SKÝRSLAN: Kótelettan neitaði að gefa þrjú stig
Hvað réði úrslitum?
Hart barist í leiknum í dag og flatleiki ræður úrslitum. Hvíti Riddarinn mjög solid í fyrri en síðan að Selfoss hafi ekki náð að klára þetta í seinni er mjög slapt, verður að segjast.
Bestu leikmenn
1. Aron Daði Ásbjörnsson
Tvenna og vel gert í báðum mörkunum. Ekki frá því að þetta voru einu tvö færin sem hann fékk þannig góð nýting og flottur leikur
2. Aron Lucas Vokes
Frábær leikmaður sem er ekkert að fela sig bakvið stórstjörnurnar sem leiða sókn Selfoss. Glæsilegt mark og virkilega sprækur allan leikinn. Eflaust svekktur þó að hafa ekki skorað úr færinu sem hann fékk til að koma Selfoss í 3-1
Atvikið
Innkoma Selfoss í seinni hálfleikinn. Allt annað að sjá þá og manni leið í 2-1 að þetta gæti orðið þægilegur sigur en svo varð heldur betur ekki.
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss mistekst að tilla sér í annað sætið en þeir eru með 20stig og ennþá vel í efri pakka 2.deildar.
Hvíti Riddarinn hefði einnig kunnað að meta þrjú stigin en 1stig er það og 13stig er uppskeran eftir 12.leikinn í deild.
Vondur dagur
Fyrir þrjú stigin og veðrið, held það hefði auðveldlega geta verið betri stemning á Selfossi í góðu veðri í Kótelettunni en við verðum bara að hafa það. Hvíti Riddarinn var háværari í stúkunni í dag en á köflum slakur orðaforði hjá þeim.
Dómarinn - 7
Fínn, vítið er bara rétt og bara fínasta frammistaða.


