kall eftir vítaspyrnu.
58. mín
Hildur Anna þræðir boltann í hlaupalínu Erin sem er að sleppa í gegn við miðlínu. Sigríður Emma heldur í við framherjann og truflar skotið sem Erin tók mjög snemma og boltinn fer framhjá.
56. mín
Ellie Coffield með skot úr D-boganum sem Alessandra Dorothy Augur ver.
55. mín
Hár bolti inn á teig Þórs/KA, brot dæmt á gestina og Arna Sif liggur aðeins eftir.
54. mín
Grindavík/Njarðvík kemst í hraða sókn, boltinn færist út til hægri og Ása á fastan bolta sem Emma Nicole missir af.
Skömmu síðar eiga gestirnir tilraun fyrir utan teig sem fer hátt yfir. Þær eru aðeins að banka!
52. mín
Flott sókn
Flottur sprettur upp vinstri kantinn hjá Hildi Katrínu, hún finnur Emmu Nicole en skalli hennar fer framhjá nærstönginni.
50. mín
Hildur Anna með skalla sem Genevieve nær ekki að grípa en Natasha nær svo að hreinsa úr teignum.
49. mín
Tvær fyrirgjafir inn á teig heimakvenna en engin tilraun, gestirnir byrja seinni hálfleikinn af fínum krafti.
48. mín
Há fyrirgjöf sem Augur slær að óþörfu aftur fyrir og í horn fyrir gestina.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Dúnalogn núna og þá mæta flugurnar, get ég fengið smá golu takk?
45. mín
93 áhorfendur á vellinum
45. mín
Það er kominn hálfleikur í Þorpinu. Þór/KA leiðir 1-0.
41. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað, fastur bolti frá Hildi og Margrét á skalla sem fer rétt framhjá.
38. mín
Emma með skalla en Alessandra Augur vandanum vaxinn í marki heimakvenna.
35. mín
Finnst gestirnir svolítið ofan á, en færin láta bíða eftir sér. Eitt fínt færi komið en það náðist ekki skot á markið úr því.
32. mín
Þór/KA tekur of langan tíma í innkast og Sveinn dæmir gestunum boltann.
25. mín
Uppstilling Gri/Nja
Genevieve
Júlía - Sigríður Emma - Natasha - Rakel
Ellie - Hannah
Ása Björg - Sophia - Hildur
Emma
19. mín
Bras á Augur í marki Þórs/KA, laus bolti við vítateigslínu en þetta reddast fyrir heimakonur.
13. mín
Uppstilling Þórs/KA
Augur
María Dögg - Karen Hulda - Arna Sif - Angela
Hildur - Margrét
Hulda Ósk - Karen María - Amalía
Erin
7. mín
Sophia Faith Romine í góðum séns, hálf í gegn við vítateigslínuna, en setur boltann rétt framhjá nærstönginni á marki heimakvenna.
6. mín
Laus bolti inn á teignum sem Erin reynir við en Genevieve Jae Crenshaw nær að henda sér á boltann og handsama hann.
3. mín
Fyrsta markið komið!
Margrét Árnadóttir (stoðsending: Hildur Anna Birgisdóttir)
Bolti inn á teiginn frá Hildi sem tók aukaspyrnuna. Margrét hittir ekki boltann almennilega í fyrstu sveiflu, en nær annarri og setur boltann örugglega í netið af stuttu færi. Þór/KA leiðir!3. mín
Erin Flurey vinnur aukaspyrnu á góðum stað fyrir Þór/KA.
1. mín
Þór/KA byrjar með boltann
Þetta er farið af stað!
Fyrir leik
Leikmenn ganga inn á völlinn
Heimakonur spila í svörtum búningum og gestirnir spila í hvítum treyjum.
Fyrir leik
Þrjár breytingar hjá gestunum
Ellie Coffield, Júlía Rán Bjarnadóttir og Rakel Sigurðardóttir koma inn í lið gestanna frá jafnteflinu gegn Víkingi.
Rúmar tvær vikur eru frá síðustu umferð en hlé var á Bestu deildinni vegna þátttöku U19 landsliðsins á EM.
Fyrir leik
Ein breyting á liði Þórs/KA
Karen María kemur inn fyrir Elísu Bríeti sem tekur sér sæti á bekknum. Ásta Ninna kemur þá inn í hópinn.
Fyrir leik
Dropar aðeins
Það er smá gola og það hefur aðeins dropað, en ekki hægt að kalla þetta rigningu. Það eru einhverjar tólf gráður í stúkunni.
Fyrir leik
Þriðja liðið
Sveinn Arnarsson er með flautuna í kvöld og honum til aðstoðar eru þau Sváfnir Ragnarsson og Leyla Ósk Jónsdóttir.
Fjórði dómari er Aðalsteinn Tryggvason og Tryggvi Þór Gunnarsson er eftirlitsmaður.

Fyrir leik
Fréttir af liðunum
Fyrir leik
Staðan í deildinni og gengi liðanna
Heimakonur í Þór/KA sitja í 9. sæti deildarinnar sem eru mikil vonbrigði. Liðið vann sinn fyrsta sigur í síðustu umferð þegar Þróttur kom í heimsókn en fyrir það var liðið einungis með þrjú stig.
Grindavík/Njarðvík, sem kom upp úr Lengjudeildinni síðasta haust, situr í 6. sæti með sex stigum meira en Þór/KA. Nýliðarnir hafa einungis unnið einn af síðustu fimm en eru komnir í undanúrslit Mjólkurbikarsins.
Fyrri leikur liðanna endaði með 2-1 endurkomu sigri Suðurnesjakvenna en sigurmarkið kom undir lok leiks.


Fyrir leik
Thelma Karen spáir útisigri
Landsliðskonan Thelma Karen Pálmadóttir spáir í leiki umferðarinnar.
Þór/KA 0 - 2 Grindavik/Njarðvík
Frekar rólegur leikur en Grindavík/Njarðvík með yfirhöndina mest megnis af leiknum. Markalaust í hálfleik. Hildur skorar svo banger í seinni hálfleik eftir að hafa sólað fjórar og skorar svo annað mark í lok leiks
Fyrir leik
Velkomin á VÍS völlinn
Góða kvöldið lesendur góðir og verið þið velkomnir í beina textalýsingu frá leik Þórs/KA og Grindavíkur/Njarðvíkur í 10. umferð Bestu deildar kvenna.
Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram á VÍS vellinum á Akureyri.







