Fotbolti.net
17.07.26 - 11:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

André Römer í KA (Staðfest)

André Römer í KA (Staðfest)
Canon

Mynd: KA

Danski miðjumaðurinn André Römer er genginn í raðir KA en hann kemur á frjálsri sölu frá danska úrvalsdeildarliðinu Randers þar sem samningur hans rann út í sumar.

Ef marka má umfjöllun danska miðilsins Tipsbladet í gær skrifar Römer undir samning sem gildir út næsta tímabil.

Römer, sem verður 33 ára á morgun, er varnarsinnaður miðjumaður sem hefur þrívegis á sínum ferli orðið danskur meistari og einu sinni bikarmeistari. Hann á að baki tæplega 300 leiki í dönsku úrvalsdeildinni, tæplega 70 leiki í sænsku úrvalsdeildinni og rúmlega 30 Evrópuleiki á sínum ferli.
Stór prófíll á leið í KA? - Bróðir fyrrum leikmanns liðsins
TENGT EFNI

Stór prófíll á leið í KA? - Bróðir fyrrum leikmanns liðsins

Hann er yngri bróðir Marcel Römer sem lék með KA á síðasta tímabili en samdi í kjölfarið svo við HB Köge í heimalandinu.

KA var í leit að varnarsinnuðum miðjumanni eftir að Spánverjinn Rodri sleit krossband snemma á tímabilinu. Römer ætti að vera kominn með leikheimild með KA fyrir útileik liðsins gegn ÍBV á sunnudag.

Hann er annar leikmaðurinn sem KA fær í glugganum því í gær var Adam Ægir Pálsson kynntur sem nýr leikmaður KA.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.18+4245
2KR18+2539
3Fram18+1137
4Breiðablik18+629
5Valur18-522
6ÍA18-622
7Keflavík18-622
8Stjarnan18-1021
9ÍBV18-917
10FH18-1017
11KA18-1215
12Þór18-2615
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.