SKÝRSLAN: FH sigraði Goal Unit derbyið
Hvað réði úrslitum?
Jökull og Schram voru báðir með ótrúlegan leik en á endanum var FH sprækara liðið og það hjálpar að hafa einn hraðan í Gils á þreytta Valsara. Kannski hefði það hjálpað ef Brazell hefði gert eitthverjar skiptingar en meðalaldurinn á bekknum var 17 ára.
Bestu leikmenn
1. Jökull Andrésson
Áður en mörkin koma þá var Valur að pakka FH saman, en samt gátu þeir ekki skorað því að Jökull var að verja allt. Loksins fær Jökull hreint lak og hann var mjög ánægður með það eftir leik. Valur var með fullt af færum til þess að skora eitt tvö eða jafnvel þrjú mörk áður en FH skoraði en Jökull varði allt. Sama má gefa Schram það að hann var mjög góður í þessum leik.
2. Gils Gíslason
Skoraði tvennu og var nálægt því að skora þrjú.
Atvikið
Um það leyti þegar Gils kemur inn á þá er FH búnir að setja inn spræka menn með hraða, Valur notaði ekki bekkinn sinn í dag.
Valsarar voru orðnir þreyttir og gátu klárlega ekki höndlað þennan hraða hjá FH.
Hvað þýða úrslitin?
FH er enn í fallsæti en þeir færast nær þess að koma sér úr því. Valur er komið í 5. sæti.
Vondur dagur
Stöle mun ekki fara sáttur á koddann í kvöld, þessi sending til baka var hræðileg og léleg, þetta er ekki búið að vera gott tímabil en þetta gerir það enn verra. Áður en Stöle kemur með þessa lélega sendingu ætlaði ég að láta Skoglund heyra það, hann var nánast við markið á 35 mínútu og nær að negla í slána, það hlítur að vera krafa að skora.
Dómarinn - 5
Þegar menn taka sér 2 mínútur að reima þá er það mínus stig. Annars voru nokkrar tæklingar þar sem menn hefðu átt að fá gult, sem hann Jóhann var að sleppa.




