SKÝRSLAN: Þórsarar leiddir til slátrunar á Lambhagavellinum
Hvað réði úrslitum?
Þór klúðraði sínum sénsum til að komast yfir, gaf Fram fyrsta markið og sá varla til sólar eftir það, algjör uppgjöf í seinni.
Bestu leikmenn
1. Freyr Sigurðsson - Fram
Stórkostlegur leikmaður, þarf ekki að segja meira.
2. Haraldur Einar Ásgrímsson - Fram
Kom inn í liðið og setti tvö úr vinstri bakverðinum, flott frammistaða.
Atvikið
Kristófer rennur á 23 mínútu leiksins og Freyr vinnur boltann við teiginn, fer í gegn og skorar, það atvik var fyrsti naglinn í kistu Þórsara.
Hvað þýða úrslitin?
Fram djöflast enn í KR og að elta Víkinga í þriðja sæti deildarinnar, Þór situr límt við botninn með ömurlega markatölu.
Vondur dagur
Vilhelm Biering og Sigfús Fannar vilja gleyma þessum leik á leiðinni norður helst, þetta var alvöru brekka hjá þeim í dag einna helst, ásamt fleiri Þórsurum svosem en þessar frammistöður stóðu uppúr af mörgum neikvæðnum ástæðum.
Dómarinn - 9
Ekkert að teyminu í dag, ÞÞÞ alltaf flottur!




