Fotbolti.net
@fotboltinet Gylfi Már Þórðarson
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
Þungt yfir og rok
Grótta
Grótta
1 - 2
Grindavík
Grindavík
0 - 16' Haraldur Björgvin EysteinssonHrannar Ingi Magnússon 23'1 - 11 - 253' Rúnar Ingi Eysteinsson
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Skilvirkir Grindvíkingar finna fyrir létti

Hvað réði úrslitum?

Varnarleikur Grindavíkur. Gróttumenn reyndu eins og þeir gátu en nánast alltaf áttu varnarmenn Grindavíkur svör. Þegar þeir fundu ekki svörin aðstoðaði Hjörvar Daði markvörður þá sem og markstangirnar.

Bestu leikmenn

1. Damir Muminovic - Grindavík

Var eins og klettur í vörn Grindavíkur í dag. Þegar sóknarmenn Gróttu nálguðust teiginn var hann alltaf mættur til að trufla, hann kom flestum fyrirgjöfum frá markinu og var öruggur í sínum aðgerðum.

2. Björgvin Brimi Andrésson - Grótta

Besti leikmaður Gróttu í kvöld. Var arkitektinn að jöfnunarmarkinu, ógnaði marki Grindavíkur með hraða sínum og snerpu og var að finna liðsfélagana ítrekað í góðum færum.

Atvikið

Sigurmark Grindavíkur. Í sjaldgæfri sókn Grindavíkur í þessum leik gerðu þeir allt rétt. Rúnar Ingi var réttur maður á réttum stað og skoraði gott mark.

Hvað þýða úrslitin?

Grindvíkingar sigra í fyrsta sinn í síðan 17. maí og lyfta sér upp í 9. sæti deildarinnar og fjarlægjast fallsætin. Grótta sitja sætinu ofar og eru enn tveimur stigum frá umspilssæti en sex stigum á undan Grindvíkingum.

Vondur dagur

Í tvígang slekkur varnarlína Gróttu á sér í þessum leik og í tvígang nýta Grindvíkingar sér það og skora. Það má ekki gleyma sér í eina sekúndu í fótbolta og læra leikmenn Gróttu af því í dag.

Dómarinn - 8

Lítið út á störf tríósins að setja í dag. Var þokkalega þægilegur leikur að dæma og voru dómarar leiksins í afar litlu hlutverki í kvöld, eins og það á að vera. Einhverjir stuðningsmenn Gróttu vildu víti undir lok leiksins en ég held að Pétur hafi verið með það atvik á hreinu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.