Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
1 - 2
Fram
Fram
0 - 115' Alda ÓlafsdóttirHarpa Helgadóttir (sjm) 51'1 - 11 - 278' Alda Ólafsdóttir
Dómari: Hallgrímur Viðar Arnarson
Leik lokið!
1-2 fyrir Fram!
Frábær sigur hjá Framkonum sem spyrna sér nú af botninum og inn á miðjuna.

Takk fyrir samfylgdina í dag, Viðtöl og skýrsla koma inn síðar í dag!
94. mín
Síðasti séns
Leiktíminn er að renna út og það er síðast séns hjá Víking að sækja jöfnunarmark
92. mín
Víkingar setja boltann í markið en flaggið fer á loft... Þetta var tæpt! En mér sýndist Jasmín ekki nógu fljót að koma upp úr rangstöðunni
91. mín
A.m.k. 4 mínútur í uppbótartíma, Víkingar leita og leita að jöfnunarmarki
90. mín
Selma Dögg heppin að sleppa við spjald hérna, hreinlega hrindir leikmanni Fram frá boltanum eftir brot.
Fram
87. mín
InnJúlía Margrét Ingadóttir
ÚtSara Svanhildur Jóhannsdóttir
85. mín
Víkingar vilja Víti!
Fer í höndina á Hildi Maríu en mér sýnist hún vera með höndina alveg að líkamanum.
Víkingar hins vegar eru alveg trylltir út í Hallgrím dómara leiksins
84. mín
Víkingar eru ekki sáttar með dómara leiksins hér, búinn að stoppa leikinn í tvígang á kritísku mómenti fyrir Víkinga, nú síðast skýtur Þórdís í hann, skil ekki staðsetninguna á hornum hérna!
83. mín
ÚFFF
Jasmín og Þórdís Hrönn ná góðu spili, Þórdís setur svo stórhættulegan bolta fyrir sem rétt fer framhjá markinu á fjær, það hefði verið svo auðvelt að hlaupa hreinlega þennan bolta inn ef Víkingskonur hefur verið mættar
Fram
81. mín
InnHlín Heiðarsdóttir
ÚtAlda Ólafsdóttir

Fram
78. mín
MAAAARK!

Alda Ólafsdóttir (stoðsending: Una Rós Unnarsdóttir)

Kemur uppúr aukaspyrnunni, Una fær boltann aftur frá Hildi Maríu, setur boltann fyrir aftur og þar kemur Alda á ferðinni, tekur boltann út í teiginn, skilur tvær Víkingskonur eftir og setur hann svo í nærhornið! Ógeðslega vel gert!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R.
77. mín
Gult spjald

Kristín Erla Ó Johnson

Fær gult eftir rosalegasta peysutog sem ég hef séð! En bjargar Víkingum klárlega fyrir horn, Taylor var við það að sleppa í gegn
76. mín
Sara Svanhildur komin aftur inn eftir mínútu pásuna
75. mín
Sara Svanhildur liggur eftir og fær aðhlynningu, Hallgrímur dómari ætlaði þó ekkert að stoppa leikinn fyrst og kallaði á Ashley í markinu að halda áfram
73. mín
Víkingar brjóta á hættulegum stað rétt við vítateigshornið. Una tekur spyrnuna en það er beint í fangið á Kötlu
Víkingur R.
71. mín
InnSelma Dögg Björgvinsdóttir
ÚtHelena Ósk Hálfdánardóttir
Selma að fá góðar og mikilvægar mínútur til að koma sér í gang
70. mín
Hornið frá Söru Svanhildi, vandræðagangur í teignum og enda með öðru horni en það er yfir pakkann á fjær og ekkert kemur úr því
70. mín
ÚFFF
Alda kemur boltanum inn í þar eru bæði Sara Svanhildur og Taylor og þær sparka saman í boltann en í varnarmann, horn!
69. mín
Una Rós tekur horn fyrir Framara, setur hann á fínan stað en Víkingur nær að koma boltan frá
67. mín
Sara finnur Freyju Dís sem nær að setja boltann fyrir, Alda reynir að taka boltann og skjóta í snúningnum og nær því ekki almennilegum krafti í skotið og Katla í markinu nær honum án vandræða
66. mín
Sara Svanhildur reynir skot af löngu færi en það er framhjá
Fram
65. mín
InnFreyja Dís Hreinsdóttir
ÚtKatrín S. Vilhjálmsdóttir
65. mín
Taylor Marie kemst framhjá Jóhönnu Elínu, nær fyrirgjöfinni en ekki nógu nákvæm og rennur útaf
61. mín
Jóhanna Elín nælir í horn fyrir Víkinga, Bergdís sem fyrr tekur hornið! Setur hann stutt á Þórdísi, fær hann aftur og setur fyrir en Ashley kýlir boltann frá
59. mín
Ágætis tilraun hjá Bergdísi en það er rétt framhjá
56. mín
Copy - Paste af sömu færslu bara, reynir skot af sama færi en nú er það rétt yfir markið
56. mín
Una Rós reynir skot langt utan af velli en það er framhjá, ágætis tilraun samt sem áður
Víkingur R.
51. mín
MAAAARK!

Harpa Helgadóttir (sjm)

Harpa skallar hornið frá Bergdísi í slánna og inn, misskilningur í samskiptum hjá þeim Ashley og þetta er orðið leikur!
51. mín
Bergdís tekur horn fyrir Víking hittir á fínan stað en Ashley er ákveðin, stekkur í þetta og kýlir út.
49. mín
Taylor Marie nælir í horn fyrir Fram, en ekkert kemur úr því.
47. mín
Dagný að byrja hér að krafti á hættulega sendingu inn á teig sem Ashley rétt nær að slá frá
46. mín
Víkingar hefja leikinn á ný!
Víkingur R.
46. mín
InnDagný Rún Pétursdóttir
ÚtFreyja Stefánsdóttir
Skipting í hálfleik
45. mín
Hálfleikur!
0-1 í hálfleik fyrir Fram,

Sanngjarnt miðað við hvernig leikurinn hefur spilast en eins marks forysta er ekki neitt og Víkingar þurfa bara aðeins að vanda sig betur til að koma sér í betri stöður! Fram er hins vegar bara að nýta sér að Víkingur er að reyna að sækja og elska plássið sem myndast fyrir aftan varnarlínu Víkings.
45. mín
A.m.k 1 mín í uppbótartíma
43. mín
Alda nælir í horn fyrir Fram, Sara Svanhildur tekur það, Alda er fyrst á boltann en skallinn ekki góður og missir hann bara eitthvert,
40. mín
Aftur er Alda að ógna fær boltann inn fyrir en flaggið fer á loft
39. mín
Bergdís tekur spyrnuna sjálf, ætlar að setja hann á markið en vel framhjá
38. mín
Una Rós brýtur á Bergdísi rétt fyrir utan teig, þetta er á fínasta stað!
35. mín
Ashley með frábær tilþrif, stingur sér á fyrirgjöf og grípur boltann
33. mín
Emma Steinsen kemst á rönnið og nær fyrirgjöfinni en aðeins of innarlega svo Ashley grípur þetta örugglega
32. mín
Ojjjjjjj
Alda og Taylor gera vel inn í teig Víkinga, endar með skoti af stuttu færi frá Taylor en Katla rétt nær að verja þetta frá, Dauuuuuuðafæriiii!
30. mín
Bergdís tekur horn fyrir Víkinga, kemur inn á miðjann teigin og skoppar þar tvisvar framhjá leikmönnum áður en Framkonur ná að koma þessu frá
27. mín
Freyja við það að sleppa í gegn en Ashley Brown kemur út á móti og sparkar þessu frá
26. mín
Bergdís með horn fyrir Víkinga en Taylor Marie stekkur kvenna hæst og skallar boltann frá
25. mín
Alda kemst í annað hlaup nú á vinstri kantinum, Víkingar kalla rangstæðu en það gerir þó ekki til þar sem Alda nær ekki að leggja boltann almennilega fyrir sig og laust skot fer beint á Kötlu
24. mín
Hornið frá Unu fer út í teiginn en þar er enginn til að taka við honum
23. mín
Taylor Marie Hamlett er NAUTsterk! ýtir og leikur á Jóhönnu Elínu trekk í trekk og nælir svo í horn
Fram
15. mín
MAAAARK!

Alda Ólafsdóttir

Bara nákvæmlega eins og ég lýsti, Langur bolti úr markinu í hlaupið inn fyrir hjá Öldu, hún tekur hann með sér, leikur á Áslaugu Dóru og leggur svo boltann í fjærhornið framhjá Kötlu í markinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
13. mín
Þetta hefur verið frekar lokaður leikur hingað til, bæði lið að reyna að gera það sama, finna liðsfélaga í hlaup innfyrir varnarlínu andstæðingsins eða skjóta fyrir utan, lítið verið að tengja sendingar
9. mín
Emma Steinsen með ágætis tilraun en það er rétt framhjá markinu
6. mín
Annað horn hjá Bergdísi en ekkert kemur úr því
6. mín
Bergdís tekur horn fyrir Víking, boltinn berst að endingu til Jasmínar sem skýtur í varnarmann og framhjá markinu
4. mín
Horn sem Una Rós tekur, þær ná skoti en rétt framhjá
4. mín
Sara Svanhildur nær fyrirgjöf sem Brookelynn og varnarmaður skalla saman útaf rétt framhjá markinu
1. mín
Víkingar byrja þetta af krafti! Þórdís Hrönn nær fyrirgjöf og það er hætta í teignum en brot dæmt
1. mín
Alda Ólafs byrjar þennan leik fyrir Fram
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Liðin taka hringinn og allt að verða klárt! Bæði lið í sínum hefðbundnu búningum
Fyrir leik
Byrjunarliðin í dag óbreytt
Hvorugur þjálfari gerir breytingu á byrjunarliði sínu í dag frá því í síðustu umferð. Þar sem Víkingar stóðu vaktina vel gegn Breiðablik þar til á 72. mínútu er flóðgáttirnar brustu og enduðu leikar 4-1. Fram hins vegar sótti góðan 0-1 sigur gegn Þrótti
Fyrir leik
Fyrri viðureign
Liðin mættust þann 11. maí sl. þar sem Víkingur fór með 0-1 sigur af hólmi, þegar Harpa Helgadóttir varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark
Fyrir leik
Sannkallaður botnslagur í dag
Við getum svo sannarlega átt von á góðum leik í dag en bæði liðin eru í bullandi botnslag, þrjú stig í dag hins vegar fleytir öðru hvoru liðinu upp við hlið Þróttar í 6. sætið! Það í sjálfu sér ætti að peppa liðin í dag!


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fyrir leik
Fram
Framkonur sitja í 9. sætinu, sæti neðar en mótherjar þeirra í dag, Víkingur, þó með jafnmörg stig eða 10 stig. Ólíkt Víkingi hafa Framkonur hafa verið á skriði eftir hléið og hafa unnið sína tvo leiki, fyrst 3-2 gegn Breiðablik og svo 0-1 gegn Þrótti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Víkingur
Víkingur situr í 8. sætinu með 10 stig, eða jafnmörg stig og mótherjar þeirra í dag, Fram, en hafa betri markatölu.
hefur ekki átt sjö dagana sæla eftir hléið en þær hafa tapað síðustu tveimur leikjum sínum. 1-3 gegn ÍBV og svo 4-1 gegn Breiðablik í síðustu umferð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymi dagsins
Á flautunni í dag verður Hallgrímur Viðar Arnarson og honum til halds og trausts verða Jón Reynir Reynisson og Heimir Árni Erlendsson aðstoðardómarar.

Fjórði dómari er Óliver Thanh Tung Vú og eftirlitsmaður í dag er Ingvar Örn Gíslason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin í hamingjuna!
Verið hjartanlega velkomin í textalýsingu þráðbeint frá Víkingsvellinum þar sem Víkingur tekur á móti Fram í 13. umferð Bestu deildarinnar.

Leikurinn hefst á slaginu 14:00

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.