Fotbolti.net
@fotboltinetEinar Már Þórólfsson
Lengjudeild karla
GPG völlurinn
Sól, 20 gráður en hálfgert rok
Völsungur
Völsungur
1 - 6
Afturelding
Afturelding
0 - 111' Óðinn Bjarkason0 - 219' Bjartur Bjarmi BarkarsonElfar Árni Aðalsteinsson 25'1 - 21 - 329' Óðinn Bjarkason1 - 432' Óðinn Bjarkason1 - 550' Axel Óskar Andrésson Elfar Árni Aðalsteinsson 69'1 - 674' Róbert Agnar Daðason
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: Stórsigur Aftureldingar á Húsavík

Hvað réði úrslitum?

Gæði leikmanna Aftureldingar. Sóknarmenn Aftureldingar eru það góðir að ef varnarmenn eru ekki á tánum gegn þeim þá refsa þeir harkalega og það gerðu þeir nokkrum sinnum í dag.

Bestu leikmenn

1. Óðinn Bjarkason

Auðvelt vel. Óðinn skoraði þrennu og var virkilega öflugur. Annað markið hjá honum var sérlega laglegt.

2. Birkir Már Sævarsson

Hefðu nánast allir leikmenn Aftureldingar getað verið hér en það er bara svo gaman að sjá þennan reynslubolta spila í Lengjudeildinni og hann stendur alltaf fyrir sínu.

Atvikið

Fyrsta mark Aftureldingar. Mér fannst sóknarmaður Aftureldingar hrinda varnarmanni Völsungs á Stefán í markinu sem varð til þess að hann missti boltann en ekkert var dæmt.

Hvað þýða úrslitin?

Afturelding vinnur sinn fjórða leik í röð og er komin með fjögurra stiga forystu á toppi Lengjudeildarinnar. Völsungur er enn í fallsæti með 8.stig.

Vondur dagur

Allt Völsungsliðið átti slæman dag og þjálfarinn einnig. Borja byrjaði með 5 manna varnarlínu sem innihélt bæði Mbye og Xabier sem eru sennilega tveir bestu miðjumenn liðsins. Þar af leiðandi var miðsvæðið mjög berskjaldað. Taktíkin var einfaldlega röng.

Dómarinn - 4

Áðurnefnt fyrsta mark átti sennilega ekki að standa og svo veifaði hann gulu spjöldunum óspart sem að var að mínu mati óþarfi.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.