Fotbolti.net
Viktor Ingi Valgarðsson
Lengjudeild karla
GeoSalmo völlurinn
Rigning búin=topp stöff
Ægir
Ægir
0 - 1
Njarðvík
Njarðvík
0 - 13' Valdimar Jóhannsson
Dómari: Hreinn Magnússon

SKÝRSLAN: Sparað vel í færum en þrjú stig til Njarðvíkur

Hvað réði úrslitum?

Ótrúlega kröftug frammistaða hjá Njarðvík sem mættu virkilega vel til leiks. Fjaraði heldur betur út færanýting beggja liða eftir fyrsta korterið en vörn Njarðvíkur var aldrei líkleg til að gefa Ægismönnum eitthvað í þessum leik.

Bestu leikmenn

1. Eiður Aron Sigubjörnsson

Steig ekki feilspor í leiknum. Virkilega sterkur varnarleikur á allan hátt, skýla boltanum, hreinsa og stýra hári varnalínu sem skilaði þó nokkrum rangstæðum á Ægisliðið. Alvöru fyrirliða frammistaða til fyrirmyndar.

2. Valdimar Jóhannson

Skoraði eina markið í dag sem var heldur betur dýrmætt og mikilvægt fyrir Njarðvíkur liðið þar sem vantaði tvö stór nöfn í sóknina.

Atvikið

Fyrsta korterið sem báðir þjálfarar tala um. Njarðvíkur liðið mætti ON it í kvöld og komu einum bolta í netið í þessum glugga sem reyndist vera nóg.

Hvað þýða úrslitin?

Njarðvík nálgast liðin fyrir ofan sig en þeir eru með 26 stig í 5. sæti sem er síðasta umsspilssætið. Grótta á þó tvo leiki til góða á þá, en engu að síður mjög mikilvæg þrjú stig sem Njarðvík sækir hér. Ægir er ennþá á botninum með 8 stig eftir 16 leiki. Það er alvöru brekka framundan en tvö liðin fyrir ofan þau eiga leik inni og erum með 11 og 14stig.

Vondur dagur

Það var heldur betur sparað í færum hér í kvöld. Fínasta skemmtun þessi leikur svo sem en færin voru ekkert til að slefa yfir. Vondur dagur fyrir þau og þá leikmenn sem hefðu mátt gera betur í þeim fáu færum sem mynduðust.

Dómarinn - 5

Erfitt að halda svona kröftugum leik á góðu floti en gerði það bara þokkalega og var mjög sanngjarn við bæði lið. Eina sem maður væri til í að sjá aftur er þegar Viktor Nói fellur í teig Ægis og vill víti. Held það hafi alltaf verið snerting þarna en Hreinn Magnússon á flautunni stóð fast á sínu og dæmdi ekkert.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.