Fotbolti.net
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Forkeppni Meistaradeildar Evrópu
ETO Stadion
ETO Györ
ETO Györ
2 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 134' Daníel HafsteinssonMilán Vitális (f) (víti) 38'1 - 1Sveinn Gísli Þorkelsson (sjm) 45'2 - 12 - 255' Gylfi Þór Sigurðsson
Dómari: Mateo Erceg (Króatía)
Leik lokið!
Víkingar fara áfram í forkeppni Meistaradeildarinnar og slá út Ungversku meistara Györ!
97. mín
Mínúta eftir KOMA SVO!
96. mín
Langur bolti inn á teiginn, Ögmundur út og grípur boltann.
95. mín
Heimamenn fáliðaðir til baka.
Erlingur finnur Viktor í hörkufæri í teignum en setur boltann framhjá.
95. mín
Sveinn Gísli sterkur í eigin teig og skýlir boltanum vel.
94. mín
Allir leikmenn Györ á vallarhelmingi Víkinga
Víkingur R.
92. mín
InnErlingur Agnarsson
ÚtValdimar Þór Ingimundarson
ETO Györ
91. mín
Gult spjald

Milán Vitális (f)

91. mín
Átta mínútur í uppbótartíma
88. mín
Tíminn líður fáránlega hægt.
ETO Györ
84. mín
InnMarcell Huszár
ÚtNfansu Njie
ETO Györ
84. mín
InnJovan Živkovic
ÚtClaudiu Bumba
83. mín
Taugarnar farnar að taka á. Györ að stíga ofar á völlinn
Víkingur R.
77. mín
InnDavíð Örn Atlason
ÚtKarl Friðleifur Gunnarsson
Víkingur R.
77. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtDaníel Hafsteinsson
Víkingur R.
77. mín
Gult spjald

Óskar Borgþórsson

72. mín
Valdimar kemur boltanum í netið eftir sendingu frá Aroni en Aron hársbreidd fyrir innan og markið telur því ekki. En frábært spil
ETO Györ
71. mín
Gult spjald

Željko Gavric

Tuðaði sig í svörtu bókina
70. mín
Víkingar verið töluvert betri í þessum síðari hálfleik en í þeim fyrri.
ETO Györ
67. mín
InnKevin Bánáti
ÚtStefan Vladoiu
ETO Györ
67. mín
InnMárton Szép
ÚtRajmund Tóth
64. mín
Helgi strax í kjölfarið í færi en heimamenn bjarga í horn.
63. mín
Víkingar að fá færi
Aron vinnur boltann hátt á vellinum og keyrir í átt að marki. með Óskar sér til stuðnings en velur að skjóta sjálfur og setur boltann framhjá úr góðu færi.
62. mín
Óskar Borgþórs sækir hornspyrnu. Daníel aleinn í teignum og nær skallanum en setur hann yfir markið.
61. mín
Stórefast að Ögmundur klári leikinn satt að segja. Getur ekki sparkað í boltann að því er virðist.
60. mín
Ögmundur er að reyna hrista þetta af sér og ætlar að halda áfram.
Víkingur R.
59. mín
InnAron Elís Þrándarson
ÚtNikolaj Hansen
Aron fer beint upp á topp
57. mín
Ögmundur lendir í samstuði við Nfansu Njie og liggur eftir. Uggi Jóhann er að gera sig til í að koma inná. Markvarðarkrísa í Víkinni.
Víkingur R.
55. mín
Þvíík sókn!

Gylfi Þór Sigurðsson (stoðsending: Helgi Guðjónsson)

Þolinmæði í sóknaruppbyggingu Víkinga sem leika boltanum frá hægri til vinstri. Einangra Óskar í 1 á 1 úti til vinstri , hann fer framhjá sínum manni, leggur boltann á Helga sem framlengir á Daníel sem skorar með hnitmiðuðu skoti í hornið. Gylfi mögulega með snertingu á boltann á leiðinni í markið. (Uppfært) Boltinn hefur viðkomu í Gylfa að mínu mati og fleiri. Því skráum við markið á hann.
53. mín
Njie með skot úr teignum en Ögmundur með þetta á hreinu og handsamar boltann.
52. mín
Niko úr dönsku graníti og klár í að koma til vallar á ný.
50. mín
Niko Hansen liggur eftir á vellinum eftir að hafa snúið sig á ökkla í baráttu við leikmann Györ.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Víkingur hefur leik í síðari hálfleik. Svo ég endurómi orð Sverris Geirdals sem meðal annars er vallarþulur Víkinga. Koma svo, Áfram Víkingur!
45. mín
Tölfræði fyrri hálfleiks
45. mín
Víkingar halda til búningsherbergja undir hér í Györ. Staðan í einvíginu þó jöfn og allt getur gerst. Tökum okkur korter og komum aftur.
ETO Györ
45. mín
+1

Sveinn Gísli Þorkelsson (sjm)

Nfansu Njie með lélegan skalla sem fer í öxlina á Sveini og þaðan í netið. Allt jafnt í einvíginu.
45. mín
Uppbótartími fyrri hálfleiks er þrjár mínútur.
42. mín
Heimamenn fyrstir á boltann eftir hornið en setja hann yfir markið.
41. mín
Dauðafæri heimamanna
Nfansu Njie í dauðfæri í markteignum en skallar boltann í Tarik og afturfyrir.
ETO Györ
38. mín
Mark úr víti!

Milán Vitális (f)

Ögmundur í rétt horn en spyrnan gríðarlega örugg.
36. mín
Györ er að fá vítaspyrnu
Tóth stígur fyrir Óskar þegar hann reynir að hreinsa og sparkar Óskar hann niður. Klárt víti.
36. mín
Víkingar fagna
Mynd: Maté Dalmay
Víkingur R.
34. mín
Víkingar leiða!

Daníel Hafsteinsson (stoðsending: Gylfi Þór Sigurðsson)

Frábær hornspyrna frá Gylfa yfir á fjær. Oliver og Sveinn setja upp blokkeringar og Daníel mætir og skilar boltanum í netið! Frábært!
33. mín
Spyrnan í vegginn og þaðan yfir. Víkingar fá horn.
ETO Györ
31. mín
Gult spjald

Szabolcs Schön

Fyrir brotið
ETO Györ
30. mín
Víkingar fá aukaspyrnu í D-boganum

Rajmund Tóth

Valdimar sparkaður niður. Gula spjaldið fyrir mótmæli
28. mín
Claudiu Bumba með skot af um 20 metrum, setur boltann framhjá.
25. mín
Sveinn Gísli fyrstur á boltann eftir hornið en nær ekki að stýra boltanum á markið.
24. mín
Heimamenn eru kolvitlausir út í dómara leiksins sem hefur lítið flautað í dag. Víkingar vinna hornspyrnu.
Víkingur R.
21. mín
Gult spjald

Tarik Ibrahimagic

Hraustleg tækling á Bumba
19. mín
Baráttan í fyrrirúmi á vellinum. Dómarinn lítið að flauta og leikurinn flýtur vel. Engin færi til að tala um en heimamenn ögn meira með boltann.
12. mín
Frábær pressa Víkinga sem eru hársbreidd frá því að vinna boltann inn í teig Györ. Uppskera innkast til móts við teiginn.
11. mín
Heimamenn sækja fyrstu hornspyrnu leiksins.
5. mín
Gavric með eins augljósa dýfu og hugsast getur í teig Víkinga og biður um víti. Króatinn hlær að honum nánast.
3. mín
Dauðafæri Györ
Daniel Štefulj með boltann fyrir frá vinstri, Gavric aleinn í teignum en setur boltann rétt yfir úr úrvalsfæri. Skjálfti í Víkingum í byrjun.
1. mín
Tók tæpar 15 sek fyrir heimamenn að ógna, fyrirgjöf frá vinstri sem Ögmundur er í basli með en sleppur til.
1. mín
Þetta er farið af stað í Ungverjalandi. Það eru heimamenn sem sparka þessu af stað.
Fyrir leik
Hressir stuðningsmenn Víkings í stúkunni í Györ
Mynd: Maté Dalmay
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarlið Víkinga klárt.
Tvær breytingar sem Sölvi velur að gera frá fyrri leiknum. Elías Már Ómarsson af augljósum ástæðum ekki með og tekur markaskorari Víkinga Nikolaj Hansen hans sæti. Þá fær Aron Elís Þrándarson sér sæti á bekknum og Tarik Ibrahamagic kemur inn í liðið í hans stað. Heimamenn í Györ gera eina breytingu frá fyrri leiknum en Kevin Bánáti fer á varamannabekkinn og inn í hans stað kemur Szabolcs Schön.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Allt í beinni á Livey
Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Livey. Smelltu hér til að nálgast útsendingu á leiknum. Kóðinn EUROVIKES2026 gefur 30% afslátt af fyrsta mánuði fyrir nýja áskrifendur.
Fyrir leik
Dómarinn
Hinn þrítugi Mateo Erceg er reynslulítill á alþjóðlega sviðinu en þetta er hans fyrsti leikur í forkeppni Meistaradeildarinnar. og í raun aðeins hans annar evrópuleikur en hann dæmdi einn leik í forkeppni Sambandsdeildarinnar á síðasta ári. Teymið með honum er allt sömuleiðis frá Króatíu en það eru Luka Pajic og Stipe Brajkovi? aðstoðardómarar, Ivan Vukancic fjórði dómari og þeir Fran Jovic og Tihomir Pejin sem sjá um VAR í kvöld.
Fyrir leik
Reynist danska ljónið Víkingum dýrmætt?
Nikolaj Hansen framherji Víkinga skartar rosalegu húðflúri en stærðarinnar mynd af ljóni prýðir bak hans. Um 20 tíma vinna hjá listamanninum að baki og ekki hægt að segja annað en að útkoman sé nokkuð flott.
Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson
Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson
Fyrir leik
Okkar maður á vellinum
Okkar eigin Ungverji hér á Fótbolta.net Maté Dalmay er mættur til Györ og verður í feiknastuði á vellinum í kvöld auk þess að taka viðtöl að leik loknum.
Mynd: Aðsend
Hann fór á stúfanna í gær og ræddi við Víkinga um verkefni kvöldsins.
Fyrir leik
Víkingar með forskot eftir fyrri leikinn
Liðin mættust fyrir viku síðan í Víkinni þar sem Víkingur fór með 1-0 sigur. Heimamenn höfðu talsverða yfirburði í leiknum gegn mjög varnarsinnuðu liði Györ en tókst þó ekki að finna marknetið fyrr en í uppbótartíma þegar Nikolaj Hansen setti boltann í netið af miklu harðfylgi. Markahæsti Víkingurinn frá Það var þó ekki eintóm gleði í herbúðum Víkinga eftir leikinn því þeir urðu fyrir áfalli í fyrri hálfleik þegar Elías Már Ómarsson þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Það var síðar staðfest að hann verður ekki meira með liðinu á árinu eftir að í ljós kom að krossband í hné hans er sltið.
Fyrir leik
Evrópukvöld í Ungverjalandi
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá síðari leik Györ frá Ungverjalandi og Víkings í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.