SKÝRSLAN: Allt í járnum í Laugardal
Hvað réði úrslitum?
Mér fannst þetta sanngjörn úrslit þegar litið er heilt yfir leikinn. Þróttarar voru fannst mér betri í fyrri hálfleik en slökktu aðeins á sér í seinni hálfleik. Víkingar hefðu getað komist yfir fannst mér í seinni hlutanum og Þróttaraar voru frekar þreyttar seinustu 10 mínúturnar.
Bestu leikmenn
1. Katie Cousins
Katie var frábær á miðjunni í dag fannst mér. Var með frábærar sendingar og stóð sig þvílíkt vel.
2. Jasmín Erla Ingadóttir
Jasmín var frábær í dag og geggjuð á vængnum. Skapaði mörg færi og potað einum inn þrátt fyrir að vera dæmd rangstæð sem mér fannst nú ekki.
Atvikið
Myndi setja það á markið hjá Kaylu. Ruglaður bolti frá Jelenu og þvílík tækni hjá Kaylu í skallanum. Vippar sér upp og nær að hitta hann einhvern veginn í fjærhornið!
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur halda sér í 6. sætinu nú með 14 stig á meðan Víkingar fara fyrir ofan Val og sitja í 9. sæti með 11 stig.
Vondur dagur
Enginn átti eitthvað vondan dag. Fannst allir gera eins vel og þeir gerðu og ekkert einhver sem stendur út.
Dómarinn - 5
Brynjar var bara allt í lagi. Sumar ákvarðanir smá furðulegar og rangstæðudómar þó ölllu heldur. Fannst að Jasmín hefði ekki verið rangstæð þegar hún potaði boltanum framhjá Mollee, en svo getur vel verið að ég hafi séð vitlaust.




