SKÝRSLAN: FH vélin heldur áfram að malla
Hvað réði úrslitum?
Bæði lið fóru varkárt inn í leikinn en Framarar tóku aðeins tökin á leiknum undir lok fyrri hálfleiks ásamt byrjun síðari hálfleiks. FH-ingar voru flottir heilt yfir, vörðust vel og fengu einnig færi til þess að skora en tókst ekki að nýta þau í dag. Heilt yfir sanngjörn niðurstaða þrátt fyrir að bæði lið reyndu að sækja sigurinn.
Bestu leikmenn
1. Viktor Freyr Sigurðsson
Varði nokkrum sinnum vel í marki Fram og sá til þess að FH næði ekki að skora.
2. Jökull Andrésson
Var góður í marki FH og sá einnig til þess að Fram tækist ekki að skora. Búinn að halda hreinu þrisvar í röð eftir að hafa fengið gagnrýni frá sínum eigin þjálfara um daginn.
Atvikið
Það voru nokkur fín færi í þessum leik en ekkert eitt sem stóð upp úr. Úlfur Ágúst fékk afbragðsfæri í byrjun síðari hálfleiks sem hann hefði átt að gera betur í.
Hvað þýða úrslitin?
Fram mistókst að fara upp í 2. sætið, og lyfta sér upp fyrir KR. Þeir eru því stigi á eftir KR og níu á eftir Víkingum. Evrópusæti er enn algjörlega í þeirra höndum og heilt yfir úrslitin ekkert til þess að hafa áhyggjur að. FH heldur áfram að tapa ekki leikjum, núna er liðið taplaust í sjö leikjum í röð í deildinni en liðið er ennþá í fallsæti þar sem liðið hefur aðeins unnið tvo leiki. En það að tapa ekki ætti að gefa FH liðinu sjálfstraust og stutt er í öruggt sæti.
Vondur dagur
Fótboltinn sem afþreying fær þennan stimpil í þetta skiptið. Aðstæður voru fullkomnar, frábært sumarveður, dalur draumanna og sunnudagskvöld en skemmtanagildið var afar lágt í dag því miður.
Dómarinn - 6
Helgi dæmdi leikinn ágætlega, engar stórar ákvarðanir sem hann varð að taka en nokkrar minni háttar sem voru rangar.



