Fyrir leik
Hverjar eru Dinamo-BSUPC?
Fyrir leik
Fyrirkomulagið
Breiðablik tapaði leik sínum gegn Aktobe á sársaukafullan hátt þegar þær töpuðu vítaspyrnukeppni með ekkert skorað mark, að lokinni framlengingu.
Dinamo-BSUPC tapaði hins vegar sínum leik sannfærandi 3-0 gegn Servette.
Þar sem bæði liðin töpuðu undanúrslitaleikjum sínum eiga þau því ekki lengur möguleika á að komast áfram í Meistaradeildinni, en það er engu að síður mikið undir.
Sigurvegari leiksins tryggir sér 3. sætið í mótinu og um leið sæti í 1. umferð UEFA Women’s Europa Cup. Þar tekur við hefðbundið útsláttareinvígi, heima og úti, en tap í leiknum í dag þýðir að Evrópuævintýri liðsins er lokið.
Breiðablik þarf því sigur gegn Dinamo-BSUPC til að halda Evrópuævintýrinu áfram.

Sama dómarateymi en í öðrum hlutverkum
Við fáum að sjá sama spænska og norska dómarateymi og í síðasta leik Breiðabliks en hins vegar breytast hlutverkin.
Á flautunni í dag verður hin norska Karoline Marie Jensen og henni til halds og trausts verða landa hennar Helle Reiten og hins spænska Rocio Puente Pino.
Fjórði dómarinn er þá Paola Cebollada López

Góðan og blessaðan!
Heil og sæl! Verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Breiðabliks og Dinamo-BSUPC á Aktobe Ortalyk Stadion í Kasakstan, í leikinn um 3. sætið í þessu mini-móti í forkeppni Meistaradeildarinnar.
Leikurinn hefst stundvíslega klukkan 07:00!

Leikurinn hefst stundvíslega klukkan 07:00!

Á síðustu leiktíð komst Dinamo í úrslitaleik mini-mótsins eftir 2-1 sigur gegn Vllaznia en tapaði þar 4-0 gegn Ferencváros. Liðið er því vant þessari tegund Evrópuleikja og kemur með töluverða reynslu inn í viðureignina gegn Breiðabliki.
Ein reynslumesta kona liðsins er hin 37 ára Anna Pilipenko. Hún er bæði leikjahæsti og markahæsti leikmaður Dinamo-BSUPC í Meistaradeildinni samkvæmt UEFA, með tíu leiki og sex mörk.