Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna
Liðin spiluðu skemmtilegan leik í 5. umferðinni sem lauk með 3-4 útisigri Framara. FH var 3-1 yfir í hálfleik en mark frá Þorra og tvö frá fyrirliðanum, Kennie Chopart, sneru dæminu við og FH-ingar fóru á koddann með ekkert úr þessum leik.


Fyrir leik
Dómarateymið
Evrópufarinn Helgi Mikael Jónasson er aðaldómari leiksins en honum til aðstoðar eru þeir Egill Guðvarður Guðlaugsson og Birkir Sigurðarson. Fjórði dómari er Jóhann Ingi Jónsson.


Fyrir leik
FH taplausir í síðustu sex
Þrátt fyrir að FH-ingar hafi ekki tapað leik síðan í maí er liðið enn í fallsæti. FH hefur unnið tvo leiki og gert fjögur jafntefli í síðustu sex leikjum en í fyrstu níu leikjum deildarinnar fékk liðið aðeins tvö stig. FH hefur haldið hreinu í síðustu tveimur leikjum, í sigri á Val og í síðustu umferð jafntefli gegn Blikum.


Fyrir leik
Framarar frábærir á tímabilinu
Liðið er í 3. sæti deildarinnar en með sigri fer liðið upp fyrir KR og verða þá sjö stigum á eftir toppliðinu Víkingum. Fram hefur náð í 33 stig í 15 leikjum en liðið hefur aðeins tapað tveimur leikjum í mótinu, gegn botnliði Þórs úti og gegn toppliði Víkings á heimavelli. Fram hefur sótt 10 stig í síðustu fjórum, eftir 0-5 skellinn gegn Víkingum.


Fyrir leik
Lambhagavöllurinn heilsar!
Sæl öll og verið velkomin í beina textalýsingu fyrir leik Fram og FH í 16. umferð Bestu deildar karla sem fer fram í Úlfarsárdalnum í kvöld.





