Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetTryggvi Guðmundsson
Besta karla
Hásteinsvöllur
Blautur völlur, þoka og andvari.
ÍBV
ÍBV
2 - 2
KA
KA
0 - 136' André RømerOmar Sowe 68'1 - 11 - 273' Birgir BaldvinssonOmar Sowe 77'Vicente Rafael Valor Martínez (víti) 85'2 - 2
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Leik lokið!
2-2 jafntefli niðurstaðan á Hásteinsvelli!

Líklega nokkuð sanngjarnt.
95. mín
Síðasti séns KA
KA menn fá aukaspyrnu, brotið á Djuric á miðjum vallar helmgingi ÍBV:
94. mín
Adam Ægir kom svo með fyrirgjöf í kjölfarið á Valdimar en skallinn hans er yfir markið.
93. mín
Djuric með fyrirgjöf frá vinstri á fjær en Eyjamenn hreinsa.
92. mín
Djuric tekur skotið en það er hátt yfir.
90. mín
+4 í uppbótartíma.
90. mín
Adam Ægir með fínustu tilraun, fékk boltann rétt fyrir utan teig og lætur vaða en boltinn yfir markið.
89. mín
FÆRI HJÁ KA!!
Hallgrímur Mar með geggjaða sendingu á fjær á Valdimar en skallinn hans er ekki góður og fer yfir markið.
88. mín
Alex með skot utan af velli en það er hátt yfir markið.
88. mín
Sesar með lúmska fyrirgjöf frá hægri vængnum en Hans Viktor kemur boltanu í innkast.
ÍBV
85. mín
2-2!!!

Vicente Rafael Valor Martínez

Öruggt víti hjá Vicente, sendir Ívar í vitlaust horn og jafnar leikinn fyrir ÍBV.
KA
85. mín
Gult spjald

Hans Viktor Guðmundsson

84. mín
ÍBV fær víti!!!
Hand Viktor tekur Eið Atla niður inn á teig.
KA
83. mín
InnBreki Hólm Baldursson
ÚtAndré Rømer
ÍBV
83. mín
InnHermann Þór Ragnarsson
ÚtBjarki Björn Gunnarsson
ÍBV
83. mín
InnArnar Breki Gunnarsson
ÚtArnór Ingi Kristinsson
80. mín
Vel gert hjá Djuric inn á teignum og hann kemur boltanum á Birgi sem nær skotinu en það er beint á Ara.
79. mín
Felix brýtur á Valdimar nálægt hornfánanum hægra megin.
78. mín
Bjarki með aðra hornspyrnu fyrir ÍBV og Alex fær boltann inn á markteig en skóflar boltanum yfir markið.
ÍBV
77. mín
Rautt spjald

Omar Sowe

Sá þetta ekki nægilega vel en erum að bíða eftir að hornspyrnan er tekin. Leikmenn virðast kljást inn á teignum og sagt er að Omar hafi skallað KA mann en erfitt að sjá.
76. mín
Bjarki með hornspyrnuna sem Ívar blakar aftur fyrir og Eyjamenn fá annað horn,
76. mín
Vel spilað hjá Vicente og Arnóri Inga hægra megin. Arnór Ingi kemur svo fyrirgjöf en KA menn hreinsa í horn.
ÍBV
75. mín
InnViggó Valgeirsson
ÚtMilan Tomic
ÍBV
75. mín
InnSesar Örn Harðarson
ÚtRóbert Elís Hlynsson
KA
73. mín
KA LEIÐIR!!

Birgir Baldvinsson (stoðsending: Hallgrímur Mar Steingrímsson)

Hallgrímur með hornspyrnu fyrir KA á fjærstögnina beint á hausinn á Birgi sem stangar boltann í netið og kemur KA mönnum yfir á nýjan leik!
73. mín
KA fær horn
Adam skiptir boltanum yfir á Guðjón Erni sem er úti hægra megin. Hann kemur með fyrirgjöf en Vicente skallar boltann aftur fyrir.
KA
71. mín
InnValdimar Logi Sævarsson
ÚtJeppe Pedersen
70. mín
Djuric tekur skot frá miðjum vellinum en það er beint á Ara.
ÍBV
68. mín
1-1!!

Omar Sowe (stoðsending: Felix Örn Friðriksson )

Omar er kominn einn í gegn eftir sendingu frá Felix. Hann er samt með tvo í sér en nær að fara fram hjá Ívari í markinu og klárar svo í autt markið!

Allt jafnt á Hásteinsvelli!
65. mín
Adam Ægir fær boltanum inn á teignum og nær að snúa og kemur sér í skotfæri en það er beint á Ara.
64. mín
Omar í færi
Omar er kominn einn í gegn en þröngt færi og Ívar ver frá honum. Róbert Elís fékk svo boltann og reyndi að vippa boltanum inn en fór fram hjá.
60. mín
Færi hjá ÍBV
Alex enn og aftur með flotta sendingu í gegn á Bjarka Björn. Bjarki tekur skotið sem er fast en er tiltölulega auðvelt fyrir Ívar.
57. mín
Fyrirgjöf frá Romer og Djuric og Eiður fara í skallaeinvígið en Djuric en dæmdur brotlegur.
55. mín
Bjarki Björn með fyrirgjöf frá hægri kantinum en fer fram hjá öllum og aftur fyrir.
54. mín
Flott sókn hjá KA. Kom langur bolti yfir á Djuric og hann kemur boltanum á Hallgrím Mar hægra megin. Hann nær fyrirgjöfinni en hún er of innarlega og fer í hendurnar á Ara í markinu.
46. mín
Jakob héðinn með laflaust skot fyrir utan teig.
KA
46. mín
InnJakob Héðinn Róbertsson
ÚtJakob Snær Árnason
KA með eina breytingu í hálfleik.
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Þetta er farið af stað aftur!
45. mín
Hálfleikstölfræði
Mynd: Fótbolti.net

45. mín
0-1 í hálfleik.
KA menn leiða með einu marki í hálfleik. Eyjamenn byrjuðu betur en KA gerir svo mark eiginlega upp úr engu.

Mikill baráttuleikur og mikið um brot.
45. mín
Fyrirgjöf inn á teignn frá Arnóri en of innarlega fyrir Omar og fer beint í hendurnar á Ívari.
ÍBV
45. mín
Gult spjald

Róbert Elís Hlynsson

45. mín
Guðjón Ernir kemur boltanum á Djuric í hlaupinu og hann kemur með fyrirgjöf en Arnór Ingi nær að skalla boltanum burt.
45. mín
+4 í uppbótartíma.
45. mín
Arnór Ingi með fyrirgjöf sem Birgir hreinsar í innkast.
KA
43. mín
Gult spjald

André Rømer

43. mín
ÍBV Í FÆRI!!
Frábær sprettur hjá Bjarka Birni keyrir upp allan völlinn og kemur boltanum á Vicente sem nær skotinu en það er í stöngina og aftur fyrir!
42. mín
Alex með skotið yfir utan teig en KA menn skalla í burtu.
KA
38. mín
Gult spjald

Birgir Baldvinsson

KA
36. mín
KA er komið yfir!

André Rømer (stoðsending: Birgir Baldvinsson)

Frábærlega spilað hjá Romer og Birgi og Romer tekur bara skotið fyrir utan teig og boltinn endar í netinu, stöngin inn!

0-1!
34. mín
Vel spilað hjá Eyjamönnum sem endar á því að Arnór Ingi kemur með fyrirgjöf inn á teiginn en Ívar kemur út og handsamar boltann.
30. mín
Hallgrímur Mar með spyrnuna inn á teiginn en boltinn fer aftur fyrir af KA manni.
ÍBV
28. mín
Gult spjald

Milan Tomic

Brýtur á Jakobi Snæ við miðlínuna.
28. mín
Vicente með hættulega spyrnu úr aukaspyrnunni en boltinn fer í gegnum allan pakkann. Þarna vantar einhver til að pota boltanum inn!
ÍBV
27. mín
InnEiður Atli Rúnarsson
ÚtSigurður Arnar Magnússon
Sigurður Arnar getur ekki haldið leik áfram.
26. mín
ÍBV fær aukaspyrnu vinstra megin fyrir utan teig. Felix tekinn niður.
25. mín
Alex Freyr með fyrirgjöf inn á teiginn á Omar. Hann nær skallanum en fer hátt yfir.
22. mín
Vicente reynir að finna Róbert inn á teignum sem er kominn í góða stöðu en fyrsta snertingin svíkur hann.
20. mín
Vicente vann boltann á miðjum vallarhelmingi KA og boltinn berst til Omars. Hann keyrir inn á teiginn og tekur skotið en það lekur fram hjá. Vantaði einhvern á fjær þarna!
18. mín
OMAR Í FÆRI!!!
Frábær sendingu frá Róbert á Omar inn á teignum. Hann nær á einhver ótrúlegan hátt að teygja sig í boltann en setur boltann í slánna!

Omar fékk svo boltann aftur og lagði hann á Tomic en skotið hans í varnarmann.
17. mín
Alex með fyrirgjöf með jörðinni inná teiginn en Róbert Elís nær ekki til boltans.
15. mín
Djuric gerir vel gegn Arnóri Inga á endalínunni vinnur boltan og finnur Adam Ægi inn á teignum en skotið frá honum er máttlaust og Eyjamenn koma boltanum í burtu.
12. mín
Róbert Elís með aukaspyrnuna inn á teiginn en KA menn hreinsa.
KA
11. mín
Gult spjald

Jeppe Pedersen

Brýtur á Vicente.
11. mín
Róbert Elís með langa sendingu í gegn ætlaða Bjarka en Ívar kemur úr út markinu og er á undan í boltinn.
10. mín
ÍBV í færi
Alex með frábæra sendingu í gegn á Arnór Inga sem nær skotinu gegn Ívari úr þröngu færi. Virtist samt vera togað í hann en ekkert dæmt.
8. mín
Róbert Elís kemur sér í skotfæri eftir sendingu frá Omari en Guðjón Ernir nær að koma sér fyrir skotið.
6. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað hjá KA rétt fyrir utan teig. Hallgrímur með spyrnuna og boltinn barst á Djuric fyrir utan teiginn en skotið hans er fram hjá markinu.
ÍBV
6. mín
Gult spjald

Mattias Edeland

Jakob Snær við það að sleppa í gegn en Mathias togar hann niður.
2. mín
Hallgrímur Mar með skot úr teignum sem fer hátt yfir..
2. mín
Felix með langan bolta fram á Omar og hann nær fyrirgjöfinni á Vicente en hann nær ekki að koma sér í skotfæri.
1. mín
Við erum farin af stað. KA menn starta þessu!
Fyrir leik
Fyrir leik
Tvær breytingar á byrjunarliði ÍBV
Sigurður Arnar Magnússon og Róbert Elís Hlynsson koma inn í liðið. Eiður Atli Rúnarsson og Sesar Örn Harðarson fá sér sæti á bekknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Nýju mennirnir byrja hjá KA
Ívar Arnbro Þórhallsson er í markinu hjá KA en Stubbur, Steinþór Már Auðunsson, er ekki í hóp. Adam Ægir Pálsson og André Römer sem fengu leikheimild með KA í vikunni koma báðir beint inn í byrjunarliðið. Sveinn Margeir Hauksson hefur verið kallaður aftur í Víking eftir lánsdvöl. Jakob Héðinn Róbertsson fær sér sæti á bekknum.



Fyrir leik
Adam Páls kominn í KA
Adam Ægir Pálsson var í vikunni tilkynntur sem nýr leikmaður KA og skrifaði hann undir samning sem gildir út árið. Adam kemur frá Val þar sem hann hefur verið frá árinu 2023.

„Yndislegt að vera kominn í KA, þetta er búin að vera löng fæðing, KA er búið að hafa áhuga á mér í mörg, mörg ár og þetta er loksins orðið að veruleika. Ég hef oft íhugað það að koma norður og fannst rétti tímapunkturinn núna," segir Adam en viðtalið má sjá í heild hér að neðan.

Fyrir leik
KA er í tíunda sæti
KA vann nauðsynlegan sigur á ÍA í síðustu umferð en Akureyrarliðið er í tíunda sæti með 13 stig, tveimur stigum frá fallsæti.

Fyrir leik
ÍBV er í áttunda sæti
Eyjamenn fengu skell gegn KR í síðustu umferð en þeir sitja í áttunda sæti, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti.

Fyrir leik
Plötusnúðurinn með flautuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Oddur Hafliðason dæmir leikinn í dag, DJ Goddzilla. Guðmundur Ingi Bjarnason og Kristófer Bergmann eru aðstoðardómarar. Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson er með skiltið og eftirlitsmaður KSÍ er Gunnar Helgason (þó ekki leikarinn).
Fyrir leik
Góðan og gleðilegan daginn
Verið hjartanlega velkomin til Vestmannaeyja þar sem ÍBV og KA eigast við klukkan 14:00 á Hásteinsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.