Leik lokið!
92. mín
Ragnheiður næstum aftur búin að skora og það með nákvæmlega sömu uppskrift og þegar hún skoraði áðan.
91. mín
Tvær mínútur í uppbót
90. mín
Erum að sigla inn í 90 mínútur. Spurning hvort einhverju verði hreinlega bætt við eða hvort að Ronnarong flauti bara af á sléttum 90. Úrslitin fyrir löngu ráðin hér í kvöld.
85. mín
FH virðist ekkert ætla að slaka á bensíngjöfinni en þær eru virkilega grimmar og óhræddar við að æða á vörn Gri/Nja.
81. mín
Ída Marín með hörkuskot sem Genevieve ver.
FH vilja bara meira!
FH vilja bara meira!
78. mín
InnSara Dögg Sigmundsdóttir
ÚtNatasha Moraa Anasi
75. mín
FH ERU AÐ LEIKA SÉR AÐ GRI/NJA!
Með sinni fyrstu snertingu!
Ragnheiður Th. Skúladóttir (stoðsending: Unnur Thorarensen Skúladóttir)
Aftur virkaði þetta alltof auðvelt fyrir FH og Unnur kemur boltanum fyrir markið og þar er Ragnheiður frí og skorar full auðvelt mark!FH ERU AÐ LEIKA SÉR AÐ GRI/NJA!
75. mín
InnUnnur Thorarensen Skúladóttir
ÚtThelma Lóa Hermannsdóttir
75. mín
InnRagnheiður Th. Skúladóttir
ÚtHafrún Birna Helgadóttir
74. mín
Misheppnuð hreinsun og FH kemur boltanum fyrir markið og á Niu sem er í hættusvæðinu og skilar boltanum í netið.
MAAAARK!
Nia Raisa Christopher
Þetta virkaði of auðvelt!Misheppnuð hreinsun og FH kemur boltanum fyrir markið og á Niu sem er í hættusvæðinu og skilar boltanum í netið.
67. mín
Þetta verður bara að teljast sanngjarnt.
FH bætir bara í!
Helena Maree Errington
Fær boltann, snýr og keyrir í átt að marki og lætur svo vaða fyrir utan teig alveg út við stöng sem Genevieve nær ekki að koma vörnum við.Þetta verður bara að teljast sanngjarnt.
65. mín
InnHrönn Haraldsdóttir
ÚtBirna Kristín Björnsdóttir
65. mín
InnNia Raisa Christopher
ÚtIngibjörg Magnúsdóttir
63. mín
Gri/Nja komast ekkert áleiðis framarlega á vellinum.
FH mun líklegri til þess að bæta við og nánast líklegri til að bæta við heldur en að Gri/Nja að eiga góða sókn sem af er.
FH mun líklegri til þess að bæta við og nánast líklegri til að bæta við heldur en að Gri/Nja að eiga góða sókn sem af er.
58. mín
Helena Maree með fyrirgjöf frá hægri fyrir markið og Thelma Lóa á skalla framhjá.
56. mín
Thelma Lóa kemst í gott færi og kemur með skot á nærstöng sem Genevieve ver!
FH miklu betri!
FH miklu betri!
54. mín
FH TVÖFALDA!
Beint úr horni!
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
Hornspyrna frá vinstri sem endar bara í netinu!FH TVÖFALDA!
54. mín
InnBrynja Pálmadóttir
ÚtHannah McLaughlin
Önnur skipting hjá Gri/Nja útaf meiðslum.
51. mín
Hannah McLaughlin og Thelma Lóa skella saman í teignum og liggja báðar.
Ída Marín reynir skot á sem Genevieve ver áður en Ronnarong dómari leiksins stöðvar leikinn.
Ída Marín reynir skot á sem Genevieve ver áður en Ronnarong dómari leiksins stöðvar leikinn.
49. mín
Tækifæri!
Helena Maree er laumað í gegn einni gegn Genevieve og hún kemur boltanum framhjá Genevieve en varnarmenn Gri/Nja eru mættar á bakvið og hreinsa þetta frá.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Elísa Birta sparkar þessu af stað aftur fyrir Grindavík/Njarðvík í seinni.
45. mín
FH fer inn í hlé með yfirhöndina eftir að hafa skorað út vítinu í uppbótartíma.
Gri/Nja varist vel en verður þó að segjast að þessi forysta FH er verðskulduð en leikurinn fór nánast fram á vallarhelmingi Gri/Nja.
Fáum vonandi spennu í þetta í seinni hálfleik.
Gri/Nja varist vel en verður þó að segjast að þessi forysta FH er verðskulduð en leikurinn fór nánast fram á vallarhelmingi Gri/Nja.
Fáum vonandi spennu í þetta í seinni hálfleik.
45. mín
Ída Marín fer sjálf á punktinn og kemur FH yfir!
Mark úr víti!
Ída Marín Hermannsdóttir
+1Ída Marín fer sjálf á punktinn og kemur FH yfir!
45. mín
Gult spjald
Natasha Moraa Anasi
Verðskuldað gult fyrir tæklinguna.45. mín
VÍTI FYRIR FH!
Ída Marín er tekinn niður innan teigs og vítaspyrna dæmd!
Slæm sending til baka sem Ída Marín kemst inn í og hún æðir upp völlinn og er svo tekinn niður í teignum og ekki annað hægt en að benda á punktinn.
Slæm sending til baka sem Ída Marín kemst inn í og hún æðir upp völlinn og er svo tekinn niður í teignum og ekki annað hægt en að benda á punktinn.
41. mín
Flott sending frá hægri fyrir markið endar á fjærstöng þar sem Helena Maree skilar boltanum framhjá Genevieve í marki Gri/Nja.
ALLT JAFNT!
FH JAFNA!
Helena Maree Errington (stoðsending: Ingibjörg Magnúsdóttir)
Það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi legið í loftinu! FH búnar að þjarma vel að Gri/Nja.Flott sending frá hægri fyrir markið endar á fjærstöng þar sem Helena Maree skilar boltanum framhjá Genevieve í marki Gri/Nja.
ALLT JAFNT!
39. mín
Andrea Rán með tilraun sem fer yfir markið. FH eru að ógna en gríðarlega þéttur varnarmúr Gri/Nja er að standa þetta af sér.
33. mín
Þarna mátti litlu muna!
Andrea Rán með skot sem fer af varnarmanni og leit út fyrir að vera á leið í samskeytin en boltinn datt rétt framhjá markinu.
27. mín
FH leitar af jöfnunarmarki
Birna Kristín með lúmska tilraun í mjög þröngum vinkli en Genevieve ver frá henni á nærstöng.
Þetta er einstefna þessa stundina.
Þetta er einstefna þessa stundina.
22. mín
FH eru búnar að ýta Gri/Nja vel aftur á völlinn.
Arnar Gunnlaugs landsliðsþjálfari karla myndi segja að Gri/Nja væri að suffera þessa stundina.
Arnar Gunnlaugs landsliðsþjálfari karla myndi segja að Gri/Nja væri að suffera þessa stundina.
18. mín
InnEydís María Waagfjörð
ÚtRakel Rós Unnarsdóttir
Meiðsli.
17. mín
FH bankar!
Ingibjörg með gott skot í teignum sem Genevieve ver frábærlega og FH heldur áfram að þjarma að marki Gri/Nja sem standa af sér orrahríð FH.
15. mín
Það er smá kraftur í FH núna, spurning hvort að markið hafi verið það sem þurfti til þess að kveikja á þeim.
12. mín
Grindavík/Njarðvík LEIÐIR!
Gri/Nja TEKUR FORYSTU!
Hannah McLaughlin
Gri/Nja búnar að vera pressa vel og og Hannah McLaughlin er svo með boltann fyrir utan teig og virðist vera leita af sendingunni áður en hún lætur svo bara vaða á markið sem virðist fara af varnarmanni FH og steinliggur!Grindavík/Njarðvík LEIÐIR!
10. mín
Frekar jafnt með liðum hérna fyrstu mínútur.
5. mín
Rétt framhjá
Ída Marín tekur spyrnuna sjálf og setur boltann rétt framhjá markinu.
5. mín
Ída Marín nálgast mark Gri/Nja og heimakonur gera það eina sem þær geta í stöðunni og taka hana niður og gefa FH aukaspyrnu inni í D-boganum.
3. mín
Gri/Nja fær fyrstu hornspyrnu leiksins.
1. mín
Svartklæddar FH stelpur sparka þessu af stað.
Fyrir leik
Nýliðarnir styrkja sig
Nýliðarnir í Grindavík/Njarðvík hafa fengið til sín liðsstyrk strax á fyrsta degi félagaskiptagluggans því Elísa Birta Káradóttir er komin á láni frá Víkingi út tímabilið.
Fyrir leik
Innbyrðis viðreign
Saga Grindavík/Njarðvík er ekki löng en þessi félög kepptu fyrst undir sameiginlegum merkjum á síðasta tímabili.
Tvívegis hafa þessi lið þó mæst og það var í bæði skiptin á þessu ári. Annarsvegar í Lengjubikar þar sem Grindavík/Njarðvík hafði betur með einu marki gegn engu og svo í 3. umferð Bestu deild kvenna þar sem FH hafði betur með tveimur mörkum gegn einu.
Liðin eiga því einn sigur á haus.

Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík sitja fyrir miðja deild í 6.sæti deildarinnar með 12 stig eftir tíu umferðir. Þær eru í þéttum pakka um miðja deild en aðeins þrjú stig skilja að í botnsæti deildarinnar og aðeins 4 stig skilja á milli 5. sætis og 12. sætis.
Grindavík/Njarðvík hafa aðeins verið að hiksta en þær hafa sótt fimm stig af mögulegum 15 í síðustu fimm umferðum. Þær máttu þola 1-0 tap á Akureyri í síðustu umferð gegn Þór/KA þrátt fyrir að hafa verið heilt yfir sterkari aðilinn í þeim leik.
Grindavík/Njarðvík vonast til þess að komast aftur á sigurbraut og ógna baráttu í top fjórum.

FH
FH sitja á toppi deildarinnar með 23 stig eftir tíu umferðir. Þær eru tveimur stigum á undan Breiðablik fyrir þessa umferð og eru því í hörku toppbaráttu.
Gengi FH hefur verið gríðarlega gott síðust umferðir en stelpurnar úr Hafnarfirði hafa sótt 13 stig af 15 mögulegum í síðustu fimm umferðum deildarinnar. FH vann gríðarlega öflugan endurkomusigur á Þrótti í síðustu umferð 7-3 eftir að hafa lent 0-2 undir í leiknum en Ída Marín Hermannsdóttir skoraði fimm mörk í þeim leik.

Dómarateymið
Ronnarong Wongmahadthai fær það verkefni að halda utan um flautuna hér í kvöld og honum til aðstoðar verða Tijana Krstic og Ricardas Kanisauskas.
Arnar Hólm Einarsson er svo fjórði dómari hér í kvöld.

Arnar Hólm Einarsson er svo fjórði dómari hér í kvöld.

Fyrir leik
Velkomin á JBÓ völlinn!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Grindavík/Njarðvík og FH í 11. umferð Bestu deild kvenna sem fram fer á JBÓ vellinum í Njarðvík.

Leikur sem varð aldrei spennandi.
Viðtöl og skýrsla væntanleg.