Fyrir leik
Gestirnir frá Laugardal
Þróttarar hafa átt gott tímabil hingað til og verið í toppbaráttu Lengjudeildarinnar frá fyrstu umferðum. Þeir gjörsamlega völtuðu yfir Aftureldingu í fyrsta sætis leiknum í síðustu umferð 4-1. Þrótturum var spáð 1. sæti fyrir tímabilið og hafa staðið undir þeim væntingum. Afturelding og Fylkir fylgja þó fast á eftir.


Fyrir leik
Heimamenn í Gróttu
Seltirningar hafa verið á fljúgandi siglingu í síðustu leikjum. Þeir hafa unnið fjóra af síðustu fimm eftir erfiðan kafla þar sem þeir töpuðu þremur leikjum í röð. Liðinu var spáð 10. sæti fyrir tímabilið, en hafa svo sannarlega komið á óvart. Eins og stendur sitja þeir í 6. sæti með 25 stig, átta stigum frá toppsæti.


Fyrir leik
Dómarateymið
Hinn afar efnilegi Þórður Þorsteinn Þórðarson er aðaldómari í dag. Honum til aðstoðar eru Þráinn Jón Elmarsson og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage. Eftirlitsmaður er Jón Magnús Guðnason.


Fyrir leik
Lengjudeildin heilsar!
Góðan dag kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi. Í dag eigast Grótta og Þróttur við í 17. umferð Lengjudeildar karla.




