SKÝRSLAN: Stjörnumönnum voru slátrað á Skaganum
Hvað réði úrslitum?
ÍA mættu í fyrri hálfleikinn af miklum krafti og leiddu 3-0 í þegar flautað var til hálfleiks og hefðu hæglega skorað meira í þeim fyrri. Það er eins og Stjarnan hafi ekki mætt klárir í leikinn eða hafi ekki mætt með neitt hungur í að gera neitt í þessum leik.
Bestu leikmenn
1. Markús Páll Ellertsson
Fannst erfiðast að velja menn leiksins komu nokkrir til greina en fannst Markús standa upp úr. var duglegur í pressunni gerði varnarmönnum Stjörnunar lífið leitt. Hann skoraði einnig tvö mörk.
2. Árni Marínó
Árni Marínó var mjög flottur í dag varði allt sem kom á ramman nema þegar Andri Rúnar skoraði en Árni varði víti og gerði mjög vel í öllum sínum aðgerðum.
Atvikið
Þegar Árni Snær tekur aukaspyrnu og smellir honum beint í lappirnar á Markúsi sem gerir vel að klára færið stórfurðulegt hjá Árna Snæ þar. Ætla líka setja þegar Árni Marínó ver vítið frá nafna sínu Árna Vill.
Hvað þýða úrslitin?
ÍA klifrar upp í 7. sætið einu stigi á eftir Val og Keflavík og fara aðeins frá botnbaráttunni í bili. Stjarnan hins vegar er komnir í erfið mál aðeins tveimur stigum frá fallsæti og þeir voru ekki að hjálpa sjálfum sér með markatölunni í dag. Fallbaráttan kominn í háaloft.
Vondur dagur
Úff það er hægt að pikka nokkra en Árni Snær fær þetta verðskuldað hjá mér fékk fimm mörk á sig og fyrsta og fjórða skrifast algjörlega á hann gefur boltann í bæði skiptinn beint í lappirnar á leikmönnum ÍA.
Dómarinn - 6
Pétur var allt í lagi flautaði lítið og aðeins eitt gult spjald sem mér fannst spes þar sem bæði lið voru ósátt oft við Pétur þegar þeim fannst brotið á sér.




