SKÝRSLAN: Þreyttir Vestramenn fengu skell
Hvað réði úrslitum?
Fyrri hálfleikurinn réði úrslitunum, Fylkir áttu leikinn á öllum sviðum leiksins og Vestri sáu ekki til sólar. Vestramenn virtust vera alveg búnir á því eftir ferðalagið og leikinn við Qarabag. Fylkir gerðu vel og nýttu sér það. Leikurinn var nánast búinn í hálfleik.
Bestu leikmenn
1. Máni Austmann Hilmarsson
Auðvelt val, Máni skorar tvö góð mörk og var öflugur fram á við í kvöld.
2. Guðmundur Tyrfingsson
Guðmundur var mjög góður á vinstri kanti Fylkis í kvöld og skorar einnig tvö mörk.
Atvikið
Atvikið kom alveg í byrjun leiks, ef ég lít til baka á þennan leik þá er færið sem Þórður Gunnar fékk í byrjun stórt atvik. Ef Vestri hefði skorað fyrsta mark leiksins þá hefði sögulína leiksins mögulega verið allt önnur.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkir lyfta sér upp í 2. sæti Lengjudeildarinnar, einu stigi frá topp liði Aftureldingar. Virkilega góður og mikilvægur sigur. Vestra menn fara hvorki upp né niður, þeir halda sér í 5 sæti deildarinnar og fara með slæmt tap inn í seinni leikinn gegn Qarabag.
Vondur dagur
Vestra liðið í heild sinni var alls ekki nógu gott í dag, þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Vestri fékk gott færi á 2 mínútu leiksins en eftir það fengu þeir alvöru skell. Frammistaðan í seinni hálfleik var betri en ekki nóg.
Dómarinn - 7
Gunnar Oddur og félagar flottir í dag. Engir vafaatriði sem voru vitlaus og bæði vítin hárrétt.


