SKÝRSLAN: Dramatíkin allsráðandi í Kópavogi
Hvað réði úrslitum?
Þetta er leikur sem hefði getað brugðið til beggja vona. Blikar pressuðu Keflvíkinga mjög hátt á vellinum á lokamínútunum og bar sú pressa árangur. Hápressa þeirra á lokamínútunum réði úrslitum.
Bestu leikmenn
1. Ásgeir Helgi Orrason - Breiðablik
Var gríðarlega öruggur í öllum sínum aðgerðum í kvöld og naut sín á vellinum. Tókst vel að halda aftur af sóknarmönnum Keflavíkur.
2. Jónatan Guðni Arnarsson - Breiðablik
Var flottur í kvöld og skorar glæsilegt mark sem jafnar leikinn og kemur Blikum á bragðið.
Atvikið
Rangi rangstöðudómurinn. Leikurinn hefði verið allt annar ef Keflvíkingur hefðu farið með 2-0 forustu inn í hálfleikshléið. Það hefði ekki tryggt þeim sigurinn en dómurinn breytir gangi leiksins umtalsvert.
Hvað þýða úrslitin?
Blikar nálgast Fram í þriðja sætinu og minnka bilið í fimm stig. Keflvíkingar sitja sem fastast í sjötta sætinu
Vondur dagur
Kristján Már Ólafsson aðstoðardómari lyftir flaggi sínu þegar hann telur Marin Mudrazija vera rangstæðan er sá síðarnefndi setur boltann í netið. Þessi ákvörðun var með öllu snargalin. Mudrazija er vel fyrir framan aftasta varnarmann Breiðabliks svo það er óskiljanlegt hvernig Kristján kemst að þessari niðurstöðu sem hefur mikil áhrif á leikinn.
Dómarinn - 3
Ég sá enga línu í dómgæslunni í dag. Eftir eitt brot fær leikmaður gult spjald en næsti fær ekki spjald eftir sambærilegt brot. Leikurinn var stöðvaður eina stundina en leyft að fljóta þá næstu.
Bæði lið eru ósátt með hans störf og gefur það yfirleitt sterka vísbendingu um að störf dómara hafi ekki verið til fyrirmyndar.



